Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Lögreglunni á stöð fjögur, sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og í Árbænum, barst tilkynning um bíl utan vegar en í ljós kom að ökumaður hafði misst stjórn á bílnum og hafnað á vegg. Sá hinn sami hlaut þó einungis minni háttar áverka en fjarlæga þurfti bílinn með kranabifreið. Ekki liggur fyrir hvort um hraðakstur eða grun um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna hafi verið að ræða. Innlent
Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik FH vann öruggan 5-2 sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í neðri hluta Bestu-deildar karla í knattspyrnu í dag. Íslenski boltinn
Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Bókaútgefandinn HarperCollins hyggst hætta alfarið að prenta bækur eftir barnabókahöfundinn og Íslandsvininn David Walliams en hann hefur verið sakaður um kynferðislegt áreiti í garð samstarfskvenna sinna. Lífið
Annar ætlar að vinna en hinum illt í hnénu Kristján Karl og Ríkarður eru tveir eftir í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk. Bakgarður 101
Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Stálheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 129 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn sem skilaði upphæðinni var keyptur í Fjarðakaupum í Hafnarfirði. Neytendur
Áhersla ESB á miðstýringu er „viðvarandi áskorun“ fyrir EES-samninginn Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt. Innherji
Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum „Okkur langaði að skapa meira en stað þar sem konur mæta á æfingu og fara síðan beint heim,“ segja systurnar og sjúkraþjálfararnir Thelma Rut og Hera Rut. Þær hafa opnað Thera Studio í Bæjarlind í Kópavogi þar sem hreyfing, sjúkraþjálfun, fræðsla og samfélag fara saman í hlýlegu umhverfi. Lífið samstarf