Innlent

Ársreikningar samþykktir með 63 milljóna króna afgangi

Dagskrá landsfundar Samfylkingarinnar í Egilshöll er þéttskipuð í allan dag. Í morgun voru ársreikningar Samfylkingarinnar samþykktir með rúmlega 63 milljóna króna afgangi, sem gerir meira en standa undir afborgunum flokksins af langtímaskuldum að því er segir á heimasíðu flokksins.

Samfylkingin ætlar að breyta lögum um eftirlaun ráðamanna komist flokkurinn í ríkisstjórn að loknum kosningum, þannig að meira jafnræði komist á í lífeyrismálum ráðamanna og almennings. Formaður flokksins sagði í setningarræðu að eitt fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar yrði að taka Ísland af lista hinna viljugu þjóða.

Landsfundurinn var settur í gær og stendur fram á sunnudag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins sagði í setningarávarpi sínu í gær að í landinu hefðu risið harðari deilur en dæmi væru um í langan tíma, deilur þar sem stjórnarflokkarnir væru í aðalhlutverki. Þar nefndi hún fjölmiðlamálið, olíusamráðið, Baugsmálið, einkavæðinguna og nú síðast auðlindamálið. Hún sagði að tvö mál væru eins og fleinn í holdi þjóðarinnar eftir stjórnartíð ríkisstjórnarinnar, Íraksmálið og eftirlaunamálið.

Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins er þétt dagskrá í dag. Skilafrestur til framboða til miðstjórnar rennur út klukkan 13 og þá hefjafst líka umræður og afgreiðsla ályktana.

 

Landsfundarhóf verður svo haldið í kvöld á Broadway.

Hjá Samfylkinginni verða umræður um ályktanir og niðurstöður starfshópa eftir hádegið. Kosning til formanns framkvæmdastjórnar verður kl. 13.00 -13.45 og kosning í framkvæmdastjórn þar á eftir.

Afgreiðsla ályktana og kosningastefnu hefst uppúr klukkan 15 og því næst kosning í flokksstjórn og verkalýðsráð.

Flokkarnir sýna beint frá landsfundunum sínum á netinu. Tenglar á útsendingarnar verða efst í hægri dálki á forsíðu vísir.is.

------

Dagskrá landsfundar Samfylkingarinnar í Egilshöll á vef flokksins

Dagskrá landsfundar Sjálfstæðismanna í Laugardalshöll á vef flokksins

Bein útsending frá landsfundi Samfylkingar



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×