Neytendur

„Allt að 70% afsláttur“ reyndist iðulega einungis fimm prósent
Dekkja- og bílaþjónustan ehf., rekstraraðili dekk1.is, hefur verið sektað vegna viðskiptahátta sinna. Auglýstur var allt að 70 prósent afsláttur í „Cyberviku“ en einungis var hægt að finna dekk á mun lægri afslætti, iðulega einungis fimm prósenta. Þarf félagið að greiða 200 þúsund króna sekt.

Tugprósenta munur á tannlæknaþjónustu og gjaldskrár ekki alltaf sýnilegar
Tugprósenta munur er á verði tannlæknaþjónustu og ekki eru allar gjaldskrár aðgengilegar á netinu. Þetta kemur fram í óformlegri verðkönnun Vísis hjá tuttugu tannlæknastofum.

Þrautin þyngri að verða sér úti um grautinn
Grjónagrautur frá Mjólkursamsölunni (MS) hefur verið illfáanlegur á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Rekja má þetta til þess að MS fékk ranga tegund af grjónum í síðustu sendingu frá birgjanum. Verið er að vinna í að fá réttu grjónin aftur.

Deildu um leigu á gistiheimili vegna brúðkaups í Svarfaðardal
Héraðsdómur Reykjaness hefur leitt til lykta deilu rekstrarfélags gistiheimilisins Húsabakka í Svarfaðardal á Tröllaskaga og manns um leigu á herbergjum í tengslum við brúðkaup sem haldið var í ágúst síðastliðinn. Bæði var deilt var um nýtingu á hótelherbergjum, afslætti og að ekki hafi allir gestir fengið þá gistingu sem lofað var.

Fær endurgreitt fyrir ellinöðru sem hann var ófær um að nota
Níræður karlmaður fær endurgreitt fyrir ellinöðru sem hann keypti frá fyrirtæki sem selur rafdrifin fjörhjól til eldri borgara. Daginn eftir kaupin mundi hann ekki eftir þeim en hann er með öllu ófær um að stjórna því. Að mati kærunefndar krafðist maðurinn endurgreiðslu innan þess ramma sem leyfilegt er.

Aflýsti siglingaferð til Grænlands en endurgreiddi ekki staðfestingargjaldið
Ferðaþjónustufyrirtæki hefur verið gert að endurgreiða um milljón króna staðfestingargjald til viðskiptavinar vegna tíu daga siglingaferðar til Grænlands sem fara átti í í ágúst 2022 en fyrirtækið aflýsti með skömmum fyrirvara með vísun í heimsfaraldur kórónuveiru.

Segja íslensku olíufélögin hafa gert þegjandi samráð um að lækka ekki verð
Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir forstjóra Skeljungs reyna að afvegaleiða umræðu um óeðlilega hátt bensínverð hér á landi. Félagið segir að íslensku olíufélögin hafi með sér þegjandi samráð um að lækka ekki útsöluverð á bensíni og dísilolíu þrátt fyrir lækkandi verð eldsneytis á heimsmarkaði.

Fantamikill Fanta-skortur tilkominn vegna nýs vélabúnaðar
Neytendur hafa tekið eftir því undanfarið að Fanta og Coke Light hafa verið illfáanleg í verslunum. Ástæðan er hik á framleiðslu drykkjanna í kjölfar fjárfestingar Coca-Cola á nýjum vélabúnaði hérlendis. Markaðsstjóri segir fyrirtækið reyna að anna eftirspurn en þurfi líka að forgangsraða.

60 prósenta verðmunur á nautalund
Bónus var með lægsta meðalverð á matvöru í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 28. mars.

Allt að 41 prósent verðmunur á páskaeggjum
Bónus var oftast með lægsta verð á páskaeggjum í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var þann 28. mars, í 28 af 32 tilvikum.

Innkalla pönnukökublöndu vegna aðskotaefna
Matvælastofnun vill vara við einni framleiðslulotu af Amisa lífrænni pönnukökublöndu sem fyrirtækið Heilsa ehf. flytur inn vegna aðskotaefna (trópanbeiskjuefni; atrópín og skópalamín) sem greindust yfir mörkum.

Mánaðarleg greiðslubyrði gæti brátt hækkað um 30 þúsund krónur
Mánaðargreiðslubyrði á 40 milljóna króna óverðtryggðu láni gæti hækkað um 30 þúsund krónur á einu bretti ef bankarnir hækka vexti í takt við 100 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Lánamarkaðurinn hefur tekið hröðum breytingum samhliða tólf stýrivaxtahækkunum í röð.

Leggja slagorðinu þar sem æ fleiri skilja ekki til hvers sé vísað
Sláturfélag Suðurlands hefur á undanförnum vikum kynnt til sögunnar nýtt útlit á 1944-skyndiréttunum og samhliða breytingunum verður hætt við notast við slagorð réttanna – „Matur fyrir sjálfstæða Íslendinga“. Forstjóri segir að sífellt fleiri skilji ekki vísun slagorðsins til ártalsins – það er réttirnir dragi nafn sitt af ártalinu þegar Íslendingar lýstu yfir sjálfstæði frá Danmörku.

Paprika orðin tímabundin lúxusvara
Fordæmalaust verð á papriku, sem hefur fjórfaldast undanfarnar vikur, hefur valdið neytendum sérstöku hugarangri. Forstjóri heildsölunnar Innnes segist aldrei hafa séð aðra eins hækkun - en nú horfi til betri vegar í paprikumálum.

Vill skattkerfisbreytingu og húsnæðisstuðning til að spyrna við stýrivaxtahækkun
Forseti Alþýðusambandsins segir stjórnvöld þurfa að grípa inn í vegna stýrivaxtahækkana og koma almenningi til hjálpar. Dæmi eru um að afborganir af húsnæðislánum hafi hækkað um hundrað þúsund krónur á mánuði undanfarið árið.

Innkalla IKEA kjúklinganagga vegna aðskotahlutar
Matfugl ehf. hefur í varúðarskyni ákveðið að innkalla eina framleiðslulotu af IKEA kjúklinganöggum vegna aðskotahlutar úr hörðu plasti sem fannst í pakkningu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Kílómetragjald komi í stað eldsneytisskatta
Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hefur lagt til að kílómetragjald komi í stað núverandi skattlagningar á eldsneyti ökutækja. Með því fyrirkomulagi sé hægt að tryggja að rafmagnsbílar borgi fyrir afnot af vegakerfinu.

IKEA innkallar veiðileikfang
IKEA hefur ákveðið að innkallaBLÅVINGAD veiðileik og hvetur viðskiptavini til að skila í verslun vegna köfnunarhættu. Varan verði að fullu endurgreidd.

Cocoa Puffs ekki að hverfa þrátt fyrir mikla verðlækkun
Cocoa Puffs er ekki að hverfa úr hillum verslana landsins þrátt fyrir að margar þeirra bjóði upp á kassa af morgunkorninu á einungis 99 krónur. Viðtökurnar reyndust ekki jafn sterkar í byrjun og vonast var eftir en morgunkornið er þó komið til þess að vera.

Námskeiðið hafi einkennst af samhengislausu tali
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa telur að kona sem keypti námskeið fyrir sig og fjölskyldu sína ætti ekki að fá endurgreitt þrátt fyrir að hafa verið afar ósátt við inntak þess. Að mati konunnar einkenndust fyrirlestrarnir sem hún borgaði fyrir af samhengislausu tali sem tengdust inntaki námskeiðsins ekki.

Klappið umtalaða hjá Strætó vinnur til alþjóðlegra verðlauna
Klappið, greiðslukerfi Strætó, hlaut alþjóðleg verðlaun sem veitt eru framúrskarandi lausnum á sviði rafrænna greiðslukerfa. Greiðslukerfið hefur verið nokkuð umtalað síðan það var tekið í gagnið og valdið mörgum notandanum hugarangri.

Bensínlítrinn undir 290 krónur í fyrsta sinn síðan í maí
Söluverð á bensínlítranum hjá Costco, þar sem lægsta verð hefur verið í boði, er kominn undir 290 krónur í fyrsta sinn síðan í maí síðastliðinn.

Hægt að sleppa við aukagjöld flugfélaga með klækindum
Formaður Neytendasamtakanna segir fáránlegt að flugfélög rukki fólk fyrir að sitja með börnum sínum. Hann segir frá vinkonu sinni sem sleppir við aukagjöld með klækindum.

Innkalla Jelly straws vegna ólöglegra aukaefna
Matvælastofnun varar við neyslu á sælgætinu Jelly Straws vegna ólöglegra aukaefna. Þá er einnig talin hætta á köfnun barna við neyslu vörunnar.

Viðskiptavinir Sjóvár fengu óvænta reikninga vegna tjóna frá 2020
Um fimmtíu viðskiptavinir tryggingafélagsins Sjóvár hafa á síðustu dögum fengið óvænta reikninga vegna innheimtu á eigin áhættu vegna tjóna frá árinu 2020. Talsmaður tryggingafélagsins segir að um viss mistök hafi verið að ræða – seinagang við innheimtu – og að kröfurnar verði ýmist felldar niður, endurgreiddar eða málin leyst á annan hátt.

Innkalla fæðubótarefnið Ashwagandha KSM-66
Leanbody ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum fæðubótarefnið Ashwagandha KSM-66 frá CNP.

Ekki auðveld ákvörðun framundan hjá fjölmörgum
Deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka segir það mikilvægt að fólk fresti ekki vanda sínum þegar kemur að hærri greiðslubyrði á lánum. Fastir vextir á fjölmörgum lánum munu losna á næstu mánuðum og margir gætu lent í ansi miklum vandræðum fari stýrivöxtum og verðbólgu ekki lækkandi.

Keypti kvöldmat fyrir heila viku á rúmar sex þúsund krónur
Katrín Björk Birgisdóttir keypti á dögunum hráefni í kvöldmat fyrir fjögurra manna fjölskyldu í heila viku fyrir litlar 6.500 krónur. Hún segir heilan kjúkling vera góð kaup og að mikilvægt sé að hafa í huga að ekki þarf að hafa heitan mat á hverju einasta kvöldi.

Merkingar í Nettó undir væntingum Neytendastofu
Neytendastofa hefur skammað Samkaup vegna ófullnægjandi verðmerkinga í Nettó á bókum og leikföngum. Vörurnar voru aðeins merktar með QR kóða.

Eiga rétt á bótum eftir að sprengjuhótun tafði för
Fjórir farþegar ungverska flugfélagsins Wizz Air eiga rétt á bótum frá félaginu vegna tafa sem urðu á för þeirra sem rekja má til sprengjuhótunar á flugvellinum í Kraká í Póllandi.