Það þarf að breyta skipulaginu 24. september 2004 00:01 Eftir misheppnaðan sáttafund í gær er ljóst að kennaradeilan verður í hnút næstu daga og jafnvel vikur. Það eru dapurlegar fréttir fyrir þjóðfélagið allt. Og í rauninni óviðunandi að við bjóðum börnum okkar upp á þetta. Vandinn er bara sá að svo breitt bil er á milli deilenda að erfitt er að sjá þeir hvernig þeir eiga að ná samkomulagi. Kennarar hafa komið sér í þá stöðu að þeir eiga erfitt með að samþykkja tilboð sem miðast við svipaðar kjarabætur og aðrir launþegar hafa verið að fá. Og gangi sveitarfélögin of langt til móts við kröfur kennara leiðir það af sér uppnám á almennum vinnumarkaði. Lausnin mun að líkindum liggja í breytingum á vinnufyrirkomulagi en hætt er við að það taki nokkurn tíma að útfæra viðunandi lausnir á því sviði. Ekki er við því að búast að viðsemjendur í kennaradeilunni komi fram með eitthvert nýstárlegt útspil. Það kæmi að minnsta kosti mjög á óvart. Launanefnd sveitarfélaga er málsvari ólíkra aðila og hefur hvorki skipulagslegan styrk né pólitískt umboð til að láta sér detta í hug óvenjulegar eða róttækar lausnir. Kennarasamtökin hafa um árabil verið meðal íhaldssömustu stéttarsamtaka landsins og með fullri virðingu fyrir þeim mun óhætt að segja ekki sé von á nýmælum úr þeirri átt. Aftur á móti hafa kennaradeilur stundum leyst úr læðingi hugmyndir og framkvæmdir sem til framfara hafa orðið. Kennaraverkfallið haustið 1984 varð þannig hvati að stofnun nýs einkaskóla, Tjarnarskóla, og deilan sem stendur yfir hefur kveikt áhugaverðar umræður í blöðum um nauðsyn skipulagsbreytinga í skólamálum. Hefur ungt fólk í Frjálshyggjufélaginu til dæmis viðrað að nýju hugmyndina um ávísanakerfi, frelsi til handa foreldrum skólabarna til að kaupa menntun þar sem hún býðst best. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur, fastur pistlahöfundur Fréttablaðsins, benti á það hér í blaðinu í gær að til þess að bæta kjör kennara verulega þyrfti að breyta skipulaginu sem skólakerfið byggir á. Í stað miðstýrðra samninga vekur hann athygli á kostum beinna samninga í hverjum skóla. Hann telur nauðsynlegt að fjölga einkaskólum og gefa þeim og ríkisskólunum frjálsari hendur en þeir hafa nú til að fara eigin leiðir til að koma til móts við óskir og þarfir barna og foreldra. Þorvaldur Gylfason segir að skipulagsbreytingu skólamálanna þurfi að fylgja aukið fjárstreymi til menntamála. Annað hvort frá almannavaldinu eða að skólunum yrði leyft að afla fjár á eigin spýtur, til dæmis með því að leggja hófleg gjöld á nemendur eða stofna til samstarfs við einkafyrirtæki eins og hann segir að mjög hafi færst í vöxt í framhaldsskólum og háskólum í nálægum löndum. Bendir Þorvaldur í þessu sambandi á að nú þegar kaupi foreldrar margs konar viðbótarmenntun börnum sínum til handa. Engum dettur í hug að leggja til að skólakerfi okkar verði umturnað í einu vetfangi. Allar breytingar þurfa að gerast í áföngum með eðlilegum hætti og finna sér farveg samráðs og skoðanaskipta. En kennaradeilan beinir sjónum að því að raunveruleg umskipti verða ekki á kjörum kennara nema menn þori að velta fyrir sér og rökræða róttækar hugmyndir um skólakerfið og skipulag þess. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Magnússon Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun