Seldu þrjár milljónir iPad mini á þremur dögum 5. nóvember 2012 20:44
Apple tilkynnti í dag að yfir þrjár milljónir iPad mini og fjórðu kynslóðar iPad-spjaldtölva hefðu selst um opnunarhelgina en sala á þeim hófst 23. október. Þetta eru tvöfalt fleiri spjaldtölvur en seldust opnunarhelgina á iPad í mars síðastliðnum. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu Forrester er áætlað að Apple selji um 62 milljónir iPad-spjaldtölva á þessu ári. iPadinn sem fór í sölu á föstudag er minni útgáfa af hinum hefðbundna iPad og svo uppfærsla á þriðju kynslóð af spjaldtölvunni. Snertiskjár nýju spjaldtölvunnar er 7.9 tommur. Á stærri útgáfu iPad er skjárinn 9.7 tommur. Þrátt fyrir þetta er upplausn snertiskjásins á iPad Mini jafn há og á fyrri útgáfum spjaldtölvunnar. iPad Mini er jafnframt ódýrasta spjaldtölva Apple frá upphafi en hún mun kosta rúmlega 40 þúsund krónur. Þá var einnig tilkynnt í gær að Apple hefði selt yfir 100 milljónir spjaldtölva frá því að iPad komst fyrst á markað fyrir rúmlega tveimur árum.
Tækni Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Viðskipti innlent Minnir á flotta tannlæknastofu Samstarf Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Dagar Workplace eru taldir Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sjá meira