Viðskipti erlent

Smjörkreppa í Noregi, Danir hlaupa ekki undir bagga

Smjörörvænting hefur gripið um sig í Noregi. Norðmenn eru tilbúnir til að kaupa kíló af smjöri á yfir 600 krónur norskar eða á allt að 12.000 krónur.

Það er sambland af aukinni neyslu á smjöri í ár og mjög strangt kvótakerfi um framleiðslu þess sem veldur alvarlegum smjörskorti í Noregi síðustu vikurnar fyrir jól. Smjörneysla Norðmanna hefur raunar verið 27% meiri í ár en hægt var að framleiða samkvæmt kvótunum.

Í frétt í blaðinu BT um málið kemur fram að norska landbúnaðarráðuneytið hafi gripið til neyðarráðstafana og aflétt sektum sínum við umframframleiðslunni. Þar að auki hafi ráðuneytið lækkað tolla á innfluttu smjöri úr 25 norskum krónum á kílóið og niður í 4 krónur fram að áramótum svo að hægt sé að steikja jólaöndina í smjöri að hefðbundnum hætti eins og það er orðað í BT.

Undir venjulegum kringumstæðum myndi danski landbúnaðarrisinn Arla hlaupa undir bagga með Norðmönnum. Forráðamenn Arla eru hinsvegar orðnir þreyttir á þessum skammtímalausnum Norðmanna sem skila Arla engu þannig að skilaboð Arla til Norðmanna núna eru að þeir geti stiknað í eigin feiti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×