Fótbolti

Larsson kærður fyrir líkamsárás?

Henrik Larsson fagnar hér marki fyrir Barcelona á síðustu leiktíð, en hann er farinn að láta finna fyrir sér í heimalandinu núna - í bókstaflegri merkingu
Henrik Larsson fagnar hér marki fyrir Barcelona á síðustu leiktíð, en hann er farinn að láta finna fyrir sér í heimalandinu núna - í bókstaflegri merkingu NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn knái, Henrik Larsson hjá sænska liðinu Helsingborg, gæti átt yfir höfði sér lögreglukæru fyrir líkamsárás eftir að sannað þykir að hann hafi kýlt mótherja sinn í magann í bikarleik Helsingborg og Elfsborg í gær. Leikmaðurinn sem varð fyrir högginu þurfti að fara meiddur af velli í kjölfarið.

Sænski saksóknarinn sem hefur málið undir höndum segir að málið verði rannsakað frekar og bendir á að fara verði eftir sömu lögum og reglum á knattspyrnuvöllum eins og úti á götu og því verði að finna lausn á þessu máli hið snarasta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×