Kosningar 2007

Fréttamynd

Þrír háskólar vinni að vottun jafnra launa

Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra sem falið var að undirbúa vottun jafnra launa hér á landi leggur til að komið verði á laggirnir samvinnuverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík með það að markmiði að fá fyrirtæki til að afla sér vottunar á því að unnið sé með markvissum hætti að launajafnrétti kynjanna.

Innlent
Fréttamynd

Þriðjungur vill áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf

Stuðningur við ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna dalar frá síðustu könnun Fréttablaðsins. Fleira stuðningsfólk þessara tveggja flokka vill nú mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki en í könnun Fréttablaðsins í mars.

Innlent
Fréttamynd

Flokksmenn með og á móti hálendisvegum

Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir voru endurkjörin formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins á lokadegi landsfundar í gær. Hlaut Geir tæp 96 prósent greiddra atkvæða og Þorgerður rúmt 91 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Hlutu bæði rússneska kosningu í embætti

Landsfundi Sjálfstæðismanna lauk í dag með kosningum í miðstjórn flokksins og í embætti formanns og varaformanns. Bæði formaður og varaformaður flokksins fengu rússneska kosningu í embættin.

Innlent
Fréttamynd

Vill áframhaldandi umboð til að stýra ríkisstjórninni

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í ræðu sinni við fundarslit á landsfundi flokksins í dag að hann byði sig fram til að stýra ríkisstjórninni áfram og að hann væri sannfærður um að það myndi takast með stuðningi allra sjálfstæðismanna.

Innlent
Fréttamynd

Ómar og Margrét leiða Íslandshreyfinguna í Reykjavík

Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, og Margrét Sverrisdóttir, varaformaður flokksins, leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Flokkurinn tilkynnti um fimm eftstu sætin í kjördæmunum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Landsfundi Sjálfstæðisflokksins lýkur í dag

Landsfundi Sjálfstæðisflokksins lýkur í dag klukkan tvö með ræðu formannsins. Ályktanir í sex málaflokkum voru afgreiddar í gær þar sem meðal annars kom fram að flokkurinn ætlar á næstu misserum að fella niður stimpilgjöld, lækka skatta einstaklinga og fyrirtækja og einfalda skattkerfið.

Innlent
Fréttamynd

Mikilvægt að sjálfstæðismenn sýni samstöðu

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir mikilvægt að jálfstæðismenn komi einhuga fram í kosningabaráttunni og nái að taka þátt í myndun nýrrar ríkisstjórnar. Hann segir flokkinn ekki leggja til einkavæðingu í heilbrigðismálum, þótt heilbrigðisverkefni yrðu færð til einkaaðila.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin vill vera burðarafl í ríkisstjórninni

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var endurkjörin formaður Samfylkingarinnar til tveggja ára á landsfundi flokksins sem lauk rétt í þessu. Það kom í hennar hlut slíta landsfundinum. Hún sagði flokkinn fulkskapaðan og mikilvægt væri að hann yrði burðarafl í stjórnvaldi landsins, ríkisstjórninni.

Innlent
Fréttamynd

25 sækjast eftir 11 sætum í miðstjórn

Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri eru í hópi 25 manna sem bjóða sig fram til setu í miðstjórn flokksins á landsfundi sem fram hefur farið síðustu daga og lýkur á morgun. Kosið verður í miðstjórnina á morgun en ellefu manns eru kosnir í stjórnina á landsfundi.

Innlent
Fréttamynd

Vill þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum

Samfylkingin vill þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum og hyggst hrinda í framkvæmd aðgerðaáætlun gegn fátækt. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stjórnmálaályktun flokksins sem samþykkt var á landsfundi hans í dag.

Innlent
Fréttamynd

Monu Sahlin vel gætt

Monu Sahlin, leiðtoga sænskra jafnaðarmanna, er vel gætt en fjórir lífverðir fylgja henni hvert fótmál í heimsókn hennar hingað til lands. Öryggæsgsæsla ráðherra og stjórnmálaleiðtoga í Svíþjóð var hert verulega eftir morðið á Önnu Lindh utanríkisráðherra árið 2003.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin ætlar að breyta eftirlaunalögum

Samfylkingin ætlar að breyta lögum um eftirlaun ráðamanna komist flokkurinn í ríkisstjórn að loknum kosningum þannig að meira jafnræði komist á í lífeyrismálum ráðamanna og almennings. Formaður flokksins sagði í setningarræðu að eitt fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar yrði að taka Ísland af lista hinna viljugu þjóða.

Innlent
Fréttamynd

Ársreikningar samþykktir með 63 milljóna króna afgangi

Ársreikningar Samfylkingarinnar voru samþykktir á landsfundi flokksins í Egilshöll morgun með rúmlega 63 milljóna króna afgangi, sem gerir meira en standa undir afborgunum flokksins af langtímaskuldum að því er segir á heimasíðu flokksins. Sýnt er beint frá fundinum í dag svo og frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll..

Innlent
Fréttamynd

VG: Engar frekari stóriðjuákvarðanir

Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs beinir tilmælum til formanna stjórnarflokkanna og um leið iðnaðarráðherra að öllum undirbúningi og hvers kyns aðgerðum er tengjast stórvirkjunum og uppbyggingu frekari stóriðju verði hætt. Krafa stjórnar VG er að ekkert verði frekar aðhafst og engar frekari ákvarðanir teknar á þessu sviði fram yfir kosningar 12. maí nk. og þar til nýr þingmeirihluti og ný ríkisstjórn hefur tekið til starfa.

Innlent
Fréttamynd

Vænta mikils af samvinnu við Ingibjörgu

Mona Sahlin leiðtogi sænskra jafnaðarmanna og Helle Thorning-Schmidt leiðtogi danskra jafnaðarmanna segja að jafnaðarmenn á Norðurlöndum vænti mikils af samvinnu við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ef Samfylkingin kemst til valda á Íslandi. Þær eru sérstakir gestir á landsfundi flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Núverandi stjórn heldur velli

Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Íslandshreyfing missa fylgi samkvæmt nýjustu könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir RÚV. Framsóknarflokkurinn, Vinstri græn og Frjálslyndir juku við sig fylgi. Á meðan fylgi Baráttuhreyfingarinnar stendur í stað með 1% fylgi. Samkvæmt þessu munu stjórnarflokkarnir tveir mælast með 47% fylgi en Kaffibandalagið svokallaða vera með 49% fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin hefur sent heimilunum 38 milljarða reikning

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á landsfundi flokksins í Egilshöll í dag að ríkisstjórnin hefði sent heimilum landsins 38 milljarða króna reikning vegna verðbólgu og ofurvaxta á þessu ári.

Innlent