Fréttaskýring: Hver lćtur eftirlýstan mann flytja inn 200 kg af fíkniefnum?

Vísir Innlent 24. febrúar 2009 15:10
Ţorsteinn Kragh viđ ađalmeđferđ
Ţorsteinn Kragh viđ ađalmeđferđ MYND/GVA
Breki Logason skrifar:

Ákæruvaldið fer fram á 10 ára fangelsisdóm hið minnsta yfir Þorsteini Kragh og Jacobi Van Hinte fyrir að skipuleggja og flytja inn tæplega 200 kíló af kannabisefnum og tæpt 1 ½ kíló af kókaíni. Verjandi Þorsteins fer fram á að hann verði sýknaður en verjandi hollendingsins telur hæfilega refsingu vera 6-7 ár hið mesta. Hann segir ennfremur að 10 ára fangelsisdómur yfir rúmlega sjötugum manni sé í raun lífstíðardómur. Vísir fylgdist með aðalmeðferð í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Eftirlýstur af Interpol
Jacob Van Hinte er hollenskur ríkisborgari fæddur árið 1938. Hann hefur meðal annars búið á Ibiza á Spáni en er nú með lögheimili í húsbíl sem hann kom á hingað til lands 10.júní 2008. Hann segist vera ellilífeyrisþegi sem reyndar hafi haft tekjur af því að selja afríska skrautmuni. Ástæða þess að Jacob var stöðvaður við komuna hingað til lands var sú að nafn hans skar sig úr á farþegalista ferjunnar. Lögregla hafði farið yfir listann og séð að Jacob var eftirlýstur af Interpol fyrir smygl á 800 kg af kannabisefnum til Spánar árið 2005. Fyrir það hlaut Jacob tæplega fjögurra ára fangelsisdóm en sat einungis í fangelsi í 9 mánuði.

Þrátt fyrir mikla leit í húsbíl Jacobs fundust engin fíkniefni. Hundar á vegum lögreglu létu þó ófriðlega og á endanum vísaði Jacob sjálfur lögreglu á efnin. Þau voru falin í sérútbúnum hólfum undir innréttingu sem var í lofti bifreiðarinnar. Einnig var þar að finna átta áfengisflöskur.

Jacob játaði fyrir dómi að hafa flutt inn umrædd fíkniefni en segist ekki hafa vitað af kókaíninu og hann sé í raun mjóg á móti sterkum fíkniefnum. Ákæruvaldið telur þó framburð hans afar ótrúverðugan og hefur hann margítrekað breytt honum. Fyrst segir Jacob að menn sem heiti Jim og Bill hafi skipulagt smyglið. Síðan breytir hann frásögn sinni og dregur Þorstein Kragh inn í málið.

Segir hann þá hafa margoft hist á fundum í Amsterdam þar sem smyglið var skipulagt og Þorsteinn hafi útvegað efnin með því að hafa skilið sendibifreið með efnunum eftir í bílastæðahúsi í Hollandi. Þeir hafi síðan pakkað efnunum en hann hafi ekki farið til Íslands fyrr en 6-8 vikum eftir það, þá tímasetningu hafi Þorsteinn ákveðið. Hann sagðist einnig hafa farið aðra ferð fyrir Þorstein á árinu 2007. Þessu lýsti Jacob nokkkuð ítarlega hjá lögreglu.


Þorsteinn gengur undir dulnefninu Kimmi hjá Jacobi og meðal annars lýsti hann Þorsteini sem manni sem væri 170cm á hæð, dökkhærður með hárið greitt aftur, fínn náungi og rólegur í fasi. Einnig benti hann á mynd af Þorsteini hjá lögreglu og sagði þetta vera Kimma. Fyrir smyglið átti Jacob að fá 40 þúsund evrur.



Jacob Van Hinte viđ ađalmeđferđ ásamt túlki sínum
Jacob Van Hinte viđ ađalmeđferđ ásamt túlki sínum GVA

Ekkert finnst um Terracotta

Jacob losnar síðan úr gæsluvarðhaldi þann 28.ágúst og Þorsteinn þann 3.september. Eftir þann tíma hefur Jacob samband við lögmann sinn og síðar lögreglu og segist vilja breyta framburði sínum. Þá dregur hann áðurnefnda Jim og Bill aftur inn og segir þá hafa skipulagt smyglið. Þeir séu hættulegir menn sem hann óttist og hann hafi ekki viljað bendla þá við málið í upphafi heldur gefa góða sögu með því að draga Þorstein inn í málið. Við þá sögu hélt Jacob sig við við aðalmeðferð málsins.

Ástæðu þess að Jacob dregur Þorstein inn í málið segir hann hafa verið þá að Þorsteinn sé sá eini sem hann hafi þekkt hér á landi. Í fyrstu sagðist Þorsteinn ekkert þekkja Jacob en mikið púður fór í að tengja þá saman. Síðar viðurkennir Þorsteinn að hafa hitt Jacob þegar hann átti að taka á móti 25 húsbílum sem áttu að koma hingað til lands árið 2007. Ekkert finnst um Terracotta.

Þorsteinn segir að ferðaskrifstofa að nafni Terracotta hafi haft samband við sig og beðið hann um að taka á móti fólkinu sem ætlaði að dvelja hjá honum í 7-10 daga og nota gufubað sem hann rak á Laugarvatni. Þegar hann hafi síðan mætt á hafnarbakkann á Seyðifirði hefði Jacob verið sá eini sem hefði komið. Þeir hafi síðan farið áleiðis til Reykjavíkur og stoppað á Djúpavogi og snætt saman hádegisverð.

Jacob hafi verið mikill áhugamaður um stjörnuspeki og Þorsteinn hafi ætlað að láta útbúa fyrir hann stjörnukort. Þorsteinn segist ekki hafa viljað hafa frekari afskipti af Jacobi fyrr en restin af hópnum væri komin. Það hafi hinsvegar ekki gerst en hann hafi hitt hann einu sinni eftir þetta á kaffiteríunni í World Class Laugum.

Upplýsingar um Terracotta ferðaskrifstofuna haf aldrei fundist þrátt fyrir mikla leit lögreglu en Þorsteinn segir ástæðu þess að hann sjálfur hafi engar upplýsingar vera þá að hann hafi ekki verið nettengdur á þessum tíma og því hafi hann skrifað allt niður sem nú væri glatað. Enginn hefur staðfest að umræddir húsbílarhafi átt að koma hingað til lands. Að bróður Þorsteins undanskildum.

Í máli lögreglumanna fyrir dómi sem sáu um skýrslutökur yfir mönnunum kemur fram að Jacob hefði breyst mikið þegar hann breytti framburði sínum. Hann hafi vart getað horft í augu lögreglumannanna þegar hann dró Þorstein út úr málinu og hefði verið mjög hikandi. Töldu þeir þann framburð mjög ótrúverðugan.

Stóra símamálið

Rannsókn lögreglu beindist að miklu leyti að símanúmerum sem eiga að tengja mennina saman. Í síma Jacobs fannst númer undir nafninu Kimmi sem er frelsisnúmer og var frekar lítið notað. Lögregla lét hinsvegar gera veigamikla rannsókn þar sem sími Þorsteins og umrædds númers voru rakin saman. Í stuttu máli var niðurstaða rannsóknarinnar að nær útilokað er talið að sitthvor aðilinn hafi átt umrædd símanúmer. Á einu ári sem rannsóknin náði yfir voru símarnir nær alltaf á sömu sendum. Þegar Jacob var handtekinn var hætt að nota umrætt númer. Sá sími hefur þó aldrei fundist.

Skýringarnar sem Þorsteinn gaf fyrir rétti voru meðal annars þær að hann væri gjarn á að taka puttalinga upp í bifreið sína en ákæruvaldinu fannst ótrúverðugt að þeir puttalingar myndu allir nota sama símanúmer. Einnig var engin notkun á símanum þegar Þorsteinn fór erlendis.

Í síma Þorsteins og umræddum síma voru einnig svipaðar talhólfskveðjur með álíkum röddum. Einnig var sama PIN númer á símunum, 6969. Einnig var fylgst með Þorsteini eftir að Jacob var handtekinn. Þá fer hann meðal annars til Amsterdam og benti sækjandi á að Þorsteinn hefði notað símaklefa þar, þrátt fyrir að vera með a.m.k þrjá farsíma í notkun.

Símagögnin virðast styðja fyrri frásögn Jacobs þegar þau eru borin saman við þau tímabil sem þeir hittust á fundum í Amsetrdam og annað. Á árinu 2008 var leynisímanúmerið mikið notað.

Við rannsókn lögreglu var einnig lögð rík áhersla á að tengja Þorstein nafninu Rabbit og þar með Jacobi. Í síma Þorsteins var svokallaður Reminder eða áminning þann 17.janúar árið 1938 undir nafninu Rabbit, en það er fæðingardagur Jacobs. Einnig var símanúmer Jacobs í tölvu Þorsteins undir nafninu Rabbit. Sem þykir renna stoðum undir að Jacob hafi gengið undir þessu nafni hjá Þorsteini.



Ţorsteinn Kragh leiddur fyrir dómara og dćmdur í gćsluvarđhald.
Ţorsteinn Kragh leiddur fyrir dómara og dćmdur í gćsluvarđhald. Anton Brink

Peningar í pokum

Rannsókn lögreglu beindist einnig nokkuð að fjármálum Þorsteins. Þau sýna að Þorsteinn hafi haft bolmagn til þess að fjármagn umrædd fíkniefnakaup en hann hafi m.a lánað milljónir án kvittana og keypt sig inn í félög. Einnig hafi hann ekki millifært fé í banka eins og venjan sé og dæmi séu um að hann hafi afhent peninga í pokum.

Þorsteinn hefur játað skattalagabrot fyrir dómi auk þess sem hann hefur sagst hafa falsað miða á tónleika sem hann hefur haldið í gegnum árin. Það gerði hann með því að selja svokallað boðsmiða. Í ljósi þessara játninga hefur fjármálum Þorsteins verið vísað til skattarannsóknarstjóra.

Sáum það á netinu

Einnig kom fram að Jacob hafi hringt í ónefnda konu þegar hann var laus úr gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. Það símtal hafi verið hlerað en skilaboðin frá Jacobi hafi verið að segja Anat að hinn gæjinn hafi verið tekinn líka. Sagði konan þá að þær Anat vissu það, þar sem þær hafi séð það á netinu. Bæði Jacob og Þorsteinn hafa sagst þekkja umrædda Anat.
10 ár í raun lífstíðardómur

Í máli sækjandi kom einnig fram að Þorsteinn hafi í mörg ár verið bendlaður við fíkniefnaviðskipti. Ábendingar frá fólki sem hefur ekki viljað láta nafns síns getið hafi borist lögreglu þar sem Þorsteinn var sagður selja fíkniefni. Einnig hlaut hann dóm árið 1985 fyrir að flytja inn 1 kg af hassi ásamt ónafngreindri konu. Hassið hafði konan innanklæða og kom með frá Amsterdam í gegnum Lúxemborg.

Líkt og áður segir er farið fram á 10 ára fangelsisdóm yfir báðum aðilum hið minnsta. Rökstuðningurinn fyrir þeirri refsingu er meðal annars talinn vera hversu einbeittur brotavilji mannanna hafi verið. Þeir hafi skipulagt smyglið í marga mánuði og látið sérútbúa húsbíl til verksins. Einnig er bent á hversu mikið magn sé um að ræða en þetta er stærsti kannabisfundur í sögunni hér á landi.

Verjandi Jacobs telur hæfilega refsingu vera 6-7 ár en vill ekki meina að hann hafi vitað af kókaíninu sem var í bifreiðinni. Það hafi hann sagt strax í upphafi. Einnig snérist málflutningur hans að miklu leyti um að Jacob hefði ekki pakkað efnunum og því ekki vitað hvað var í ógegnsæjum pakkningunum. Einnig vill hann að húsbifreið Jacobs verði ekki gerð upptæk því hún sé í raun lögheimili hans. Hann sagði einnig að 10 ára fangelsisdómur yfir sjötugum manni væri í raun lífstíðardómur.



Helgi Jóhannesson verjandi Ţorsteins.
Helgi Jóhannesson verjandi Ţorsteins. GVA

Stjörnulögfræðingur heldur uppi vörnum

Helgi Jóhannesson verjandi Þorsteins Kragh var í miklu stuði þegar kom að því að halda uppi vörnum. Helgi er hvað þekktastur fyrir að hafa varið Kio Alexander Briggs sem sýknaður var af e-töflu innflutningi á tíunda áratug síðustu aldar. Hann hafði engu gleymt.

Í máli sínu byrjaði hann á því að ítreka athugasemdir sínar á rannsókn málsins sem hann sagði að væri í raun meingölluð. Hann benti á að Þorsteinn hefði í 156 skipti fengið rannsóknargögn of seint í hendurnar. Þetta telur Helgi meðal annars að geti sýknað Þorstein. Hann segir þennan dóm gefa fordæmi í þessu máli og sé í raun nokkurskonar öryggisventill.

Hann velti síðan fyrir sér um hvað málið snérist. Hann sagði 20 ára gamlan fangelsisdóm Þorseins ekki koma málinu neitt við og hvað þá hvað Þorsteinn hefði gert á árinu 2007. Það væri í raun ekki til umræðu.
Um fjármál Þorsteins sagði Helgi að fáránlegt væri að halda því fram að hann hafi fjármagnað umrædd fíkniefnakaup vegna þess að hann hefði haft fjárhagslegt bolmagn til þess. Það væru líklega margir staddir í réttarsalnum sem hefðu fjárhagslegt bolmagn til þess. Hann sagði það aldrei hafa verið refsivert að eiga peninga í banka auk þess sem engir peningar hefðu verið millifærðir í tengslum við umræddan fíkniefnainnflutning.

Jólin í „reminder"

Hann sagði að ekki væri hægt að loka mann inn í fangelsi útfrá einhverjum „spekúlasjónum" og benti á að framburður Jacobs hefði verið dreginn tilbaka og því væri ekki hægt að byggja á honum. Einnig væru vangaveltur um þetta símanúmer út í hött. Aldrei hefði verið sannað að Þorsteinn hefði átt umræddan síma, þrátt fyrir 5 húsleitir á heimili hans þar sem ekkert hefði fundist.

Hann sagði rannsókn lögreglu á samanburði huldunúmersins og síma Þorsteins vera gallaða. Tölfræði væri notuð þegar ekki lægi 100% sönnun fyrir, í lögfræði þyrfit hinsvegar 100% sönnun. Um samskonar PIN númer sagði Helgi að fróðlegt væri að gera rannsókn á því hve margir væru með PIN númerið 6969 eða 123 eða 007 „eða eitthvað svipað sem auðvelt er að muna".

Hann benti einnig á að sá sem ætti von á 200 kílóum af hassi hingað til lands myndi ekki setja það í Reminder á símann sinn. Sagði hann það svipað því að minna sig á Jólin.

Einnig benti Helgi á að ef Þorsteinn hefði ætlað að flytja inn umrædd fíkniefni hefði maður sem eftirlýstur er af Interpol líklega verið síðasti maðurinn sem hann hefði fengið til verksins.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 24. maí. 2012 21:28

Búinn ađ skila međmćlendalista

„Viđ erum búin ađ skila međmćlendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóđ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:34

Verjandi líkti al-Thani málinu viđ mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöđu sakborninga ţess ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:30

Björk fékk Webby verđlaunin

Björk Guđmundsdóttur voru veitt Webby verđlaunin í vikunni í flokknum listamađur ársins. ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:00

"Menntaskólakerfiđ er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á k...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:56

Jóhanna og Füle rćddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurđardóttir, forsćtisráđherra, fundađi í dag međ Stefan Füle, framkvćmdastjóra ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:30

Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli

Catalina flugbáturinn, sem verđur helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á R...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:45

Íhuga ađ hćtta viđ komu skemmtiferđaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar ađ hćtta viđ fyrirhugađa siglingu skemmtiferđaskips viđ Íslandsstrend...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:30

Íslendingar duga ekki á Drekasvćđiđ - gefast upp

Útgerđarmađurinn sem er á leiđ í olíuleit á Drekasvćđinu segir ađ ekki ţýđi lengur ađ hafa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:49

Verjandi Barkar furđar sig á umfjöllun fjölmiđla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunađur er um ađ hafa banađ mann á Litla Hrauni 17. maí ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:30

Fjölskyldufyrirtćki tapađi gengismáli

Skuldastađa yfir ţúsund fyrirtćkja er í uppnámi eftir ađ Hćstiréttur sýknađi Lýsingu nú sí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 17:58

Hćstiréttur sýknar Fylki

Hćstiréttur sýknađi í dag Íţróttafélagiđ Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiđssonar en hann s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:58

Byssumađur reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggđ á misskilningi. Ţannig var ţví t.d. fariđ ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:42

Lögmenn Annţórs ósáttir viđ framgang lögreglu

Lögmenn Annţórs Kristjáns Karlssonar, sem grunađur er um ađ hafa banađ Sigurđi Hólm Sigurđ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:17

Í ađgerđ vegna fótbrots - konan hryggbrotnađi

Karlmađurinn, sem féll niđur um 40 metra ţegar ađ brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag,...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:36

Könnuđust ekki viđ ađ styđja Ástţór

Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norđausturkjördćmi hefur framkvćmt hefur leitt í ljós ađ ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:59

Ţjóđaratkvćđagreiđsla fer fram um tillögur stjórnlagaráđs

Ţingmenn samţykktu nú á ţriđja tímanum tillögur um ţjóđaratkvćđagreiđslu um tillögu stjórn...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:56

Íbúar kjósa um sameiningu í haust

Íbúar Garđabćjar og Álftaness munu í haust greiđa atkvćđi um ţađ hvort ađ sameina eigi sve...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:48

Nćstum helmingur ók of hratt í Sigtúni

Brot 46 ökumanna voru mynduđ í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var međ ökutćkjum sem var...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:47

Kannabis í Kópavogi

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu stöđvađi kannabisrćktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gć...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:16

Björgunarsveitarmađur: Kraftaverk hvađ ţau sluppu vel

"Ţetta er ekkert annađ en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:08

Tekur 500 klukkustundir ađ fara yfir málskjölin

Ćtla má ađ ţađ taki verjendur 500 klukkustundir ađ fara yfir málskjöl í al-Thani málinu ge...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:00

Druslugangan haldin í annađ sinn

"Ţetta gekk rosalega vel í fyrra og ţátttakan var framar öllum vonum. Ţess vegna er ekkert...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:42

Tillaga um ađ setja ESB í ţjóđaratkvćđi í haust felld á ţingi

Tillaga Vigdísar Hauksdóttur ţingkonu Framsóknarflokksins um hvort efna skuli til ţjóđarat...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 12:25

Vill ađ Alţingi kaupi Landsímahúsiđ undir skrifstofur

Falla á frá byggingaráformum á skrifstofuhúsnćđi Alţingis viđ Austurvöll en kaupa ţess í s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:58

Féllu af syllu í Dyrhólaey

Fjórir ferđamenn duttu niđur af syllu í Dyrhólaey í dag ţegar hún gaf sig og slösuđust ţrí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:21

Ekki ţorandi ađ flytja Börk í dóminn - úrskurđađ um varđhald í fangelsinu

Kveđa átti upp gćsluvarđhaldsúrskurđ yfir Annţóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgisson í...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:09

Viđbrögđ Grétu og Jónsa - myndband

Gréta Salóme og Jónsi stóđu sig međ stakri prýđi í forkeppni Eurovision á ţriđjudaginn. Ţa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 11:00

Allt ađ ţriggja ára fangelsi liggur viđ brotum starfsmannanna

Fyrrverandi lögreglumennirnir hjá sérstökum saksóknara gćtu átt yfir höfđi sér allt ađ ţri...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 10:10

Björk í samstarfi viđ bókasafn í New York

Björk Guđmundsdóttir er komin í samstarf viđ bókasafn í New York og ađrar stofnanir. Verke...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 09:17

Hreindýr trufla ökumenn

Hreindýr hafa veriđ á ferli í kringum Hallormsstađaskóg undanfariđ en um er ađ rćđa hóp ta...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 08:01

Verkfall í Noregi

Um 25 ţúsund opinberir starfsmenn í Noregi hófu í morgun verkfallsađgerđir eftir ađ samnin...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:30

Barn fann amfetamín í leikskólanum

Fimm ára drengur fann í febrúar poka međ amfetamíni á leikskólanum Jörfa. Nóg til ađ valda...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:16

Catalina ađ koma en flugsýningu frestađ

Catalina-flugbáturinn, sem verđur helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, er nú á l...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Ţyrla sótti veikan sjómann

Ţyrla Landhelgisgćslunnar, TF-LÍF, sótti veikan sjómann í gćr af bát sem var ađ veiđum aus...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 07:00

Vill ekki gefa ungu fólki falsvonir

Mögulegt er ađ lćkka ţurfi ávöxtunarkröfu lífeyrissjóđanna úr 3,5% vegna efasemda um ađ sv...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:30

Vill ađ borgin stöđvi háhýsi úr fortíđinni

Íbúi í Vesturbćnum vill ađ borgin hindri ađ sjö hćđa hús rísi viđ höfnina. Byggingin var s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Sterkt efni getur hćglega veriđ banvćnt

Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur veriđ stórhćttulegt börnum, til dćmis ef ţau mynd...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 06:00

Veiđimenn vilja gott sambýli

Borgarstjórn hefur samţykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsrćktarfyrirtćkinu B...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Samstarf um norđurslóđamál

Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuđu undir viljayfirlýsingu um s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Gamla lániđ er enn hagstćđast

Stjórn Faxaflóahafna hafnar öllum átta tilbođunum sem bárust í endurfjármögnun á langtímal...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Borgin byggir upp skólalóđir

Sett verđa upp ný boltagerđi viđ tvo grunnskóla í Reykjavík í sumar; Breiđagerđisskóla og ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:30

Frakkar stórir í ţorskkaupum

Fiskkaupendur í Frakklandi keyptu á fyrsta ársfjórđungi ţessa árs 45% meira af ferskum ţor...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Eiga 25.000 skópör á lagernum

Ný íţróttavöruverslun undir merkjum Sports Direct opnar viđ Smáratorg í Kópavogi á laugard...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

ESA skýrir samkeppnisreglur sínar

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur tekiđ upp nýjar reglur sem skýra eiga hvenćr samkeppnisa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 05:00

Annţór og Börkur harđneita allri sök

Tveir kunnir ofbeldismenn og refsifangar á Litla-Hrauni neita ţví alfariđ ađ bera ábyrgđ á...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Alls eru 94 stjórnarfrumvörp óafgreidd

Samkvćmt starfsáćtlun verđur ţingi frestađ 31. maí og ţví ađeins fjórir ţingdagar eftir. F...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 04:30

Ađalstigi fćst ekki fćrđur

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur hafnađ veitingu leyfis fyrir ýmsum breytingum innand...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 22:37

Sóldögg kemur fram á Bestu útihátíđinni

„Ţađ verđur löđrandi nostalgía á Bestu útihátíđinni í sumar." Ţetta segir Bergsveinn...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 21:30

Krefjast ţingrofs og kosninga á mismunandi forsendum

"Ţetta hefur ekkert međ stjórnmálaflokka ađ gera,“ segir Ásta Hafberg, en hún talar ...  

Meira
Innlent 23. maí. 2012 21:15

Nćrmynd af Ara Trausta

Vísindamanninum, rithöfundinum og forsetaframbjóđandanum Ara Trausta Guđmundssyni er lýst ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Fréttaskýring: Hver lćtur eftirlýstan mann flytja inn 200 kg af fíkniefnum?