Skotin á náttfötunum: Gefur lítið fyrir sögusagnir um umsátur Samúel Karl Ólason skrifar 20. júlí 2017 12:48 Justine Damond, var 40 ára gömul og var að fara að gifta sig í næsta mánuði.
Lögmaður fjölskyldu Justine Damond, ástralskar konu sem skotin var til bana af lögreglu í Minneapolis um helgina, gefur lítið fyrir umræðu um að lögregluþjónarnir hafi óttast umsátur þegar annar tveggja skaut Damond til bana þar sem hún stóð skammt frá heimili sínu á náttfötunum. Skömmu áður hafði hún hringt í Neyðarlínuna vegna gruns um að nauðgun væri að eiga sér stað fyrir utan hús sitt. Lögregluþjónninn sem ók bílnum sem þeir voru á, Matthew Harrity, sagði rannsakendum að honum og Mohamed Noor hefði brugðið verulega við hávær hljóð um leið og Justine Damond nálgaðist bíl þeirra. Noor teygði sig yfir Harrity og skaut Damond út um gluggan bílstjóramegin. Hún lést af sárum sínum um tuttugu mínútum síðar.Sjá einnig: Skotin til bana á náttfötunum eftir að hafa hringt á lögreglu Talsmaður lögreglunnar í Minneapolis hefur ekki viljað fara nánar út í hvaða hljóð þeir heyrðu sem skellti þeim skelk í bringu. Hins vegar hefur lögmaður Harrity gefið í skyn að þeir óttuðust að þeir væru að keyra í umsátur.Samkvæmt frétt Minneapolis Star Tribune, sagði lögmaðurinn að slíkt væri eðlilegt og vísaði til þess að Miosotis Familia var skotin til bana þar sem hún sat í lögreglubíl sínum í New York þann 5. júlí.Kveiktu ekki á myndavélum Bæði Noor og Harrity voru með vestismyndavélar, sem þeir kveiktu ekki á fyrr en eftir að Justine hafði verið skotin. Rannsakendur segja ekkert myndband til af atvikinu. Noor hefur neitað að ræða við þá sem rannsaka málið og lögmaður hans hefur ekki viljað tjá sig um hvort hann muni gera það, samkvæmt frétt Guardian. Lögmaður fjölskyldu Damond, Robert Bennett, segir að þeir hefðu átt að sjá að þeim stæði engin ógn af henni þar sem hún gekk að þeim í náttfötunum. „Hún var augljóslega ekki vopnuð, hún var ekki að ógna neinum,“ sagði Bennett við Guardian og bætti við að hann teldi þessi ummæli lögmanns Harrity fáránleg og þeim væri eingöngu ætlað að flækja málið.
Bandaríkin Tengdar fréttir Skotin til bana á náttfötunum eftir að hafa hringt á lögreglu Mikil reiði ríkir í Ástralíu eftir að áströlsk kona var skotin í Minneapolis. 18. júlí 2017 11:16 Neitar að tjá sig eftir að hann skaut konu á náttfötunum Atvikið hefur vakið mikla reiði í Ástralíu og hefur Malcolm Turnbull, forsætisráðherra landsins farið fram á svör. 19. júlí 2017 11:49 Mest lesið Sorg í Neskaupstað vegna andláts barns Innlent Fiskikóngurinn segir atvinnurekendur aumingja Innlent „Skítaskilaboð“ forsetaframbjóðenda til Úkraínumanna Innlent Hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir banaslysið Innlent Hafði heyrt að ræningjanum hefði verið komið fyrir kattarnef Innlent „Var þetta í alvöru nafnið mitt sem þau kölluðu?“ Innlent Maðurinn sem fannst í Þórsmörk var Íslendingur Innlent Margir eiga inni vaxtastuðning frá skattinum Innlent Gætu saksótt sundlaugargest vegna andláts í Breiðholtslaug Innlent Þekktur sænskur rappari skotinn til bana Erlent Fleiri fréttir Biden herðir tökin á landamærum í aðdraganda kosninga Konunglegri heimsókn frestað vegna verkfallsins Búa sig undir holskeflu upplýsingafals í kringum Evrópukosningar Amanda Knox dæmd fyrir meiðyrði þrettán árum eftir sýknu Þekktur sænskur rappari skotinn til bana Stunguárás á fulltrúa þýsks fjarhægriflokks Sunak og Starmer tókust á um skatta, útlendingamál og NHS Ráðleggja gegn samþykkt MDMA sem meðferð við áfallastreituröskun Hillur að verða tómar í Færeyjum og ekkert samkomulag í augsýn Narendra Modi lýsir yfir sigri á Indlandi Þúsundir heimilislausra fluttir frá París í aðdraganda Ólympíuleika Réttarhöld yfir syni Biden hafin Fékk mjólkurhristing í andlitið við upphaf kosningabaráttunnar Skotin nítján sinnum stuttu eftir kosningar Kona forsætisráðherra kölluð til skýrslutöku í spillingarrannsókn Nýfætt barn sem fannst í janúar alsystkini annarra yfirgefinna barna Nýtt bóluefni gegn sortuæxlum helmingar líkur á endurkomu Ákærður fyrir að fjármagna fjarhægri dagblað með peningaþvætti Milljarða sekt fyrir illa meðferð á hundum Fjórir látnir eftir mikil flóð í suðurhluta Þýskalands Ísrael tilkynnir um dauða fjögurra gísla Farage snýst hugur og býður sig fram til þings Flokkur Mandela missir meirihluta í fyrsta skipti í þrjátíu ár Efndi til þrælauppboðs í kennslustund Tveir skotnir til bana í Norrköping Netanyahu fastur milli steins og sleggju Fyrsta konan og gyðingurinn til að verða forseti Mexíkó Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Sjá meira
Skotin til bana á náttfötunum eftir að hafa hringt á lögreglu Mikil reiði ríkir í Ástralíu eftir að áströlsk kona var skotin í Minneapolis. 18. júlí 2017 11:16
Neitar að tjá sig eftir að hann skaut konu á náttfötunum Atvikið hefur vakið mikla reiði í Ástralíu og hefur Malcolm Turnbull, forsætisráðherra landsins farið fram á svör. 19. júlí 2017 11:49