Fótbolti

Hélt ég myndi aldrei losna við meiðslin

Sölvi Geir Ottesen
Sölvi Geir Ottesen

Sölvi Geir Ottesen knattspyrnumaður var heldur óvænt í byrjunarliði Svíþjóðar­meistara Djurgården þegar liðið mætti Hammarby í leik í sænsku úrvalsdeildinni í fyrrakvöld. Hann er nýstiginn upp úr erfiðum meiðslum þar sem hann sleit krossbönd í hné en reyndar hefur hann nánast sleitulaust verið meiddur síðan hann gekk til liðs við félagið fyrir rúmum tveimur árum síðan.

En fyrsti leikur Sölva var skrautlegur í meira lagi þar sem flauta þurfti leikinn af eftir 55 mínútna leik. "Þarna trylltust stuðningsmenn Hammarby eftir að við höfðum pakkað þeim saman í fyrri hálfleik," sagði Sölvi við Fréttablaðið en staðan í leiknum var þá orðin 3-0 fyrir Djurgården.

"Þetta var reyndar ekki í fyrsta sinn sem ég er í byrjunarliðinu en í fyrsta sinn á þessu tímabili. Ég hef reyndar verið nánast alltaf meiddur síðan ég kom til félagsins og hef aldrei náð að koma mér í almennilegt form nema í smá tíma í fyrra þegar ég náði að vinna mér sæti í landsliðinu. En þá gekk liðinu svo vel að það var erfitt að ætla að breyta því eitthvað."

Sölvi hafði fyrir leikinn spilað einn og hálfan leik með varaliði félagsins en hann fékk tækifæri í aðalliðinu þar sem einn miðvörður liðsins reif nýverið liðþófa. "Það opnaði pláss fyrir mig í liðinu og býst ég ekki við öðru en ég haldi mínu sæti í einhvern tíma. Það var gott að halda hreinu í leiknum og mjög gott að ná að skora þrisvar í leiknum því okkur hefur ekki gengið vel í sumar. Ég kem svo núna heim og spila með U-21 landsliðinu. Þetta er því allt að byrja að rúlla hjá mér á nýjan leik."

Sölvi segir að þrátt fyrir meiðslin hafi hann aldrei hugleitt að koma aftur heim. "Maður fer þó ósjálfrátt að hugsa hvort maður verði einn af þessum leikmönnum sem eru alltaf meiddir. En nú fær maður tækifæri til að reyna að ná sínum markmiðum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×