Innlent

Baráttusamtökin hætt við að bjóða fram

Björn Þorláksson skrifar
Arndís Björnsdóttir, formaður Baráttusamtaka aldraðar og öryrkja.
Arndís Björnsdóttir, formaður Baráttusamtaka aldraðar og öryrkja. MYND/HH

Baráttusamtök aldraðra og öryrkja eru hætt við að bjóða fram í komandi alþingiskosningum. María Óskarsdóttir, efsti maður á lista framboðsins í Norðausturkjördæmi, staðfesti þetta fyrir nokkrum mínútum.

Að sögn Maríu er skýringin sú að ekki er fjárhagslegur grundvöllur fyrir því að bjóða fram. Hún segir að þetta séu mikil vonbrigði.

Upprunalega ætluðu samtökin að bjóða fram lista í öllum kjördæmum fyrir komandi kosningar. Vegna veikinda og misskilnings náðu samtökin hins vegar bara að skila inn framboðslista í Norðausturkjördæmi áður en frestur rann út.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×