Bílar

Nýr rafsendibíll frá Citroën

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Citroën ë-Jumpy í hleðslu.
Citroën ë-Jumpy í hleðslu.

Brimborg kynnir Citroën ë-Jumpy 100% hreinan rafsendibíl sem væntanlegur er til landsins í apríl og mun Brimborg bjóða hann í tveimur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Brimborg.

Forsalan á nýja rafsendibílnum er nú þegar hafin í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.

Allt að 330 km drægni

Citroën ë-Jumpy rafsendibíll er 100% hreinn rafbíll með 50-75 kWh drifrafhlöðu. Drægni bílsins skv. WLTP mælingu er framúrskarandi eða allt að 330 km. Citroën ë-Jumpy er fáanlegur með eins fasa 7,4 kW eða þriggja fasa 11 kW innbyggðri hleðslustýringu.

Citroën ë-Jumpy í hleðslu.

Hraðhleðsla í 80% á um 32-48 mínútum

Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Citroën ë-Jumpy rafsendibíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða drifrafhlöðuna á 4:45 - 7:30 klukkustundum í öflugri heimahleðslustöð og næstum tóma drifrafhlöðuna má hlaða á 32-48 mínútum í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð.

Citroën ë-Jumpy.

Fjarstýrð forhitun

Citroën ë-Jumpy rafsendibíll er með fjarstýrðri forhitun sem tryggir að bíllinn er heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyCitroën® appinu ásamt því að fjarstýra forhitun.

Staðalbúnaður

Citroën ë-Jumpy er ríkulega búinn. Meðal ríkulegs staðal-og öryggisbúnaðar er bakkmyndavél með 180° víddarsýn, nálægðarskynjarar að framan og aftan, blindpunktsaðvörun, hraðastillir, öryggispúðar að framan og í hliðum, Bluetooth símabúnaður, ökumannssæti með armpúða, 7″ margmiðlunarskjár í mælaborði, varadekk og fjarstýrð forhitun. Citroën ë-Jumpy er með heilu þili milli hleðslurýmis og farþegarýmis með glugga og 180° opnun á afturhurðum. Citroën ë-Jumpy er fáanlegur með ýmsum aukabúnaði t.d. með krossvið í gólfi hleðslurýmis og með rennihurð á báðum hliðum.

Moduwork - fellanlegt sæti og lúga á þyli

Með Moduwork innréttingunni í Citroën ë-Jumpy er hægt að stækka hleðslurýmið með opnanlegri lúgu og niðurfellanlegu framsæti, hægt er að flytja allt að 4,026 m langa hluti með Moduwork innréttingunni.

Citroën ë-Jumpy í vinnu.

Allt að 6,6 rúmmetra fraktrými

Citroën ë-Jumpy rafsendibíll er fáanlegur í tveimur lengdum; millilangur og langur. Rúmmál hleðslurýmis er allt að 6,6 m3 með Moduwork innréttingu, fellanlegu sæti og lúgu á þili til að flytja lengri hluti.

Sjö ára víðtæk ábyrgð á bíl og átta ár á drifrafhlöðu gæði Citroën ë-Jumpy eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðenda.

Forsala er hafin

Brimborg hefur hafið forsölu á glænýjum Citroën ë-Jumpy rafsendibíl í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða hjá Brimborg í apríl og afhendingar til kaupenda hefjast í maí 2021.

Citroën ë-Jumpy.

Í Vefsýningarsal er að finna alla Citroën ë-Jumpy rafsendibíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.

Citroën ë-Jumpy rafsendibíll kostar frá 5.190.000 kr. og er fáanlegur í tveimur lengdum; millilangur og langur.

Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Citroën aðstoða viðskiptavini við að setja saman réttu útfærsluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×