Fastir pennar

Alheimsfegurð enn og aftur

Það er langur vegur frá Tívolíinu í Vatnsmýrinni í Reykjavík til eyjarinnar Hainan við suðurströnd Kína, þar sem Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var kjörin alheimsfegurðardrottning á laugardag fyrir þettsetinni sýningarhöll og milljónum sjónvarpsáhorfenda víða um heim. Í Tívolískemmtigarðinum, sem var og hét, var fegurðarsamkeppni árlegur viðburður í áraraðir og það hlýtur að hafa verið kalt oft á tíðum að koma þar fram á sundbolum. Íslenskar fegurðardrottningar létu það þó ekki á sig fá og sprönguðu aftur og fram á sýningarpallinum í svalri sumarnóttinni.

Hin unga fegurðardrottning fær því gott nesti héðan á ferðalögum sínum. Hennar bíða líka miklar freistingar og búast má við að peningaöflin vilji nýta sér sakleysislegt andlit hennar á ýmsan hátt. Hún þarf því að geta staðið í báða fætur.

Kvenfrelsiskonur hafa gjarnan gagnrýnt fegurðarsamkeppni bæði í heimalöndum sínum og á alþjóðavettvangi en ekki hafa borist miklar fregnir af mótmælum við keppnina á sumarleyfisstaðnum Hainan í Kína. Það er vert að veita því að athygli að þessi keppni er nú haldin í Kína og ber það vott um breytingar þær sem þar hafa orðið á síðustu árum. Fyrir 5-10 árum hefði líklega verið óhugsandi að slík keppni væri haldin þar í landi. Ekki hafa borist fréttir hingað af mótmælum við að keppnin skyldi að þessu sinni haldin í Kína og líklegt að margir Kínverjar hafi fremur fagnað því en hitt að fá að fylgjast með keppni sem þessari. Einu mótmælin sem heyrst hefur um í tilefni af þessari keppni koma úr heimi múslima, en stúlkan sem bar sigur úr býtum í keppninni í Bretlandi er einmitt múslimi og féll þátttaka hennar í keppninni í grýttan jarðveg hjá mörgum sömu trúar. Stúlkan sú hefur þó ekki alltaf baðað sig í sviðsljósi fegurðarheimsins, því um tíma bjó hún í Afganistan og kúrði í kjallaraherbergi í miðborg Kabúl á meðan sprengjurnar féllu á borgina.

Hér áður fyrr voru ýmsir sólarstaðir í Bandaríkjunum vettvangur slíkra atburða og gott ef það var ekki á Langasandi sem Guðrún Bjarnadóttir sló í gegn árið 1962 og ruddi þar með brautina fyrir íslenskar fegurðardrottningar á alþjóðavettvangi.

Vandi fylgir þó vegsemd hverri og nú þegar Unnur Birna hefur verið kjörin Ungfrú heimur er það hennar hlutverk að ferðast um heiminn sem eins konar góðgerðarsendiherra og láta gott af sér leiða. Fyrirrennarar hennar hafa heimsótt bágstödd börn víða um heim til að vekja athygli á aðstæðum þeirra. Þá verður hún fyrst og fremst kynnt sem Ungfrú heimur og Íslendingur. Það hefur verið sagt að það sé gott að vera Íslendingur í útlöndum, við séum friðsöm þjóð og hér sé lýðræði í hávegum haft. Ekki er við öðru að búast, þar sem hún á sterkt bakland og ber af sér góðan þokka. Hin unga fegurðardrottning fær því gott nesti héðan á ferðalögum sínum. Hennar bíða líka miklar freistingar og búast má við að peningaöflin vilji nýta sér sakleysislegt andlit hennar á ýmsan hátt. Hún þarf því að geta staðið í báða fætur. Unnur Birna verður líka fyrirmynd margra ungra stúlkna og því er mikilvægt að hún standi sig í hlutverki sínu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×