Íbúar þorps sem heitir Drepum gyðinga kjósa um nafnabreytingu Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2014 14:25 Vísir/AFP
Íbúar hins litla þorps á Spáni, sem heitir Castrillo Matajudios munu kjósa í næsta mánuði um hvort breyta eigi nafni þorpsins, sem móðgar utanaðkomandi og hluta íbúa þykir skömmustulegt, samkvæmt bæjarstjóra þorpsins. Seinni hluti nafnsins, Matajudios, þýðir á íslensku: Drepum gyðinga. Frá þessu segir AP fréttaveitan. Þann 25. maí verða íbúarnir spurðir hvort þeir vilji breyta nafninu í upprunalegt nafn þorpsins, Castrillo Motajudios. Það þýðir: Gyðingahæð og á rætur að rekja til ársins 1035, þegar 66 gyðingar voru drepnir í nærliggjandi þorpi. Eftirlifendur fjöldamorðsins settust að á hæðinni þar sem þorpið er nú. Þau gögn sem fyrst vísa til nafnsins Drepum gyðinga, eru frá árinu 1627, eða meira en öld eftir konunglega tilskipun um að gyðingar skyldu yfirgefa Spán, verða kaþólikkar eða vera brenndir á báli. Tilskipunin var gefin út árið 1492 en þá var Spænski rannsóknarrétturinn að störfum í landinu. Lorenzo Rodriguez Perez, bæjarstjóri þorpsins, segir sagnfræðinga halda telja að nafninu hafi verið breytt af gyðingum sem þá bjuggu í þorpinu til að sannfæra Spánverja um að þeir væru orðnir kaþólikkar. Aðrir telja að nafnið hafi einfaldlega breyst með stafsetningarvillu. Nafnbreytingin er til komin vegna skrásetningar sögu þorpsins og til að laða ferðamenn að þorpinu. „Það eru til sögur um fólk sem ferðast héðan til Ísrael þar sem það þarf að sýna vegabréf sem merkt er Matajudios,“ sagði Rodriguez. „Margir íbúar segjast vera frá Castrillo, án þess að nefna seinna nafnið.“ Nú búa engir gyðingar í þorpinu, en bæjarstjórinn segir marga íbúa eiga rætur sínar að rekja til gyðinga. Davíðsstjarnan er í skjaldamerki þorpsins.
Mest lesið Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Innlent Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Innlent Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Innlent Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi Innlent Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Erlent Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Innlent Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Erlent Björguðu hesti úr sjálfheldu í Skagafirði Innlent Vonast til þess að ráðgátan um Lögréttutjöldin leysist Innlent „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Innlent Fleiri fréttir Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Lést af náttúrulegum orsökum Bóluefni gegn flensu og Covid-19 langt á veg komið Macron veðjar á að Frakkar séu í áfalli Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns Mánaðarverkfalli í Færeyjum lýkur Setti sig í samband við ráðgjafa Biden til að mótmæla gagnrýni á AGD Öfgahægrið sækir í sig veðrið en miðjan heldur Forsætisráðherrann segir af sér Macron rýfur þingið og boðar til kosninga Benny Gantz hættur í þjóðstjórn Netanjahús Utanríkisráðherra Danmerkur krambúleraður eftir bátaslys Minnist ævintýragjarna og dásamlega mannsins síns „Allt sem gerist í Brussel snertir okkur“ Talið að lík Mosley sé fundið Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Sjá meira