Kynningarfundur um þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna á morgun Heimsljós 26. maí 2021 16:17 Niðurstöður þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna verða kynntar á Zoom. Norðurlandaskrifstofa Þróunarstofnunar SÞ (UNDP) og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, í samvinnu við utanríkisráðuneytið, bjóða til kynningar á þrítugustu þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna á morgun, fimmtudaginn 27. maí frá kl. 12:00 – 13:30. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar og settar í íslenskt samhengi. Fundurinn fer fram á Zoom. Í kynningartexta um viðburðinn segir að í fyrsta sinn í 300 þúsund ára sambandi sé það mannkynið sem móti jörðina, í stað þess að plánetan móti mannkynið. Í þrítugustu þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna (Human Development Report, 2020) sé kannað hvernig mannkynið geti þrætt sig í gegnum nýja öld, þar sé krufið samband mannfólks og jarðar og hvert við stefnum til að marka nýjar leiðir að framförum mannkyns. Camilla Brükner framkvæmdastjóri Norðurlandaskrifstofu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna opnar fundinn en Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagsráðs flytur aðalerindið. Petro Conceicao, einn ritstjóra skýrslunnar kynnir helstu niðurstöður hennar, og þrír Íslendingar veita umsögn um skýrsluna, Geir Oddsson deildarstjóri á alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytsins, Lára Jóhannsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Tinna Hallgrímsdóttir formaður ungra umhverfissinna (UU) og ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Skráning á viðburðinn er hér. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Innlent Of snemmt að kenna bikblæðingum um Innlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Erlent Öxnadalsheiði opin á ný Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Innlent Of snemmt að kenna bikblæðingum um Innlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Erlent Öxnadalsheiði opin á ný Innlent