Að stökkva eða hrökkva Páll Baldvin Baldvinsson skrifar 2. febrúar 2008 06:00 Ný stjórn í Orkuveitu Reykjavíkur kom saman í gær. Kjartan Magnússon fékk sinn stærsta bitling til þessa sem laun fyrir ljósmóðurstörf. Það er köttur í bóli bjarnar: um fætur sjálfstæðismanna í stj"roninni hringar sig Ásta Þorleifsdóttir og þeir hlaupa ekkert með hana. Ekki að þá vanti höftin: skýr útrásarstefna sem mótuð var á landsfundi sjálfstæðismanna glutraðist niður í falinni uppreisn borgarfulltrúa gegn gamla góða Villa. Þeir sáu skyndilega enga ástæðu til að fyrirtæki í opinberri eigu legðist í víking. Stundum vilja menn vera samkvæmir sjálfum sér, þrát fyrir landsfundarsamþykktir. Þversagnakennd afstaða í þessum mikilvæga málaflokki heldur því áfram að vera sjálfstæðismönnum fótarkefli. Í síðustu viku var gengið frá viljayfirlýsingu REI, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur, og ríkisstjórnar Djíbutí um samstarf í orkumálum á grunni einkaleyfis sem REI fékk til nýtingar á Assal-misgenginu fyrir réttu ári. Það var stórmenni á staðnum, forseti og iðnaðarráðherra og margt fínt fólk. En ekki Kjartan - og Ásta. Og í gær hélt útrásin áfram: hinn gamansami og gjörhuguli iðnaðarráðherra hélt þá stutta kynningu í Brussel fyrir kontórista í orkudeild framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og bauð upp á samstarf um greiningu á jarðhitanýtingu í Evrópu þar sem mönnum er oft kalt á tánum á köldum vetrum. Lagði Össur til að íslendingar og Evrópusambandið tækju upp samstarf í öðrum heimshlutum: Afríku og Suður-Ameríku. Margt mektarmanna úr íslenskum orkugeira var þar. Og á eftiri ræddi ráðherra frekar við orkumálastjóra Evrópusambandsins, Andirs Piebalgs. Ekki var nýr stjórnarformaður Orkuveitunnar þar enda upptekinn við að stjórna fundi í nýrri stjórn í Árbænum. Er nema von að kjósendur í Reykjavík skilji bara ekkert í því hvað er í gangi með kjörna fulltrúa þeirra? Það er stutt milli heimila þeirra Össurar og Kjartans í vesturbænum. Þeir ættu máski að hittast yfir kaffi og tala saman maður á mann um framtíð útrásar okkar í orkumálum? Líklega eru ekki nema örfá misseri sem íslenskir ráðamenn hafa til að fylkja íslenskum fyrirtækjum til útrásar í nýtingu jarðvarma. Lengi vel leit út fyrir að þar væru menn úr flestum flokkum samstiga, en svo truflaðist meirihluti sjálfstæðismanna í Reykjavík í tilhlaupinu, var að horfa annað - og datt. En eins og gerist í öllum keppnum spretta dugmiklir þáttakendur á fætur, dusta af sér óhreinindi, laga sig til og sækja á markið. Nýrri stjórn Orkuveitu Reykjavíkur er óskað til lukku með sætin. Vonandi tekst mönnum þar á stólum að finna og sameinast um stefnu sem verður ekki til trafala í rannsóknum og þróun á nýjum og löngum ónýttum jarðhitasvæðum heimsins. Ekki bara fyrir íslensk fyrirtæki á þessu sviði, ekki bara fyrir íslenska vísinda og tæknimenn, ekkki bara fyrir eigendur íslenskra orkufyrirtækja, heldur líka fyrir þá sem njóta ekki ylsins úr jörðu fyrir fótum þeirra. Sveltur sitjandi kráka, fljúgandi fær. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páll Baldvin Baldvinsson Mest lesið Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson Skoðun Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson Skoðun Launin mín eru ekki vandamálið. Hættu að kenna fátækum um mistök þín Ian McDonald Skoðun ESB- umræðan á Íslandi er orðin óþolandi léleg Gunnar Einarsson Skoðun Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir Skoðun Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Um tæknirisana og stjórnlausa bruðlið Kristinn Jón Ólafsson Skoðun
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson Skoðun
Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir Skoðun
Ósvífni meirihluta sveitastjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Hrafnhildur Ágústsdóttir,Oddur Guðni Bjarnason Skoðun
Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson Skoðun
Nú á að hafa áhrif á héraðsdóm og Alþingi og freista þess að fella ÁTVR Siv Friðleifsdóttir Skoðun