Skandinavískt yfirbragð á heimili förðunardrottningar Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 26. febrúar 2024 15:01 Eignin er á fyrstu hæð í þriðja íbúða fjölbýlishúsi miðsvæðis í Hafnarfirði. Heiður Ósk Eggertsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School, og knattspyrnukappinn Steven Lennon, hafa sett fallega hæð við Arnarhraun í Hafnarfirði á sölu. Ásett verð er 89,9 milljónir.
Nýverið slitnaði upp úr sambandi Heiðar og Steven og er eignin því komin á sölu. Heimilið er fallega innréttað umvafið ljósri litapallettu í bland við svartan sem gefur heimilinu dýpt og glæsileika. Á gólfum er ljóst fiskibeinaparket sem gefur rýminu skandinavískt yfirbragð. Yfir borðstofunni má sjá loftljósið Vertigo í svörtu hannað af Constance Guisset. Stofan er falleg og björt.Fasteignaljósmyndun Um er að ræða bjarta 122 fermetra hæð í litlu fjölbýlishúsi miðsvæðis í Hafnarfirði sem var byggt árið 1966. Eignin skiptist í forstofu, stóra stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Setustofa og borðstofa eru saman í opnu rými með fallegum stórum gluggum sem snúa inn að garðinum. Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis. Í stofunni er hinn klassíski sófi Söderhamn frá IKEA í fallegu ljósu áklæði.Fasteignaljósmyndun Stofa og borðstofa er í samliggjandi og opnu rými.Fasteignaljósmyndun Eldhúsinnrétting er ljós með góðu skápaplássi.Fasteignaljósmyndun Hjónaherbergi er rúmgott með skápum.Fasteignaljósmyndun Baðherbergi er flísalagt með góðri viðarinnréttingu.Fasteignaljósmyndun Heiður Ósk er einn færasti förðunarfræðingur landsins og hefur komið víða við í faginu. Árið 2022 festi hún og Ingunn Sigurðardóttir förðunarfræðingur, kaup á Reykjavík Makeup School sem útskrifar fjöldann allan af förðunarfræðingum árlega. Nýverið gáfu þær út förðunarlínuna Chili In June sem þær hönnuðu frá grunni, framleiddar á Ítalíu. Auk þess héldu þær úti förðunarþáttunum, Snyrtiborðið með HI beauty, sem sýndir voru á Lífinu á Vísi. Í þáttunum gáfu þær góð ráð tengd förðun og húðumhirðu.
Hár og förðun Hús og heimili Hafnarfjörður Mest lesið Gaman að gefa þeim sviðið sem ekki eru oft þar Lífið Stofnaði íþróttavörumerki tvítug Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Ljótur skúr í miðbænum nú lítið glæsihús Lífið Fjölgar í fjölskyldu Bjarna Ben Lífið „Þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman“ Lífið Hjörtun stækkuðu hjá Benna Brynleifs og Evu Lífið Hrekkjalómur kroppar slaufuna af ókyngreindum salernum Lífið Gummi Marteins selur glæsihús í Garðabæ Lífið Sveitasetur lýtalæknis til sölu: „Eign fyrir fjársterka aðila“ Lífið Fleiri fréttir Gaman að gefa þeim sviðið sem ekki eru oft þar Stofnaði íþróttavörumerki tvítug Sumarlegir og dísætir jarðaberjapinnar að hætti Kristu Fjölgar í fjölskyldu Bjarna Ben Ljótur skúr í miðbænum nú lítið glæsihús Gummi Marteins selur glæsihús í Garðabæ Hrekkjalómur kroppar slaufuna af ókyngreindum salernum Kjartan Henry og Helga selja í Vesturbænum Fyndnustu gæludýramyndir ársins sem unnu til verðlauna Hjörtun stækkuðu hjá Benna Brynleifs og Evu „Þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman“ Dorrit hvetur Nigel Farage til dáða Elli og María Birta eru stoltir fósturforeldrar í Las Vegas Veðurgæðunum misskipt hjá lesendum Vísis Rakel selur 290 milljóna króna heillandi hús í Vesturbænum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2024 Flestir vilja kalla Björn „forsetaherra“ Forsetakosningar greindar í tætlur á flugvellinum Einföld ráð til að hlaða batteríin yfir sumarið Guðni og Halla fagna saman Einir yngstu garðyrkjubændur landsins eru í Norðlingaholti Sveitasetur lýtalæknis til sölu: „Eign fyrir fjársterka aðila“ Flughetja selur slotið með heitum og köldum Af vængjum fram: Bestu augnablikin Aðstoðarkonan kærir Kanye fyrir kynferðislega áreitni Jón Daði og María Ósk nefndu drenginn „Það eina sem ég vildi var bara að lifa“ Hommahöllin til sölu Klútabyltingin: Finndu þinn eigin Höllu-klút Húsbóndinn á Árbakka hafði aldrei heyrt um þriðju vaktina Sjá meira