Fara fram á kyrrsetningu á eignum Valitor Birgir Olgeirsson skrifar 22. febrúar 2018 13:11 Greiðslukortafyrirtækið Valitor. Vísir/Stefán
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press Productions í skaðabótamáli þeirra gegn greiðslukortafyrirtækinu Valitor, ætlar að fara fram á að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu kyrrsetji eignir Valitor upp á sex og hálfan milljarð. Datacell og Sunshine Press production sáu um rekstur greiðslugáttar fyrir Wikileaks en Valitor ákvað einhliða og án fyrirvara að loka þessari gátt árið 2011. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu árið 2013 að þessi ákvörðun hafi verið ólögmæt og í kjölfarið ákváðu fyrirtækin að höfða skaðabótamál.Uggandi um þeirra hagKristinn Hrafnsson, sem er einn af eigendum Sunshine Press Productions, segir í samtali við Vísi að kyrrsetningarbeiðnin sé tilraun þeirra til að tryggja hagsmuni fyrirtækjanna. Hann segir forsvarsmenn fyrirtækjanna uggandi um þeirra hag eftir að hafa fylgst með átökum um eignarhald Valitor og möguleg uppskipti á milli Arion-banka og greiðslukortafyrirtækisins.Kristinn Hrafnsson.VísirMarkaður Fréttablaðsins greindi frá því miðvikudaginn 14. febrúar síðastliðinn að meirihluti hluthafa í Arion-banka sækist nú eftir því að hlutabréf Valitor verði greidd út í arð fyrir útboð. Sagði Markaðurinn jafnframt frá því að það myndi virkja kauprétt vogunarsjóða að 21,4 prósenta hlut í Valitor til viðbótar. Eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Valitor að loka fyrir greiðslugátt Wikileaks hefði verið ólögmæt höfðuðu Datacell og Sunshine Press Productions skaðabótamál gegn Valitor. Datacell og Sunshine Press Productions höfðu fengið til sín matsmenn sem mátu tjón fyrirtækjanna upp á 14 milljarða króna, með tilliti til dráttarvaxta.Mun væntanlega klárast á næstu mánuðum Kristinn segir dómkvadda matsmenn hafa síðan metið tjónið að núvirði upp á sex til sjö milljarða króna. Hljóðar því skaðabótakrafa fyrirtækjanna upp á 14 milljarða króna, en til vara er farið fram á þá upphæð sem dómkvöddu matsmennirnir höfðu komist að. Hann segir Valitor hafa farið fram á yfirmat, sem fyrirtækið greiddi fyrir. Þrír menn voru skipaðir af dómi til að framkvæma yfirmatið sem síðan hefur ekki verið lagt fram. Kristinn segist reikna með að yfirmatið hafi verið á svipuðu róli og undirmatið sem nú er eina matið sem er gilt fyrir dómi. Kristinn segir Valitor hafa í tvígang farið fram á frávísun á skaðabótakröfunni og hafa nú beðið um nýja matsmenn. Hann segir þó málið vera á lokametrunum og muni væntanlega klárast á næstu mánuðum. Með kyrrsetningunni er ætlunin að tryggja hagsmuni fyrirtækjanna gagnvart Valitor þar til dómur er genginn.Beiðni bandarískra stjórnvaldaForsögu málsins má rekja til október 2010 þegar gengið var frá samningi um að fyrirtækið DataCell myndi sjá um rekstur greiðslugáttar fyrir Sunshine Press Production, rekstraraðila uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, til að taka á móti styrktargreiðslum frá velunnurum Wikileaks. Í lok árs 2010 fóru bandarísk stjórnvöld fram á að Visa og Mastercard skyldu loka á greiðslur til Wikileaks í gegnum Datacell. Valitor, sem er umboðsaðila Visa á Íslandi, lokaði greiðslugáttinni 8. júlí 2011 án fyrirvara eftir að styrktargreiðslur fyrir Wikileaks tóku að flæða inn í gáttina.
Tengdar fréttir Með kauprétt að 21 prósents hlut í Valitor Meirihluti hluthafa í Arion banka sækist nú eftir því að hlutabréf Valitor verði greidd út í arð fyrir útboð. Myndi virkja kauprétt vogunarsjóða að 21,4 prósenta hlut í Valitor til viðbótar. 14. febrúar 2018 06:30 Valitor vill nýtt mat á tjóni Wikileaks 27. apríl 2017 07:00 Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Dagar Workplace eru taldir Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sjá meira
Með kauprétt að 21 prósents hlut í Valitor Meirihluti hluthafa í Arion banka sækist nú eftir því að hlutabréf Valitor verði greidd út í arð fyrir útboð. Myndi virkja kauprétt vogunarsjóða að 21,4 prósenta hlut í Valitor til viðbótar. 14. febrúar 2018 06:30