Bakþankar

Lífs míns langa plastskeið

Brynhildur Björnsdóttir skrifar
Grillveisla í garðinum síðsumars með góðum vinum. Kjötið rifið úr umbúðunum, grænmetið þrifið upp úr pokunum og öllu skellt á. Borðað af diskum, drukkið úr glösum, matur skorinn í bita og stunginn með gaffli. Hrært í glösum með röri og kaffibollanum með teskeið. Og stóri munurinn á þessari veislu og veislunni sem sama fólk hélt fyrir tuttugu árum: það þarf ekkert að vaska upp! Plast er stórkostleg uppfinning.

Við lifum á tímum þar sem það að draga olíu úr iðrum jarðar, flytja hana langar leiðir á olíuhreinsunarstöð og þaðan í verksmiðju, nota alls kyns skaðleg efni og fullt af vatni til að breyta henni í plast, lita plastið með enn fleiri skaðlegum efnum, móta það (sem hnífapör eða glös til dæmis), pakka því inn í meira plast, flytja það langar leiðir og nota til þess meiri olíu, keyra út í búð (enn meiri olía), kaupa plastið og setja í þriðja plastið, nú með höldum, bera heim, nota í tíu mínútur, henda í ruslið og ruslinu síðan í ruslatunnuna þaðan sem plastskeiðin okkar berst út í náttúruna þar sem hún eyðist seint og um síðir, kannski aldrei: allt þetta er talið minni fyrirhöfn en að vaska upp.

Plast eyðist kannski einhvern tíma í lífríkinu en það gerist bæði hægt og illa. Á Vísindavefnum stendur að flest plastefni brotni mjög lítið niður í náttúrunni þó þau eyðist á mjög löngum tíma fyrir áhrif sólarljóss. Og mörg plastefni tætast niður í örsmáar einingar sem smjúga inn í lífríkið gegnum þörunga og smádýr í sjónum en enda líka í maga sjávarfugla, skjaldbaka og fiska þar sem eiturefnin í þeim geta til dæmis valdið hormónatruflunum. Plastið og mengunin sem tengist því gengur síðan upp fæðukeðjuna og hefur á endanum áhrif á mannfólkið líka. Rannsóknir hafa sýnt að þessi plastmengun hefur áhrif á að minnsta kosti 267 dýrategundir í Kyrrahafinu einu saman. Báðum megin við tíu mínútna notkun á einni plastskeið er rask á náttúrujafnvægi sem teygir sig margar aldir í báðar áttir, og til skammtíma: vesen, mengun og rusl.

Það er langt síðan uppþvottavélin var fundin upp og slík finnst á flestum heimilum. Það er alveg ástæðulaust að leggja heilu vistkerfin í rúst til þess að sleppa við að skola og raða í nokkrar mínútur og taka svo úr og raða löngu eftir að veislan er búin. Það eru takmörk fyrir því hvað má leyfa sér að finnast leiðinlegt að vaska upp.






×