Viðskipti erlent

New York Times kaupir orðaleikinn vinsæla

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Orðaleikurinn Wordle hefur slegið í gegn undanfarin misseri.
Orðaleikurinn Wordle hefur slegið í gegn undanfarin misseri. Photo by Jakub Porzycki/NurPhoto via Getty Images

Bandaríska stórblaðið New York Times hefur keypt orðaleikinn Wordle, sem slegið hefur í gegn í netheimum undanfarin misseri.

Þetta kemur fram í frétt á vef blaðsins þar sem segir að kaupverðið sé „lág sjö talna upphæð,“ sem þýðir að orðaleikurinn var keyptur á minnst eina milljón dollara, eða um 130 milljónir íslenskra króna.

Bandaríski hugbúnaðarverkfræðingurinn Josh Wardle hannaði leikinn og gaf hann út í október. Athygli hefur vakið að leikurinn er hýstur á mjög einfaldri síða, án allra auglýsinga.

Leikurinn snýst um það að finna fimm stafa orð dagsins og hafa notendur alls sex tilraunir til þess. Fá notendur vísbendingar um hvort þeir hafi giskað á rétta stafi eða staðsetningu þeirra. Samkvæmt tilkynningu New York Times eru notendur leiksins yfir milljón talsins

Þar kemur einnig fram að í það minnsta fyrst um sinn verði leikurinn ókeypis og opinn fyrir nýja sem reynslumeiri notendur.

Í yfirlýsingu frá hönnuði leiksins segist hann hæstánægður með að hafa samið við New York Times um að blaðið myndi kaupa leikinn. Segir hann að leikurinn verði enn opinn og ókeypis eftir að hann verði færður yfir á vef New York Times.

Markmiðið með kaupunum er að sögn Times að komast nær markmiði blaðsins um að næla sér í tíu milljón áskrifendur fyrir árið 2025. Áskrifendur að blaðinu, veffjölmiðli og hinum ýmsu undirsíðum í eigu félagsins eru nú um 8,4 milljónir.

New York Times hefur vaxið töluvert að undanförnu, ekki síst með kaupum á samkeppnisaðilum og öðrum fjölmiðlum, nú síðast í janúar þegar blaðið keypti íþróttamiðilinn The Athletic fyrir háar fjárhæðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×