Flugfreyjukórinn verður á flugi í flutningi sínum Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 28. nóvember 2014 11:00 Flugfreyjurnar verða íklæddar hátíðarbúningi Icelandair á aðventutónleikunum. mynd/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Flugfreyjukór Icelandair hefur undanfarin ár efnt til aðventutónleika. Í ár verða tvær einsöngkonur úr hópi flugfreyjanna, þær Jana María Guðmundsdóttir og Heiða Ólafsdóttir. Einnig tekur Lögreglukór Reykjavíkur þátt í flutningnum. „Á tónleikunum erum við með bland í poka, hátíðlegt, létt og skemmtilegt. Svo kryddar Lögreglukórinn þetta með okkur. Það er rosalega gaman að fá flottar karlaraddir blandaðar saman við,“ segir Jarþrúður Guðnadóttir, formaður kórsins. Flugfreyjukórinn kemur fram í hátíðarbúningi Icelandair. „Það verða allir uppdubbaðir í búningnum og voða fínir. Flugfreyjukór er ekki flugfreyjukór nema hann syngi í búningi.“ Auk tónleikanna fer kórinn á svokallað jólaflakk þar sem hann syngur fyrir starfsfólk Icelandair á hinum og þessum stöðum. Kórinn endar svo flakkið í Leifsstöð þar sem meðal annars er sungið fyrir farþega sem eru að fara í tengiflug og til Evrópu. „Við stefnum á það og góða lendingu líka,“ segir Jarþrúður glöð í bragði þegar hún er spurð að því hvort kórinn muni ekki fara á flug í flutningnum. Kórstjóri Flugfreyjukórs Icelandair er Magnús Kjartansson. Aðventutónleikarnir verða annan desember í Grafarvogskirkju, tónleikarnir eru ókeypis og eru allir boðnir velkomnir.
Mest lesið Gaman að gefa þeim sviðið sem ekki eru oft þar Lífið Stofnaði íþróttavörumerki tvítug Lífið Ljótur skúr í miðbænum nú lítið glæsihús Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Fjölgar í fjölskyldu Bjarna Ben Lífið „Þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman“ Lífið Hjörtun stækkuðu hjá Benna Brynleifs og Evu Lífið Sveitasetur lýtalæknis til sölu: „Eign fyrir fjársterka aðila“ Lífið Hrekkjalómur kroppar slaufuna af ókyngreindum salernum Lífið Elli og María Birta eru stoltir fósturforeldrar í Las Vegas Lífið Fleiri fréttir Gaman að gefa þeim sviðið sem ekki eru oft þar Stofnaði íþróttavörumerki tvítug Sumarlegir og dísætir jarðaberjapinnar að hætti Kristu Fjölgar í fjölskyldu Bjarna Ben Ljótur skúr í miðbænum nú lítið glæsihús Gummi Marteins selur glæsihús í Garðabæ Hrekkjalómur kroppar slaufuna af ókyngreindum salernum Kjartan Henry og Helga selja í Vesturbænum Fyndnustu gæludýramyndir ársins sem unnu til verðlauna Hjörtun stækkuðu hjá Benna Brynleifs og Evu „Þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman“ Dorrit hvetur Nigel Farage til dáða Elli og María Birta eru stoltir fósturforeldrar í Las Vegas Veðurgæðunum misskipt hjá lesendum Vísis Rakel selur 290 milljóna króna heillandi hús í Vesturbænum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2024 Flestir vilja kalla Björn „forsetaherra“ Forsetakosningar greindar í tætlur á flugvellinum Einföld ráð til að hlaða batteríin yfir sumarið Guðni og Halla fagna saman Einir yngstu garðyrkjubændur landsins eru í Norðlingaholti Sveitasetur lýtalæknis til sölu: „Eign fyrir fjársterka aðila“ Flughetja selur slotið með heitum og köldum Af vængjum fram: Bestu augnablikin Aðstoðarkonan kærir Kanye fyrir kynferðislega áreitni Jón Daði og María Ósk nefndu drenginn „Það eina sem ég vildi var bara að lifa“ Hommahöllin til sölu Klútabyltingin: Finndu þinn eigin Höllu-klút Húsbóndinn á Árbakka hafði aldrei heyrt um þriðju vaktina Sjá meira