Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Í það minnsta þrír voru fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95Blö í Laugardalshöll í gær. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það verði skoðað með tónleikahöldurum hvað fór úrskeiðis. Innlent
Viggó kom Erlangen úr fallsæti Landsliðsskyttan Viggó Kristjánsson var allt í öllu í óhemju mikilvægum útisigri Erlangen gegn Bietigheim í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar í handbolta í dag, 29-23. Handbolti
Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Tónlistarkonan Taylor Swift hefur keypt réttindin að plötum sínum eftir sex ár og tvö eigendaskipti. Hún segir stærsta draum sinn hafa ræst. Lífið
Davíð Smári eftir tapið gegn KR Davíð Smári Lamude var vægast sagt ósáttur við frammistöðu dómara eftir 2-1 tap Vestra gegn KR í Laugardalnum, í Bestu deild karla í fótbolta. Löglegt mark var tekið af Vestra í leiknum en það hefði komið liðinu í 2-0. Besta deild karla
Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Samtök ferðaþjónustunnar, evrópsku hagsmunasamtökin HOTREC og yfir 25 landssamtök fyrirtækja í gistiþjónustu víðs vegar um Evrópu standa nú sameiginlega að hópmálsókn gegn bókunarfyrirtækinu Booking.com. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastóri SAF, vonast til þess að sem flest íslensk hótel taki þátt í málsókninni. Í því felist möguleiki til að endurheimta verulegar fjárhæðir frá fyrirtækinu. Viðskipti innlent
Kröftug einkaneysla dreif áfram hagvöxt sem fór langt fram úr væntingum Fyrsta mat Hagstofunnar um að landsframleiðslan hafi aukist um 2,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi, einkum drifin áfram af mikilli innlendri eftirspurn og atvinnuvegafjárfestingu, fór langt fram úr væntingum bæði greinenda og Seðlabankans. Að mati hagfræðinga Arion banka munu hagvaxtartölurnar styðja við vegferð peningastefnunefndar að halda þétt um taumana og velta þeir jafnframt fyrir sér af hverju hátt raunvaxtastig sé ekki að bíta sem skyldi á íslensk heimili. Innherji
Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Þorklákur Ari Ágústsson málarameistari er kominn í úrslit um iðnaðarmann ársins 2025 hjá X977 og SINDRA. Þorlákur lauk námi árið 2014 og getur ekki verið án spartlspaða og borvélar í vinnunni. Þegar hann er ekki á kafi í vinnu spilar hann tölvuleiki og nýtur lífsins með konunni sinni. Lífið samstarf