Leiðbeiningar birtar fyrir íshafssiglingar Kristján Már Unnarsson skrifar 2. febrúar 2014 11:00 Myndin er tekin úr rússneskum ísbrjóti að ryðja leiðina fyrir skipalest. Mynd/Rosatomflot.
Bandaríska siglingastofnunin hefur gefið út alþjóðlegar leiðbeiningar um siglingaleiðina um Íshafið, svokallaða norðausturleið. Þær voru unnar í samstarfi við Rússa og er ætlað að vera ráðgefandi fyrir skipaútgerðir til að stuðla að sem öruggastri skipaumferð um norðurhöfin. „Þar til fyrir fáum árum var norðursiglingaleiðin nánast ófær öllum nema öflugum ísbrjótum,“ sagði Todd Grove, talsmaður Siglingastofnunar Bandaríkjanna, þegar hann kynnti leiðbeiningarnar. Hann benti á að rússnesk stjórnvöld hvettu nú til þess að alþjóðleg skipaumferð færi norðurleiðina eftir því sem bráðnun hafíss opnaði ný viðskiptatækifæri fyrir skipafélög. Hann sagði ennfremur að hafa yrði í huga að þetta væri óútreiknanleg og framandi siglingaleið með bæði rekstrar- og tæknilegar áskoranir. Leiðbeiningunum væri ætlað að upplýsa skipafélög og sjófarendur um hvað þyrfti til að sigla um þetta svæði á öruggan og skilvirkan hátt en um leið að lágmarka áhrif á umhverfið. Norðausturleiðin býður upp á verulega styttingu siglingatíma milli Kyrrahafs og Atlantshafs miðað við að fara um Súez-skurðinn. Til dæmis myndi leiðin milli Japans og Rotterdam styttast úr 11.000 mílum niður í 7.600 mílur, sem þýddi að skip yrði um það bil tíu dögum skemur á leiðinni. Siglingastofnun Bandaríkjanna segir að svo mikil stytting siglingaleiðar stytti ekki aðeins siglingatíma heldur feli í sér betri nýtingu skipa yfir árið með marktækt lægri flutningskostnaði samhliða minni útblæstri gróðurhúsalofttegunda.Kort í leiðbeiningunum sýnir þær siglingaleiðir sem bandarískir sérfræðingar telja líklegar.Metfjöldi skipa fór alla norðausturleiðina milli Beringssunds og Barentshafs árið 2013, eða 71 skip. Það var 54% aukning frá árinu 2012. Árið 2010 sigldu aðeins fjögur skip alla þessa leið. Hún er þó aðeins talin greiðfær hluta ársins, einkum á tímabilinu frá júlí til nóvember. Rússar komu á síðasta ári á fót sérstakri stofnun til að annast hafsögu á siglingaleiðinni og halda utan um öryggismál. Þá hefur upplýsingamiðstöð um siglingaleiðina verið stofnsett í samstarfi Norðmanna, Rússa og alþjóðlegra skipafélaga með aðsetur í Kirkenes og Murmansk. Þótt forsendur hafi nú skapast fyrir siglingar alþjóðlegra skipafélaga um Norður-Íshaf hafa stjórnvöld í Rússlandi, áður Sovétríkjunum, staðið fyrir reglubundnum siglingum um þessar slóðir með hjálp ísbrjóta til strandhéraða Norður-Rússlands allt frá árinu 1929. Frá árinu 1959 hafa þeir notað kjarnorkuknúna ísbrjóta og ræður Rosatomflot yfir öflugasta ísbrjótaflota heims.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Fleiri fréttir Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Dagar Workplace eru taldir Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sjá meira