Fótbolti á Norðurlöndum

Fréttamynd

Guðmundur gerir það gott

Sænska knattspyrnuliðið Skövde tryggði sér á laugardag sæti í þriðju efstu deild þar í landi, en þjálfari liðsins er Guðmundur Ingi Magnússon, fyrrum leikmaður Víkings hér á landi. Guðmundur hefur búið í Svíþjóð undanfarin ár en hann varð meðal annars Íslandsmeistari með Víkingum árið 1991.

Fótbolti
Fréttamynd

Brann lagði Odd Grenland

Síðasti leikurinn í 22. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í kvöld. Íslendingalið Brann vann þar 1-0 sigur á Odd Grenland og þar spilaði FH-ingurinn Ármann Smári Björnsson sinn fyrsta leik fyrir norska félagið. Hann spilaði allar 90 mínúturnar líkt og Ólafur Örn Bjarnason, en Kristján Sigurðsson var í leikbanni að þessu sinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Rosenborg í efsta sætinu

Rosenborg jók forskot sitt á toppi norsku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið bar sigurorð af Íslendingaliði Lyn 2-1. Stefán Gíslason og Indriði Sigðurðsson voru báðir í byrjunarliði Lyn í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Allt vitlaust eftir leik FCK og Bröndby

FC Kaupmannahöfn komst í dag á toppinn í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 1-0 sigri á grönnum sínum í Bröndby. Hannes Sigurðsson spilaði allan leikinn með Bröndby en til óláta kom milli stuðningsmanna liðanna í kvöld og loga nú slagsmál á fleiri en einum stað í borginni að sögn dönsku lögreglunnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Vonlítið hjá Norrköping

Garðar Gunnlaugsson, Stefán Þórðarson og félagar í Norrköping töpuðu í gær þýðingarmiklum leik í sænsku 1. deildinni. Liðið á í mikilli keppni við Örebro um þriðja sætið í deildinni sem veitir umspilsrétt um úrvalsdeildarsæti og mættust liðin á heimavelli Norrköping.

Fótbolti
Fréttamynd

Létu mikið að sér kveða

Íslenskir leikmenn settu mark sitt á norska boltann um helgina en Marel Baldvinsson og Veigar Páll Gunnarsson voru báðir á skotskónum. Marel opnaði markareikning sinn hjá Molde með því að skora fyrra mark liðsins í 2-0 sigri á Lilleström. Sigurinn var afar dýrmætur því með honum kom Molde sér af mesta fallsvæðinu. Veigar Páll heldur áfram að spila eins og engill og í gær skoraði hann sigurmark Stabæk gegn Fredriksstad þar sem lokatölur urðu 3-2.

Fótbolti
Fréttamynd

Óvænt úrslit í bikarnum

Mjög óvænt úrslit urðu í norsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld þegar lið Sandefjord burstaði Rosenborg 5-2 á útivelli og tryggði sér þar með sæti í úrslitum keppninnar. Sandefjord mætir Fredrikstad í úrslitaleik, en Fredrikstad lagði Start í hinum undanúrslitaleiknum í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Mínus tvö stig í síðustu fimm leikjum

Eftir afar gott gengi í fyrri hluta móts í sænsku úrvalsdeildinni hefur Stokkhólmsliðið Hammarby ekki náð sér á strik á undanförnum vikum. Auk þess sem leikur liðsins gegn Djur­gården var blásinn af í síðasta mánuði vegna óláta áhorfenda hefur liðið nú ekki unnið síðustu fimm leiki í röð og tapað fjórum þeirra. Hammarby var lengi vel í efsta sæti deildarinnar framan af sumri en er nú fallið í sjötta sæti. Til að bæta gráu á svart voru þrjú stig dregin af liðinu vegna fyrrnefndra óláta.

Fótbolti
Fréttamynd

Verð ef til vill í Færeyjum næsta sumar

Landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir heldur áfram að gera það gott í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hún leikur með Malmö. Um helgina skoraði hún bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli gegn Linköping á útivelli. Hún er markahæst í deildinni ásamt öðrum leikmanni og hefur skorað 17 mörk.

Fótbolti
Fréttamynd

Íslendingarnir á skotskónum

Nokkrir leikir fóru fram í norska boltanum í dag og þar komu Íslendingar nokkuð við sögu. Eskfirðingurinn Stefán Gíslason skoraði mark Lyn þegar liðið gerði jafntefli við Odd Grenland og þá skoraði Birkir Bjarnason sitt fyrsta mark fyrir Viking frá Stavangri þegar liðið lagði Stabæk 3-1. Veigar Páll Gunnarsson var ekki í liði Stabæk þar sem hann tók út leikbann. Ólafur Örn Bjarnason skoraði eitt marka Brann sem burstaði Sandefjörd 5-3. Önnur úrslit má sjá á Boltavaktinni hér á síðunni.

Fótbolti
Fréttamynd

Tveir leikir í kvöld

Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hjálmar Jónsson var í liði IFK frá Gautaborg sem vann góðan 4-1 útisigur á Häcken og Emil Hallfreðsson spilaði síðasta hálftímann þegar lið hans Malmö tapaði 3-1 á útivelli fyrir Helsingborg. IFK Gautaborg er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig, en Malmö er í því fjórða með 28 stig.

Fótbolti
Fréttamynd

Tippaði á sigur Dana á norsku Lengjunni

Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt sleit fyrir skömmu krossbönd í hné og verður frá næstu 6-8 mánuðina. Hann lék með FH í þrjú ár og var tvívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins. Í fyrra fór hann til Noregs og samdi við 1. deildarliðið Bryne, þar sem hann hefur slegið í gegn og er markahæsti leikmaður liðsins með níu mörk.

Fótbolti
Fréttamynd

Æfir með Malmö í viku

Þórhildur Stefánsdóttir, fimmtán ára leikmaður með HK, mun síðar í mánuðinum halda til Svíþjóðar þar sem hún mun æfa með unglingaliði Malmö í eina viku en aðallið félagsins leikur í sænsku úrvalsdeildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Stokkhólmsslagurinn leystist upp

Fimmtán þúsund manns mættu á Stokkhólmsslag Hammarby og Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í fyrrakvöld en flauta varð leikinn af á 55. mínútu þar sem áhorfendur skutu blysum og flugeldum inn á völlinn og réðust nokkrir þeirra inn á sjálfan völlinn og veittust að leikmönnum og dómurum.

Fótbolti
Fréttamynd

Hélt ég myndi aldrei losna við meiðslin

Sölvi Geir Ottesen knattspyrnumaður var heldur óvænt í byrjunarliði Svíþjóðar­meistara Djurgården þegar liðið mætti Hammarby í leik í sænsku úrvalsdeildinni í fyrrakvöld. Hann er nýstiginn upp úr erfiðum meiðslum þar sem hann sleit krossbönd í hné en reyndar hefur hann nánast sleitulaust verið meiddur síðan hann gekk til liðs við félagið fyrir rúmum tveimur árum síðan.

Fótbolti
Fréttamynd

Fær tveggja leikja bann

Sænski framherjinn Henrik Larsson hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd sænska knattspyrnusambandsins eftir að hafa slegið til andstæðings síns í leik með Helsingborg um síðustu helgi. Larsson átti á tíma yfir höfði sér lögreglukæru vegna þessa, en fallið var frá þeim áformum.

Fótbolti
Fréttamynd

Vill burt frá Stoke City

Hannes Þ. Sigurðsson staðfesti við Fréttablaðið í gær að hann vilji fara frá Stoke City sem leikur í ensku 1. deildinni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa norsk lið mikinn áhuga á að klófesta kappann.

Fótbolti
Fréttamynd

Larsson sleppur með skrekkinn

Sænski framherjinn Henrik Larsson verður ekki ákærður fyrir líkamsárás eftir að sannað þótti að hann hefði kýlt andstæðing sinn í leik með Helsingborg um síðustu helgi. Saksóknari tilkynnti þetta í dag, en Larsson á hinsvegar enn yfir höfði sér leikbann að hálfu sænska knattspyrnusambandsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Stefán fór á kostum hjá Lyn

Stefán Gíslason var hetja Lyn í kvöld þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Lilleström á heimavelli sínum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Stefán skoraði tvö marka Lyn og það síðara var jöfnunarmark liðsins í uppbótartíma. Indriði Sigurðsson var einnig í liði Lyn, en leikmenn Lilleström voru manni færri allan síðari hálfleikinn og komust raunar í 3-1 í leiknum áður en Stefán tók til sinna ráða í lokin.

Fótbolti
Fréttamynd

Beðið eftir niðurstöðu læknisskoðunar

Enn er óvíst hvort markahæsti leikmaður Landsbankadeildar karla í knattspyrnu, Marel Baldvinsson í Breiðablik, gangi í raðir norska liðsins Molde. Hann gekkst nú síðdegis undir læknisskoðun hjá norska félaginu. Í kjölfarið skrifaði hann svo undir tveggja og hálfsárs samning en er þessa stundina í flugvél á leið aftur heim til Íslands.

Fótbolti
Fréttamynd

Ari fór beint í byrjunarliðið

Valsmaðurinn Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði BK Häcken er liðið mætti Malmö FF í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Ari gekk til liðs við félagið fyrir aðeins fáeinum vikum síðan og má því segja að hann hafi farið beint í byrjunarlið félagsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Larsson kærður fyrir líkamsárás?

Framherjinn knái, Henrik Larsson hjá sænska liðinu Helsingborg, gæti átt yfir höfði sér lögreglukæru fyrir líkamsárás eftir að sannað þykir að hann hafi kýlt mótherja sinn í magann í bikarleik Helsingborg og Elfsborg í gær. Leikmaðurinn sem varð fyrir högginu þurfti að fara meiddur af velli í kjölfarið.

Fótbolti
Fréttamynd

Óvíst hvað tekur við í haust

Hafnfirðingurinn Emil Hallfreðsson hefur staðið sig vel hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö í ár en hann kom til liðsins um áramótin. Þangað var hann lánaður frá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham sem hann er samningsbundinn. Hvað tekur við í haust er enn í lausu lofti en að öllu óbreyttu heldur hann aftur til Tottenham þegar tímabilið í Svíþjóð er búið.

Fótbolti
Fréttamynd

Ég smellpassa inn í Norrköping

Sóknarmaðurinn Garðar Gunnlaugsson gekk í raðir sænska liðsins Norrköping fyrir skömmu og er að koma sér fyrir þar ytra. Hann hefur farið vel af stað í sænska boltanum og skorað tvö mörk í þeim þremur leikjum sem hann hefur leikið til þessa. Hann var ekki lengi að finna fjölina og segist smellpassa inn í liðið.

Fótbolti
Fréttamynd

Indriði Sigurðsson farinn frá KR

Indriði Sigurðsson leikur ekki með KR á þessu ári. Indriði hefur samið við Oslóarfélagið SFK Lyn og heldur utan í fyrramálið. Frá þessu er greint á heimasíðu KR.

Fótbolti
Fréttamynd

Útsendarar enskra liða fylgdust með Veigari

Norskir fjölmiðlar greina frá því í dag að útsendarar þriggja enskra úrvalsdeildarfélaga hafi fylgst með Veigari Páli Gunnarssyni í gærkvöld þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3-1 sigri Stabæk á Tromsö í norsku úrvalsdeildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Veigar á skotskónum í sigri Stabæk

Veigar Páll Gunnarsson skoraði síðasta mark norska liðsins Stabæk í 3-1 sigri þess á Tromsö í leik kvöldsins í norska boltanum. Veigar átti auk þess þátt í öðru marki liðsins og er markahæsti leikmaður deildarinnar um þessar mundir. Stabæk er í öðru sæti deildarinnar.

Fótbolti