Við eldum ekki! Kjartan Atli Kjartansson skrifar 6. desember 2013 09:45 Ágúst Bent Sigbertsson og Margrét Erla Maack gæða sér á ljúffengum skyndibita.
Með auknu framboði á skyndibita hér á landi minnkar þörfin að elda heimafyrir. Í niðurstöðum breskri rannsóknar, sem birtar voru fyrr á árinu, kemur í ljós að 49% fólks á aldrinum 25 – 34 ára velji skyndibita fram yfir eigin eldamennsku og eyði yfir hálfri milljón króna á ári í mat sem aðrir elda. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kom einnig fram að íbúar London eyða tvöfalt meira en aðrir í skyndibita. Fólk hefur mismunandi ástæður fyrir því að borða skyndibita fremur en að elda sjálft. Fréttablaðið ræddi við tvo einstaklinga sem elda nánast aldrei. Rökstuðningurinn fyrir því að elda ekki er mismunandi, en mikill erill og barnleysi spilar þar stóra rullu. Fólk hefur mismunandi ástæður fyrir því að borða skyndibita fremur en að elda sjálft. Fréttablaðið ræddi við þau Ágúst Bent Sigbertsson, leikstjóra og tónlistarmann, og Margréti Erlu Maack, sirkuslistakonu og spurningahöfund í Gettu betur, sem elda nánast aldrei. Rökstuðningurinn fyrir því að elda ekki er mismunandi, en mikill erill og barnleysi spilar þar stóra rullu. Einnig voru hagfræðilegar skýringar og gagnrýni á skammtastærðir í verslunum nefndar til sögunnar.„Nú er orðið allavega meira en ár frá því að ég fór síðast í Bónus eða aðrar slíkar verslanir, fyrir utan þegar ég fer í Nóatún og kaupi tilbúinn kjúkling,“ segir Ágúst Bent Sigbertsson. Bent segist borða úti um það bil þrisvar á dag. Spurður út í kostnaðinn við það, segist hann vilja eyða miklu í mat. „Mér finnst það skipta miklu máli. Ég vil hafa jákvæð áhrif á efnahagslífið,“ útskýrir Bent. Hann notar eldhúsið sitt afar lítið. „Yfirleitt borða ég á veitingastöðum. En ef ég borða heima er það sjaldnast í eldhúsinu. Ég nota ísskápinn minn mjög lítið, nema til að kæla bjór, gos og geyma pitsuafganga,“ segir Bent. Hann hefur fjölda ástæðna fyrir því að elda ekki sjálfur. Sterkustu rökin séu þó þau að aðrir séu betri en hann í að elda. „Ég vil hafa atvinnumenn í að elda, frekar en að ég sé að skítamixa eitthvað sjálfur. Ég vil að menn, sem eyða öllum deginum sínum í að elda og eru góðir í því, matreiði eitthvað fyrir mig. En þegar maður er kominn með börn og fjölskyldu þá eru miklu meiri rök fyrir því að elda sjálfur.“ „Aðrir líta á það sem lúxus að fara út að borða en ég lít á það sem lúxus að elda. Ég er bara svo upptekin og dagarnir svo óútreiknanlegir að ég á erfitt með að koma eldamennskunni að,“ segir Margrét Erla Maack. Hún lítur á mat sem eitt af sínum helstu áhugamálum og notar það sem rökstuðning fyrir því að verja fjárhæðum í mat. „Foreldrar mínir hafa oft skammað systur mína og mig fyrir hversu miklu við eyðum í mat. Systir mín orðaði það svo skemmtilega þegar hún sagði að við litum á mat sem áhugamálið okkar og margir eyddu mun meira en við í áhugamálin sín. Mér finnst ég vera að fjárfesta í sjálfri mér og eigin geðheilsu þegar ég kaupi góðan mat því ég verð mjög leiðinleg ef ég borða vondan mat eða ef ég verð svöng.“ Margrét fundar mikið þessa dagana og er hádegið vinsæll fundartími og þá helst á veitingastöðum. Dagarnir eru líka gjarnan erilsamir og sjaldan rúm til að gefa sér tíma í eldamennskuna. Margrét segir einnig erfitt að skipuleggja innkaupin langt fram í tímann. „Ég hef reynt að kaupa inn fyrir vikuna, en það gekk ekki vel. Ég þurfti að henda helmingnum af því sem ég keypti inn því það skemmdist. Ég hef reynt að stofna félag um grænmetisinnkaup, ásamt vini mínum, þar sem við lögðum mikla áherslu á salatinnkaup, því það kemur gjarnan í svo stórum pakkningum. Í matvöruverslunum eru pakkningar reyndar bara yfirleitt of stórar fyrir einhleypa. Þannig má réttlæta ferðir á veitingastaði með umhverfisrökum, að maður sé að koma í veg fyrir sóun á matvælum með því að borða úti.“
Mest lesið Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Lífið „Ég væri ekkert án þeirra“ Lífið Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið Tónlist Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Lífið Andrea Róberts keypti einbýli sem þarfnast ástar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Lífið „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ Lífið samstarf Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Tónlist Fleiri fréttir „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Françoise Hardy er látin Framleiða meiri varning „vegna fjölda áskorana“ Spacey á barmi gjaldþrots Gerir upp sögu Séð og heyrt: „Þetta er mjög sterkur samfélagsspegill“ Georg í Sigur Rós keypti vistvænt hús við einn besta golfvöll landsins Jörundur og Magdalena eignuðust dreng: „Ég skil ekki hvað ég hef gert til að eiga hana skilið“ Litrík hlaupagleði í Laugardalnum Andrea Róberts keypti einbýli sem þarfnast ástar Katrín Edda og Markus opinbera kynið Rómantísk útsýnisíbúð Bergrúnar Írisar til sölu Einn handritshöfunda Simpsons á Íslandi Hefur ekki hugmynd um hvað tekur nú við Greta Salóme og Elvar eiga von á sínu öðru barni Grínaðist með yfirlið Binna í Köben Kennari hljóp til þegar Sushi læstist inni eftir skólaslit Hækkandi sól, sumarfrí og Bríet á bossanum Fólk ofmeti sína eigin þekkingu á næringu Annie Mist og Frederik nefna soninn Þurfum að vera tilbúin að deyja á hverjum degi Bjarni og Katrín selja 350 milljóna króna einbýli í Garðabæ Myndaveisla: Eliza og Lilja Alfreðs í afmæli Karls Bretakonungs Krakkatían: Landsliðið, eldgos og nýr forseti „Ég hef aldrei horft á mig sem fórnarlamb“ Tómas hitti sofandi hjartaskurðlækninn Sjá meira