Jólin

Yljandi jólaglöggskaffi

Sonja Björk Grant.
Sonja Björk Grant.

Fátt er betra á kaldri aðventunni en sopi af heitum drykk. Sonja Björk Grant hjá Kaffismiðjunni kann uppskrift að jólakaffi með hrásykri og negulnöglum.

Sonja segir jólakaffið í anda jólaglöggs en það er hins vegar ættað frá Mexíkó. "Það er skemmtilegt og ögrandi verkefni að útbúa jóladrykki í anda kaffiræktunarlandanna. En þau lönd gefa okkur nýja sýn á samsetningu mismunandi hráefna."

Kaffismiðjan sem Sonja er annar eigandi að hefur búið til jóladrykk í tilefni aðventunnar og hugmyndin á bak við hann er að hægt sé að gera hann heima hjá sér.

Hún segir kaffidrykkinn hafa ferðast upp í sumarbústað og jafnvel upp á hálendið en hann er upplagður fyrir vinafagnaði sem og notalega stund yfir jólakortsskrifum. Kaffidrykkurinn er einnig mjög góður kaldur.- kg








×