Albert lagði upp mark í sigri

Albert Guðmundsson hefur farið á kostum með Genoa í vetur og endar með 14 mörk í ítölsku A-deildinni.
Albert Guðmundsson hefur farið á kostum með Genoa í vetur og endar með 14 mörk í ítölsku A-deildinni. EPA-EFE/STRINGER

Genoa endar tímabilið með 49 stig og gulltryggði ellefta sætið með þessum sigri.

Albert Guðmundsson náði ekki að bæta við marki en lagði upp síðara mark liðsins í leiknum.

Ruslan Malinovsky skoraði fyrra markið á 13. mínútu leiksins og staðan var 1-0 í hálfleik.

Albert lagði síðan upp annað markið fyrir Vitor Oliveira á 59. mínútu.

Albert endar tímabilið með fjórtán mörk og fjórar stoðsendingar. Hann er eins og er í fjórða til fimmta sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira