Fastir pennar

Verjum Laugaveginn

Undanfarna tvo daga hafa birst hér á síðum Fréttablaðsins ógeðfelldar lýsingar á ástandinu á Laugavegi í kjölfar þess að ráðist var á mann þar snemma að laugardagsmorgni. Verslunareigendur og kaupmenn við götuna gefa ófagra lýsingu á ástandinu þar, einkum um helgar. Vilja þeir meina að ástandið megi rekja til bara sem starfræktir eru við götuna. Pétur Arason býr við Laugaveg og varð nýlega fyrir því að ráðist var á hann um hábjartan dag með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði. Hann lýsir ástandinu svo: "Stór hluti af vandamálinu er barir þarna á svæðinu. Þar fer fram fíkniefnasala eins og um hverja aðra kjörbúð sé að ræða." Hann segir að lögreglunni hafi margsinnis verið bent á þetta, en þessi starfsemi hafi viðgengist þarna i mörg ár. Auk þess að benda lögreglunni á þetta hafi hann rætt vandamálið við borgarfulltrúa en án árangurs.

Þetta er ófögur lýsing á ástandinu við Laugaveg, aðal­verslunargötu höfuðborgarinnar, og þarna þurfa borgaryfirvöld og lögreglan greinilega að taka til hendinni. Laugavegurinn hefur verið á uppleið að undanförnu og þar eru fyrirhugaðar miklar framkvæmdir varðandi uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis.

Borgaryfirvöldum ber að verja og vernda Laugaveginn og stuðla að uppbyggingu. Þar hefur heilmikið verið gert á undanförnum árum og nú síðast var kaflinn á milli Barónsstígs og Snorrabrautar tekinn í gegn, auk þess sem þar var tekið í notkun nýtt bílageymsluhús á móti gamla Röðli og færi vel á því að húsið bæri það nafn. Þeir sem reka þarna atvinnustarfsemi og búa við Laugaveginn og í nágrenni hans þurfa líka að leggja sitt af mörkum. Íbúarnir verða að gera sér grein fyrir því að með því að velja það að búa í eða við miðbæjarkjarna og njóta alls þess sem slík hverfi hafa upp á að bjóða verða þeir líka að sætta sig við tilveru veitingahúsanna á kvöldin og um helgar. Ógæfufólk á þar hins vegar ekki heima og það hlýtur að vera sérstakt verkefni yfirvalda að sjá svo um að það sé ekki þarna. Þetta vandamál er ekki einskorðað við Laugaveginn, heldur vel þekkt í borgarkjörnum víða, og ættum við að geta lært af reynslu annarra í þessum efnum. Fótgangandi lögregluþjónar á þeim tímum sem mest er um að vera á Laugaveginum hafa áreiðanlega sitt að segja til að leysa vandamálið og öflugt hreinsunarstarf borgaryfirvalda ætti að vera sjálfsagt mál um helgar.

Það væri sannarlega skref afturábak ef öll hin líflega starfsemi sem skotið hefur rótum við Laugaveginn á undanförnum árum legðist af. Gatan hefur breyst úr því að vera mikil verslunargata í það að vera aðlaðandi borgarhluti með veitingastöðum og sérverslunum líkt og víða í nágrannalöndunum. Ef allir leggjast á eitt um að bæta ástandið og hlúa að götunni getum við áfram fengið okkur göngutúr á Laugaveginum, ekki síst nú í aðdraganda jólanna,en hvergi er að finna skemmtilegri stemningu í borginni en einmitt þar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×