Fastir pennar

Grænir skattar og Chelsea traktorar

Kannski eru loftslagsbreytingar aðalmálið? Í nýrri skýrslu, sem er samin af fyrrum aðalhagfræðingi Alþjóðabankans, segir að hlýnun jarðar muni valda heimskreppu. Hún verði svo djúp að jafnast á við það sem gerðist 1929 og í tveimur heimstyrjöldum.

Hér í Bretlandi er Íhaldsflokkurinn meira að segja að verða meðvitaður um þetta. David Cameron lætur taka myndir af sér á hjóli. Hann er með sólarrafstöð á þakinu hjá sér. Flokkur hans veltir fyrir sér hugmyndum um að leggja á "græna skatta". Hann hefur ekki lagst á móti tillögum um að leggja sérstök gjöld á það sem kallast "Chelsea-traktorar" - það eru jeppar sem eru vinsæl ökutæki meðal ríka fólksins sem býr í Chelsea.

Í skýrslunni er þó smá vonarneisti. Þar segir að það þurfi ekki endilega að vera svo kvalafullt fyrir jarðarbúa að takast á við þetta. Að vísu þarf að leggja ofboðslega peninga nýja orkugjafa - en um leið gæti ný tækni haft för með sér ný tækifæri og vöxt.

Hvort sem það kemur loftslagsbreytingum við eða ekki þá er ótrúlega gott veður hérna í London í októberlok. Það er svo hlýtt að enn er hægt að sitja fyrir utan kaffihúsin, peysan sem ég kom með hingað hefur verið öldungis óþörf.

Við komum heim í kvöld. Það er dálítið erfitt að skrifa langar greinar á Starbuck´s.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×