Skammaður fyrir björgunarleiðangur 13. október 2005 14:44
Farsakennt, hryggilegt, hættulegt. Þetta eru nokkur þeirra orða sem jafnt samherjar sem andstæðingar franska þingmannsins Didier Julia nota um síðasta uppátæki hans, för hans til Miðausturlanda á eigin vegum til að bjarga tveimur Frökkum sem og sýrlenskum bílstjóra þeirra sem öllum er haldið í gíslingu í Írak. Didier Julia er samherji Jacques Chirac Frakklandsforseta á franska þinginu en er þekktur fyrir að vilja fara sínu fram. Nú þykir hins vegar mörgum sem hann hafi gengið of langt. Julia ákvað að gera sitt til að frelsa gíslana sem hafa nú verið hálfan annan mánuð í haldi íraskra vígamanna. Hann tók sig til og hélt til Damaskus, höfuðborgar Sýrlands, upp á eigin spýtur, naut reyndar til þess aðstoðar Laurent Gbagbo, forseta Fílabeinsstrandarinnar, sem útvegaði honum flugvél sem flutti hann til Miðausturlanda. Julia sagðist telja að sambönd sín í Miðausturlöndum gætu nýst við að frelsa frönsku blaðamennina Christian Chesnot og Georges Malbrunot úr haldi. Enn sem komið er hafa tilraunir hans ekki borið árangur og ekki gert annað en að valda fjaðrafoki. Á föstudag tilkynnti Julia fréttamönnum að vígamenn hefðu samþykkt að sleppa gíslunum úr haldi og að þeir hefðu verið á leið til Sýrlands í bílalest þar til Bandaríkjamenn klúðruðu málum. Þingmaðurinn sagði að bandarískir hermenn hefðu skotið á bílalestina með gíslunum og þá hefðu vígamenn hætt við allt. Ekki leggja allir trúnað við þetta enda hjálpar ekki til að helsta samstarfsmanni hans, Philippe Brett, er lýst sem hraðlygnum náunga með skrautlegan feril að baki. Hann sagðist á föstudag hafa gíslana í augnsýn og vera að semja um lausn þeirra. Síðan hefur ekkert heyrst frá honum annað en að hann er kominn til Damaskus, en án gíslanna. Samherjar Julia vanda honum ekki kveðjurnar. Yves Censi, talsmaður UMP, flokks Julia, sagði tiltæki hans aumkunarvert og að því yrði best lýst sem farsa ef það væri ekki til þess fallið að gera stöðu gíslanna enn hættulegri. Sósíalistinn Laurent Fabius, fyrrum forsætisráðherra, sagði gjörðir Julia grátlegar og stórhættulegar. Julia fór frá Miðausturlöndum í gær, áleiðis til Parísar þar sem hann á að taka sæti á þingi í dag. Gíslarnir eru þó eftir sem áður í haldi vígamanna, líkt og áður en Julia lét til sín taka.
Erlent Fréttir Mest lesið Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Innlent Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi Innlent Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Innlent Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Erlent Björguðu hesti úr sjálfheldu í Skagafirði Innlent „Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Innlent Vonast til þess að ráðgátan um Lögréttutjöldin leysist Innlent „Þetta eru engar eðlilegar eða venjulegar dýraveiðar“ Innlent Karlmaður á þrítugsaldri lést í slysinu á Vesturlandsvegi Innlent Sextán ára reyndi að stinga lögguna af Innlent Fleiri fréttir Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Lést af náttúrulegum orsökum Bóluefni gegn flensu og Covid-19 langt á veg komið Macron veðjar á að Frakkar séu í áfalli Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns Mánaðarverkfalli í Færeyjum lýkur Setti sig í samband við ráðgjafa Biden til að mótmæla gagnrýni á AGD Öfgahægrið sækir í sig veðrið en miðjan heldur Forsætisráðherrann segir af sér Macron rýfur þingið og boðar til kosninga Benny Gantz hættur í þjóðstjórn Netanjahús Utanríkisráðherra Danmerkur krambúleraður eftir bátaslys Minnist ævintýragjarna og dásamlega mannsins síns „Allt sem gerist í Brussel snertir okkur“ Talið að lík Mosley sé fundið Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Árásarmaðurinn segist ekkert hafa á móti Mette Sjá meira