Lyngonia er einstök lausn án sýklalyfja Florealis kynnir 18. nóvember 2019 15:00 Sandra Mjöll Jónsdóttir er vörustjóri hjá Florealis og doktor í líf- og læknavísindum.
Nóvember er tileinkaður baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Florealis býður upp á jurtalyfið Lyngonia. Lyfið er eina viðurkennda meðferðin á Íslandi við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum sem ekki er hefðbundið sýklalyf og er það mikilvægur valkostur í baráttunni við sýklalyfjaónæmi. Ólíkt hefðbundnum lyfjum innihalda jurtalyf á borð við Lyngonia virk efni unnin beint úr plöntum og hafa að geyma flókin efnasambönd. Það gerir bakteríum erfitt að mynda ónæmi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lýst yfir að vaxandi sýklalyfjaónæmi í heiminum sé ein stærsta ógn við heilbrigði sem mannkynið stendur frammi fyrir. Nauðsynlegt er að draga úr óþarfa notkun sýklalyfja eins og hægt er, til dæmis með því að meðhöndla vægar sýkingar áður en þær komast á það stig að sýklalyfja gerist þörf. ,,Okkur er mjög umhugað um þetta málefni og það er ein ástæða þess að við ákváðum að setja jurtalyfið Lyngonia á markað. Til að geta dregið úr notkun sýklalyfja þurfa aðrar öruggar leiðir að vera í boði,” segir Sandra Mjöll, vörustjóri hjá Florealis og doktor í líf- og læknavísindum. ,,Þvagfærasýkingar eru mjög algengar hjá konum. Margar fá slíkar sýkingar endurtekið. Þetta veldur því að hluti kvenna þarf ítrekað að taka sýklalyf til að draga úr einkennum. Það eykur verulega líkur á því að sýklalyfjaónæmi þróist og þá hætta lyfin að virka,” heldur Sandra áfram. Einstök lausn án sýklalyfjaLyngonia er jurtalyf sem unnið er úr stöðluðum útdrætti úr sortulyngi. ,,Lyngonia inniheldur efnið arbútín sem er skilið út í þvagi í háum styrk og virkar staðbundið á sýkingar í þvagrásinni. Lyngonia hefur því ekki áhrif á bakteríuflóruna í meltingarvegi eða annars staðar í líkamanum eins og er algengt með hefðbundin sýklalyf” segir Sandra. Lyngonia er ætlað konum sem fá endurteknar þvagfærasýkingar þegar búið að útiloka alvarlega kvilla af lækni. Lyfið vinnur gegn sýkingunni og einkennum hennar t.d. bruna við þvaglát og ítrekaðri þvagþörf. Lyfið fæst án lyfseðils í öllum apótekum og best er að byrja að taka það um leið og einkenna verður vart. ,,Lyngonia er virk meðferð við þvagfærasýkingu og á ekki að taka sem fyrirbyggjandi meðferð. Lyfið byrjar að virka strax og ættu einkenni að hverfa á fjórum dögum. Þetta er frábær kostur fyrir þær konur sem eru endurtekið með slíkar sýkingar og þær geta jafnvel komist hjá notkun sýklalyfja ef Lyngonia er notað rétt,” segir Sandra að lokum. Lyngonia fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Lyngonia er skráð sem jurtalyf sem hefð er fyrir og ætlað konum eldri en 18 ára. Notkun er 2 töflur 2-4 sinnum á dag og ekki skal nota lyfið lengur en viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun skal hafa samband við lækni. Ekki á að nota Lyngonia ef truflun er á nýrnastarfsemi. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Florealis.
Heilsa Mest lesið Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Lífið Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði Lífið Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Lífið „Ég væri ekkert án þeirra“ Lífið Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið Tónlist Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Lífið Viltu bæta svefngæði þín? Lífið samstarf Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Lífið Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Lífið Fleiri fréttir Viltu bæta svefngæði þín? „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ „Að skora í gegnum keðjunet er bara gæsahúðar móment“ Vandamálið við fætur, þeir eru í laginu eins og fætur Mosfellsdalur tók vel á móti Bylgjulestinni LED ljósameðferðir: Nýjasta trendið í húðumhirðu „Viltu passa mig?“ Sniglar höfða til kærleikans í umferðinni Fjörið með Bylgjulestinni heldur áfram í Mosfellsbæ Gerðu upplifunina að EM í fótbolta skemmtilegri með Match Attax Á leið á landsleik í London í boði Netgíró Sígild hönnun frá Rosti verður 70 ára Frábær stemming hjá Bylgjulestinni í Eyjum um helgina Verum vakandi í umferðinni í sumar Pula í Króatíu er paradís heim að sækja Um tvöhundruð bækur komnar út á árinu - sumarbókavikan hefst í dag Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn „Gerið hjartastuðtækið klárt“ – úrslit í Leikið um landið Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Handgerðir leirpottar fyrir kröfuharða kaupendur Nutrilenk liðbætiefnin breyta öllu á álagstímum „Bannað að hvísla að dómaranum!!“ Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sjá meira