Innlent

Fylgi flokka eftir kjördæmum

Jónas Haraldsson skrifar
Norðausturkjördæmi.
Norðausturkjördæmi. GRAFÍK/Stöð 2
Hérna má sjá fylgi flokkanna skipt eftir kjördæmum. Í þeim kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn tapar manni í Reykjavík-Suður en stendur í stað eða bætir við sig í öðrum kjördæmum. Samfylkingin tapar manni í Reykjavík-Norður og Suðurkjördæmi en stendur í stað eða bætir við sig í öðrum kjördæmum. Framsókn tapar fylgi í öllum kjördæmum nema Suður og Vinstri grænir bæta við sig í öllum kjördæmum nema Norðausturkjördæmi.
Hérna má sjá fylgi flokkanna í Norðvesturkjördæmi.
Í Norðvesturkjördæmi eru Vinstri grænir þeir einu sem bæta við sig fylgi.
Hérna má sjá fylgið í Reykjavík-Norður.
Í Reykjavík-Norður bætir Sjálfstæðisflokkur við sig einum manni en Vinstri grænir tveimur.
Hérna má sjá fylgið í Reykjavík-Suður.
Í Reykjavík-Suður komast Frjálslyndir inn með mann og Vinstri grænir bæta einum manni við sig.
Hérna sést fylgið í Suðurkjördæmi.
Í Suðurkjördæmi bæta Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir við sig einum hver.
Hérna sést fylgið í Suðvesturkjördæmi.
Í Suðvesturkjördæmi bætir Sjálfstæðisflokkur við sig einum manni og Vinstri grænir tveimur mönnum.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×