Kosningar 2007

Fréttamynd

Ríkisstjórnin heldur naumlega velli samkvæmt könnun Capacent

Samfylkingin og Vinstri græn bæta við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar hins vegar og sömuleiðis Íslandshreyfingarinnar. Ríkisstjórnin heldur naumlega velli samkvæmt könnuninni.

Innlent
Fréttamynd

Áherslumál formanna stjórnmálaflokkanna

Formenn stjórnmálaflokkanna voru í kosningaþætti Stöðvar tvö í kvöld spurðir hvaða þrjú mál þeir myndu leggja mesta áherslu á strax að loknum kosningum. Svörin voru margvísleg eins og gefur að skilja.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking daðra

Formenn allra stjórnmálaflokkana komu saman í kvöld í lokaþætti kosningasjónvarps Stöðvar tvö. Bæði voru hringborðsumræður og síðan voru þeir hver og einn spurðir spjörunum úr í fimm mínútur í senn. Ingibjörg Sólrún sagðist tilbúin til setu í ríkisstjórn án þess að vera forsætisráðherra og álitsgjafar í Íslandi í dag sögðu Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna hafa verið að daðra við hvort annað.

Innlent
Fréttamynd

Rokkaður framboðsfundur

Ungir frambjóðendur brugðu á leik í Stúdentakjallaranum í gærkvöldi ásamt rokkhljómsveitunum Vicky Pollard og Vafasöm síðmótun. Óhætt er að segja að framboðsfundurinn hafi verið fremur óhefðbundinn því hljómsveitirnar voru óhræddar við að þagga niður í frambjóðendum með því að þenja rafmagnsgítarana ef þeir héldu orðinu of lengi.

Innlent
Fréttamynd

Vilja banna fjáraustur 90 dögum fyrir kosningar

Vinstri grænir boða frumvarp á komandi þingi sem bannar fjáraustur ráðherra og ríkisstjórnar síðustu níutíu dagana fyrir kosningar. Formaður flokksins segir ríkisstjórnina hafa gengið að göflunum undanfarnar vikur. Vinstri grænir vilja snúa við blaðinu í íslenskum stjórnmálum og kynntu tillögur sínar um græna framtíð, samfélag fyrir alla, kvenfrelsi og lýðræði í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fylgi flokka eftir kjördæmum

Hérna má sjá fylgi flokkanna skipt eftir kjördæmum. Í þeim kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn tapar manni í Reykjavík-Suður en stendur í stað eða bætir við sig í öðrum kjördæmum. Samfylkingin tapar manni í Reykjavík-Norður og Suðurkjördæmi en stendur í stað eða bætir við sig í öðrum kjördæmum. Framsókn tapar fylgi í öllum kjördæmum nema Suður og Vinstri grænir bæta við sig í öllum kjördæmum nema Norðausturkjördæmi.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin með 46,7% samkvæmt nýrri skoðanakönnun

Sjálfstæðisflokkurinn fær 38,1% fylgi og Samfylkingin 29,1% samkvæmt nýrri könnun sem Fréttastofa Stöðvar tvö hefur látið gera fyrir sig. Þá fær Vinstri hreyfing grænt framboð 16,2 % og Framsókn 8,6% fylgi. Frjálslyndi flokkurinn fær þá 5,2% og Íslandshreyfingin 2,7%. Baráttusamtökin reka síðan lestina með 0,1%.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn í sókn

Framsóknarflokkurinn er í stórsókn ef marka má nýja könnun Capacent Gallup sem sagt var frá í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Flokkurinn nálgast nú kjörfylgi sitt og mælist með tvöfalt meira fylgi en í Gallup könnun í fyrradag.

Innlent
Fréttamynd

Samið um kaup og þjálfun fimm blindrahunda

Skrifað var undir samkomulag milli ríkisins og Blindrafélagsins í morgun um kaup á fimm leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta. Það voru Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Halldór Sævar Guðbergsson, formaður Blindrafélagsins, sem undirrituðu samkomulagið í húsi Blindrafélagsins.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin naumlega fallin samkvæmt könnun Capacent

Ríkisstjórnin er naumlega fallin samkvæmt nýrri könnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Eftir því sem fram kemur á vef Morgunblaðsins eykst fylgi Framsóknar og Samfylkingarinnar frá könnun sem birt var í gær en fylgi Sjálfstæðisflokksins, Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og Frjálslynda flokksins minnkar.

Innlent
Fréttamynd

Merki sögð fengin að láni

Merki Íslandshreyfingarinnar er fengið að láni að mati prófessors í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Merkið er afar líkt vörumerki bandarísks hugbúnaðarfyrirtækis sem hefur verið starfandi síðan 1993. Einn viðskiptavina þess er álrisinn Alcoa.

Innlent
Fréttamynd

Tólf milljarða í menntun

Náist að auka menntunarstig þjóðarinnar um eitt ár á mann að meðaltali græðir ríkið fjörutíu milljarða á ári. Þetta segir Samfylkingin sem kynnti tólf milljarða króna fjárfestingarátak í menntun í dag.

Innlent
Fréttamynd

Nýjungar í kosningasjónvarpi Stöðvar 2

Kosningasjónvar Stöðvar tvö verður með glæsilegasta móti að þessu sinni. Boðið verður upp á nýjungar í framsetningu talna og annarra upplýsinga sem aldrei hafa sést í íslensku sjónvarpi áður.

Innlent
Fréttamynd

Yfir fjögur þúsund hafa kosið í Reykjavík

Rúmlega fjögur þúsund manns hafa kosið utan kjörfundar í Reykjavík. Kjósendur sem fréttastofan ræddi við í dag höfðu yfirleitt löngu gert upp hug sinn varðandi þann flokk sem þeir kusu.

Innlent
Fréttamynd

Ummæli Sivjar um ríkisstjórn D og S röng

Oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi segir rangt hjá Siv Friðleifsdóttur að hann hafi sagt á fundi að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eigi að mynda ríkisstjórn. Um óformlegt skens hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin aftur næst stærsti stjórnmálaflokkurinn

Samfylkingin er aftur orðin næst stærsti stjórnmálaflokkurinn, samkvæmt könnun Gallups fyrir Morgunblaðið, og hefur náð talsverðu forskoti á Vinstri græna. Könnunin er á lands vísu og fær Sjálfstæðisflokkur liðlega 40 prósent, Samfylkingin 23 og hálft prósent, Vinstri grænir rúmlega 17 og hálft, Framsóknarflokkur tíu prósent, Frjálslyndir fimm og hálft og Íslandshreyfingin 3,2 prósent. Samkvæmt könnuninni héldu stjórnarflokkarnir naumum meirihluta.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn tapar fylgi til VG í Kraganum

Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin halda sínu fylgi í Suðvesturkjördæmi en Framsókn tapar miklu fylgi yfir til vinstri grænna samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið.

Innlent
Fréttamynd

Spyr hvort kosningaloforð standist

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir spá Seðlabankans benda til minnkandi hagvaxtar á þessu ári og því næsta. Það bendi til samdráttar á árinu 2009. Enginn stjórnmálaflokkanna byggi heildstæða stefnumörkun í skattamálum, velferðarmálum eða opinberum fjárfestingum á þeirri sýn.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin rambar í Mannlífskönnun

Úrslit þingkosninganna í maí verða mjög tvísýn ef marka má nýja könnun Mannlífs sem birt er í nýjasta tölublaði tímaritsins sem kemur út á morgun. Könnunin nær til alls landsins og gangi þessi úrslit eftir eru ríkisstjórnarflokkarnir samtals með 31 þingmann og stjórnarandstaðan með 32.

Innlent
Fréttamynd

Velferðamálin mikilvægust

Fjörutíu prósent kjósenda í Reykjavíkurkjördæmi norður telja velferðamál vera mikilvægasta málefnið sem kosið verður um í komandi kosningum. Þetta kemur fram í könnun sem unnin var af Félagsvísindastofnun fyrir fréttastofu Stöðvar 2.

Innlent
Fréttamynd

Forsætisráðherra ber fullt traust til forseta Íslands

Geir H Haarde forsætisráðherra segist bera fullt traust til forseta Íslands þurfi forsetinn að koma að því að mynda ríkisstjórn að loknum kosningum. En höfundur Reykjavíkurbréfs hefur áhyggjur af því að forsetinn muni beita sér fyrir myndun vinstristjórnar, komist hann í aðstöðu til þess.

Innlent
Fréttamynd

Baráttusamtökin hætt við að bjóða fram

Baráttusamtök aldraðra og öryrkja eru hætt við að bjóða fram í komandi alþingiskosningum. María Óskarsdóttir, efsti maður á lista framboðsins í Norðausturkjördæmi, staðfesti þetta fyrir nokkrum mínútum.

Innlent
Fréttamynd

Áhyggjur af hlutdrægni spyrla RUV

Margrét Sverrisdóttir frambjóðandi Íslandshreyfingarinnar til Alþingis hefur áhyggjur af því sem hún kallar einsleitan hóp spyrla á Ríkissjónvarpinu. Hún segir þá flesta eiga sér fortíð í samtökum hægrimanna sem tengjast Sjálfstæðisflokknum.

Innlent