Fleiri fréttir Gylfi Þór veitti föður sínum ekki umboð til þess að kaupa fiskiskip Hæstiréttur Íslands komst í síðustu viku að þeirri niðurstöðu að framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Blikabergs hefði ekki haft heimild til þess að kaupa fyrir hönd félagsins fiskiskip af útgerðarfélaginu Hafsæli. Ástæðan var sú að sonur framkvæmdastjórans og eini stjórnarmaður Blikabergs, knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson, hafði ekki veitt föður sínum umboð til kaupanna. 28.2.2018 11:15 Evrópski fjárfestingarbankinn lánar Isavia 100 milljónir evra til uppbyggingar í Keflavík Fjárfestingarbanki Evrópu mun lána Isavia 100 milljónir evra, jafnvirði 12,5 milljarða króna, til endurnýjunar á núverandi mannvirkjum og afkastaaukningar á Keflavíkurflugvelli. Skrifað var undir lánasamning þess efnis í morgun. 28.2.2018 11:00 Birna er fyrsti kvenflugmaðurinn í tæplega 50 ára sögu Flugfélagsins Ernis Þetta er stúlka sem hefur staðið sig ákaflega vel í öllu sem hún hefur gert í sínu stutta lífi, segir forstjóri Flugfélagsins Ernis. 28.2.2018 10:48 Vilja endurvekja viðræðurnar Stjórnir Skeljungs og Basko, sem á og rekur meðal annars 10-11 verslanirnar, skoða nú að endurvekja viðræður um kaup olíufélagsins á öllu hlutafé í Basko, samkvæmt heimildum Markaðarins. 28.2.2018 08:00 Gagnrýna tregðu til að slaka á höftum Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir mikilvægt að slakað verði á innflæðishöftum Seðlabanka Íslands. Þau leiði til hærra vaxtastigs fyrir ríkissjóð og fyrirtæki. Framkvæmdastjóri sjóða hjá GAMMA gagnrýnir tregðu stjórnenda bankans til þess að breyta útfærslu haftanna. Sérfræðingur í markaðsviðskiptum Kviku segir innflæðishöftin halda gengi krónunnar veikara en annars. 28.2.2018 08:00 Skoða að greiða bréf í Kviku í arð til hluthafa Stjórn VÍS skoðar að minnka hlut sinn verulega í Kviku með því að ráðstafa bréfum félagsins í arð til hluthafa. VÍS er stærsti hluthafi bankans með 23,6 prósenta hlut. Þyrfti ekki að binda jafn mikið eigið fé vegna fjárfestingarin 28.2.2018 07:00 Aðildarfélög lögðu SFS til 80 milljónir um áramót Hópur aðildarfélaga Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi lagði samtökunum til ríflega 80 milljónir króna um síðustu áramót til þess að rétta af uppsafnaðan halla á rekstri samtakanna. 28.2.2018 07:00 Ríkissjóður nýtur góðs af sölu Valitors Tryggt er í afkomuskiptasamningi stjórnvalda og Kaupþings að hann nái til virðis og mögulegrar virðisaukningar Valitors ef félagið er aðgreint frá Arion banka. Ríkið mun þannig njóta góðs af sölu og virðisaukningu kortafyrirtækisins 28.2.2018 07:00 Lagt til að Jón fái 1,4 milljóna króna greiðslu Stjórn N1 leggur til við aðalfund félagsins, sem fram fer í næsta mánuði, að stjórnarmaðurinn Jón Sigurðsson fái ríflega 1,4 milljóna króna greiðslu fyrir störf sín sem formaður fjárfestingaráðs N1 á síðasta ári. 28.2.2018 06:00 Segja launakostnað Icelandair Group vera fílinn í stofunni Ef flugfélagið Icelandair lækkar ekki launakostnað gæti félagið orðið undir í verðsamkeppni við önnur flugfélög, að mati greinenda Capacent. 28.2.2018 06:00 David Tysk ráðinn til VÍS David Tysk hefur verið ráðinn forstöðumaður áhættustýringar hjá VÍS. 27.2.2018 15:29 Laun lykilstjórnenda bankanna þriggja 1.000 milljónir í fyrra Lykilstjórnendur stóru viðskiptabankanna þriggja fengu samanlagt rúman einn milljarð króna í laun, hlunnindi og árangurstengdar greiðslur á síðasta ári. Bankastjóri Arion banka með ríflega 5,9 milljónir á mánuði. 27.2.2018 06:00 Norsk Hydro segir álverið í Straumsvík til framtíðar Norska félagið Hydro lítur á kaupin á ÍSAL sem framtíðarfjárfestingu, en tilkynnt var í dag um bindandi kauptilboð í þetta elsta álver Íslands. 26.2.2018 21:15 Gunnhildur Arna hættir hjá Símanum Hún hefur verið upplýsingafulltrúi fyrirtækisins undanfarin fimm og hálft ár. 26.2.2018 13:51 Katla innkallar vöfflur Vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (eggjaduft). 26.2.2018 11:01 Hydro gerir kauptilboð í álverið í Straumsvík Norski álframleiðandinn Norsk Hydro ASA hefur gert skuldbindandi tilboð um kaup á öllu útgefnu hlutafé í álverksmiðjunni ISAL af Rio Tinto. 26.2.2018 09:39 National Geographic velur Hótel Húsafell Hótel Húsafell ratar í hóp þeirra gististaða sem "National Geographic Unique Lodges of the World“ vill hafa í sínum röðum. 26.2.2018 07:26 Segir Landsvirkjun ennþá áhugasama um sæstreng Bretar hafa enn mikinn áhuga á lagningu raforkusæstrengs frá Íslandi. Á sama tíma er lítið að gerast í málinu af hálfu Íslendinga. 25.2.2018 20:45 Lofa að tilkynna óhöppin framvegis Umhverfismál Forsvarsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax viðurkenna að það hafi verið mistök að tilkynna Umhverfisstofnun ekki um tvö óhöpp sem urðu á búnaði fyrirtækisins í síðustu viku. Þeir segjast munu sjá til þess að það verði gert í framtíðinni. 24.2.2018 11:00 Fyrsta Boeing 737 MAX þotan komin á loft í litum Icelandair Fyrsta Boeing 737 MAX þota Icelandair, af sextán, TF-ICE, er komin út úr flugvélaverksmiðjunni í Seattle í Bandaríkjunum og farin í sitt fyrsta reynsluflug. 23.2.2018 20:30 Arion tekur yfir eignir United Silicon Ætlun bankans er að úrbótum á kísilverksmiðjunni í Helguvík áður en hún verður svo seld. 23.2.2018 17:29 Ríkissjóður selur 13% hlut í Arion banka til Kaupskila Hluturinn seldur á 23,4 milljarða króna. 23.2.2018 15:27 Svali H. Björgvinsson ráðinn til Sjóvár Síðustu 9 ár hefur hann verið framkvæmdastjóri mannauðs- og stefnumótunarsviðs Icelandair 23.2.2018 14:28 Möguleg mengun í sælgæti frá IKEA stæða innköllunarinnar er sú að mýs komust inn í framleiðslufyrirtæki sælgætisins og því gætu vörur hafa mengast. 23.2.2018 13:32 Svona munu höfuðstöðvar Landsbankans við hlið Hörpu líta út Landsbankinn hefur ákveðið að ganga til samninga við Arkþing ehf. og C.F. Møller um hönnun og þróun á nýbyggingu bankans við Austurhöfn í Reykjavík. 23.2.2018 11:25 Hefja byggingu á annað hundrað íbúða í Spöng Fyrsta skóflustungan að 155 nýjum leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag byggir verður tekin í dag við Móaveg í Spönginni í Reykjavík. 23.2.2018 08:21 Forlagið vill að efni höfunda sinna verði fjarlægt úr Storytel Innkoma hljóð- og rafbókaþjónustunnar Storytel hefur fallið í grýttan jarðveg meðal hóps rithöfund. 23.2.2018 08:00 Kostnaðarsöm starfslok stjórnenda Skeljungs Breytingar á skipulagi og framkvæmdastjórn Skeljungs á síðasta ári, sem fólu meðal annars í sér að skipta um forstjóra og fækka framkvæmdastjórum um tvo, kostuðu fyrirtækið á annað hundrað milljónir samkvæmt nýbirtum ársreikningi olíufélagsins. 23.2.2018 06:00 Vilja rífa húsið á Kirkjusandi Íslandsbanki hefur farið þess á leit við Reykjavíkurborg að fá að hefja framkvæmdir á lóð fyrirtækisins við Kirkjusand. 23.2.2018 05:57 Telja kauptækifæri í Icelandair Greiningarfyrirtækið IFS metur gengi hlutabréfa í Icelandair Group á 20,4 krónur á hlut í nýju verðmati. Er það um 27 prósentum yfir gengi bréfanna eftir lokun markaða í gær. IFS ráðleggur fjárfestum því að kaupa hlutabréf í ferðaþjónustufélaginu. 22.2.2018 22:00 Höskuldur með 71 milljón í laun Laun og árangurstengdar greiðslur til Höskuldar H. Ólafssonar, bankastjóra Arion banka, námu alls 71,2 milljónum króna í fyrra og hækkuðu um 5,9 milljónir, eða ríflega níu prósent, á milli ára, að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi bankans. 22.2.2018 18:00 Hlutur TM hækkað yfir 70 prósent í verði Virði óbeins eignarhlutar tryggingafélagsins TM í drykkjarframleiðandanum Refresco Group hefur hækkað um meira en 70 prósent frá því að félagið eignaðist hlutinn á öðrum fjórðungi síðasta árs. 22.2.2018 17:45 Hertar kröfur stuðla að samþjöppun Hagfræðingur við LSE segir að hátt eiginfjárhlutfall banka geti aldrei komið í veg fyrir að þeir fari í þrot. Strangar eiginfjárkröfur stuðli að samþjöppun. Aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins sér skýrar ástæður fyrir því 22.2.2018 16:30 Skoða vindorku í landi Hóla Drög að samningi um könnunarmöstur vegna rannsókna á vindorku í landi Hóls í Hjaltastaðaþinghá voru rædd á síðasta fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs. 22.2.2018 12:00 Kostur tekinn til gjaldþrotaskipta Matvöruverslunin Kostur, sem hætti rekstri í desember síðastliðnum, hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Arnar Þór Stefánsson, hæstaréttarlögmaður á LEX, var skipaður skiptastjóri í þrotabúinu í síðustu viku. 22.2.2018 11:00 Félögin skoða nú erlenda fjármögnun Stærstu fasteignafélög landsins skoða það að sækja fjármagn til erlendra fjárfesta. Mikill áhugi er á meðal fjárfesta að festa kaup á skráðum skuldabréfum félaganna. Framkvæmdastjóri hjá Eik segir innflæðishöftin hafa hamlandi áhrif á fjármögnunarkosti fyrirtækja. 22.2.2018 08:00 WOW bruggar bjór Bjórinn er sagður maltaður en að finna megi blómakeim af humlunum. 22.2.2018 07:52 Telja bókum sínum streymt í leyfisleysi Mikil ólga er innan Rithöfundasambands Íslands (RSÍ) vegna tilkomu hljóðbókaveitunnar Storytel. 22.2.2018 06:00 Stjórn VR samþykkir stofnun leigufélags Stjórn VR ákvað á fundi sínum í fyrrakvöld að stofna leigufélag fyrir félagsmenn VR; félag sem ekki yrði rekið í hagnaðarskyni. Áður hafði trúnaðarráð félagsins hvatt til þess að slíkt félag yrði stofnað. 22.2.2018 06:00 Ákærðir fyrir meiriháttar skattsvik á Austur og Laundromat Héraðssaksóknari hefur ákært Hall Dan Johanssen og Valgarð Þórarinn Sörensen fyrir meiriháttar skattalagabrot og brot á almennum hegningarlögum. 21.2.2018 11:15 Mikil fjárfesting en engin undanþága Samkeppniseftirlitið hefur ekki veitt fyrirhuguðu samstarfi skipafélaganna Eimskips og Royal Arctic Line undanþágu. Engu að síður hafa félögin látið smíða skip sem eiga að verða grundvöllur samstarfsins. Upplýsingafulltrúi segir smíði skipanna óháða niðurstöðunni 21.2.2018 07:00 Taconic kominn með 46 prósent í Kaupþingi Vogunarsjóðurinn bætti við sig átta prósenta hlut í fyrra og hefur þrefaldað eignarhlut sinn í félaginu frá 2016. Beinn og óbeinn eignarhlutur sjóðsins í Arion banka nemur um 36 prósentum. Och-Ziff og Attestor minnka við sig. 21.2.2018 05:37 Tómas aftur til WOW Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptasviðs WOW air. 20.2.2018 16:12 Segir Björn Inga hafa boðist til að greiða milljóna skuld með steikum Árni Harðarson, forvarsmaður Dalsins ehf. segir að Björn Ingi Hrafnsson hafi hótað Árna og öðrum eigendum Dalsins. Markmiðið hafi verið að koma sér framhjá skoðum opinberra aðila á bókhaldi og fjárreiðum Pressunar og tengdra miðla. 20.2.2018 13:27 Dæmdur fjárkúgari lagði Landsbankann 13 milljóna króna lán frá 2006, sem aldrei var greidd króna af, reyndist fyrnt árið 2014. 20.2.2018 10:45 Sjá næstu 50 fréttir
Gylfi Þór veitti föður sínum ekki umboð til þess að kaupa fiskiskip Hæstiréttur Íslands komst í síðustu viku að þeirri niðurstöðu að framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Blikabergs hefði ekki haft heimild til þess að kaupa fyrir hönd félagsins fiskiskip af útgerðarfélaginu Hafsæli. Ástæðan var sú að sonur framkvæmdastjórans og eini stjórnarmaður Blikabergs, knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson, hafði ekki veitt föður sínum umboð til kaupanna. 28.2.2018 11:15
Evrópski fjárfestingarbankinn lánar Isavia 100 milljónir evra til uppbyggingar í Keflavík Fjárfestingarbanki Evrópu mun lána Isavia 100 milljónir evra, jafnvirði 12,5 milljarða króna, til endurnýjunar á núverandi mannvirkjum og afkastaaukningar á Keflavíkurflugvelli. Skrifað var undir lánasamning þess efnis í morgun. 28.2.2018 11:00
Birna er fyrsti kvenflugmaðurinn í tæplega 50 ára sögu Flugfélagsins Ernis Þetta er stúlka sem hefur staðið sig ákaflega vel í öllu sem hún hefur gert í sínu stutta lífi, segir forstjóri Flugfélagsins Ernis. 28.2.2018 10:48
Vilja endurvekja viðræðurnar Stjórnir Skeljungs og Basko, sem á og rekur meðal annars 10-11 verslanirnar, skoða nú að endurvekja viðræður um kaup olíufélagsins á öllu hlutafé í Basko, samkvæmt heimildum Markaðarins. 28.2.2018 08:00
Gagnrýna tregðu til að slaka á höftum Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir mikilvægt að slakað verði á innflæðishöftum Seðlabanka Íslands. Þau leiði til hærra vaxtastigs fyrir ríkissjóð og fyrirtæki. Framkvæmdastjóri sjóða hjá GAMMA gagnrýnir tregðu stjórnenda bankans til þess að breyta útfærslu haftanna. Sérfræðingur í markaðsviðskiptum Kviku segir innflæðishöftin halda gengi krónunnar veikara en annars. 28.2.2018 08:00
Skoða að greiða bréf í Kviku í arð til hluthafa Stjórn VÍS skoðar að minnka hlut sinn verulega í Kviku með því að ráðstafa bréfum félagsins í arð til hluthafa. VÍS er stærsti hluthafi bankans með 23,6 prósenta hlut. Þyrfti ekki að binda jafn mikið eigið fé vegna fjárfestingarin 28.2.2018 07:00
Aðildarfélög lögðu SFS til 80 milljónir um áramót Hópur aðildarfélaga Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi lagði samtökunum til ríflega 80 milljónir króna um síðustu áramót til þess að rétta af uppsafnaðan halla á rekstri samtakanna. 28.2.2018 07:00
Ríkissjóður nýtur góðs af sölu Valitors Tryggt er í afkomuskiptasamningi stjórnvalda og Kaupþings að hann nái til virðis og mögulegrar virðisaukningar Valitors ef félagið er aðgreint frá Arion banka. Ríkið mun þannig njóta góðs af sölu og virðisaukningu kortafyrirtækisins 28.2.2018 07:00
Lagt til að Jón fái 1,4 milljóna króna greiðslu Stjórn N1 leggur til við aðalfund félagsins, sem fram fer í næsta mánuði, að stjórnarmaðurinn Jón Sigurðsson fái ríflega 1,4 milljóna króna greiðslu fyrir störf sín sem formaður fjárfestingaráðs N1 á síðasta ári. 28.2.2018 06:00
Segja launakostnað Icelandair Group vera fílinn í stofunni Ef flugfélagið Icelandair lækkar ekki launakostnað gæti félagið orðið undir í verðsamkeppni við önnur flugfélög, að mati greinenda Capacent. 28.2.2018 06:00
David Tysk ráðinn til VÍS David Tysk hefur verið ráðinn forstöðumaður áhættustýringar hjá VÍS. 27.2.2018 15:29
Laun lykilstjórnenda bankanna þriggja 1.000 milljónir í fyrra Lykilstjórnendur stóru viðskiptabankanna þriggja fengu samanlagt rúman einn milljarð króna í laun, hlunnindi og árangurstengdar greiðslur á síðasta ári. Bankastjóri Arion banka með ríflega 5,9 milljónir á mánuði. 27.2.2018 06:00
Norsk Hydro segir álverið í Straumsvík til framtíðar Norska félagið Hydro lítur á kaupin á ÍSAL sem framtíðarfjárfestingu, en tilkynnt var í dag um bindandi kauptilboð í þetta elsta álver Íslands. 26.2.2018 21:15
Gunnhildur Arna hættir hjá Símanum Hún hefur verið upplýsingafulltrúi fyrirtækisins undanfarin fimm og hálft ár. 26.2.2018 13:51
Hydro gerir kauptilboð í álverið í Straumsvík Norski álframleiðandinn Norsk Hydro ASA hefur gert skuldbindandi tilboð um kaup á öllu útgefnu hlutafé í álverksmiðjunni ISAL af Rio Tinto. 26.2.2018 09:39
National Geographic velur Hótel Húsafell Hótel Húsafell ratar í hóp þeirra gististaða sem "National Geographic Unique Lodges of the World“ vill hafa í sínum röðum. 26.2.2018 07:26
Segir Landsvirkjun ennþá áhugasama um sæstreng Bretar hafa enn mikinn áhuga á lagningu raforkusæstrengs frá Íslandi. Á sama tíma er lítið að gerast í málinu af hálfu Íslendinga. 25.2.2018 20:45
Lofa að tilkynna óhöppin framvegis Umhverfismál Forsvarsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax viðurkenna að það hafi verið mistök að tilkynna Umhverfisstofnun ekki um tvö óhöpp sem urðu á búnaði fyrirtækisins í síðustu viku. Þeir segjast munu sjá til þess að það verði gert í framtíðinni. 24.2.2018 11:00
Fyrsta Boeing 737 MAX þotan komin á loft í litum Icelandair Fyrsta Boeing 737 MAX þota Icelandair, af sextán, TF-ICE, er komin út úr flugvélaverksmiðjunni í Seattle í Bandaríkjunum og farin í sitt fyrsta reynsluflug. 23.2.2018 20:30
Arion tekur yfir eignir United Silicon Ætlun bankans er að úrbótum á kísilverksmiðjunni í Helguvík áður en hún verður svo seld. 23.2.2018 17:29
Ríkissjóður selur 13% hlut í Arion banka til Kaupskila Hluturinn seldur á 23,4 milljarða króna. 23.2.2018 15:27
Svali H. Björgvinsson ráðinn til Sjóvár Síðustu 9 ár hefur hann verið framkvæmdastjóri mannauðs- og stefnumótunarsviðs Icelandair 23.2.2018 14:28
Möguleg mengun í sælgæti frá IKEA stæða innköllunarinnar er sú að mýs komust inn í framleiðslufyrirtæki sælgætisins og því gætu vörur hafa mengast. 23.2.2018 13:32
Svona munu höfuðstöðvar Landsbankans við hlið Hörpu líta út Landsbankinn hefur ákveðið að ganga til samninga við Arkþing ehf. og C.F. Møller um hönnun og þróun á nýbyggingu bankans við Austurhöfn í Reykjavík. 23.2.2018 11:25
Hefja byggingu á annað hundrað íbúða í Spöng Fyrsta skóflustungan að 155 nýjum leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag byggir verður tekin í dag við Móaveg í Spönginni í Reykjavík. 23.2.2018 08:21
Forlagið vill að efni höfunda sinna verði fjarlægt úr Storytel Innkoma hljóð- og rafbókaþjónustunnar Storytel hefur fallið í grýttan jarðveg meðal hóps rithöfund. 23.2.2018 08:00
Kostnaðarsöm starfslok stjórnenda Skeljungs Breytingar á skipulagi og framkvæmdastjórn Skeljungs á síðasta ári, sem fólu meðal annars í sér að skipta um forstjóra og fækka framkvæmdastjórum um tvo, kostuðu fyrirtækið á annað hundrað milljónir samkvæmt nýbirtum ársreikningi olíufélagsins. 23.2.2018 06:00
Vilja rífa húsið á Kirkjusandi Íslandsbanki hefur farið þess á leit við Reykjavíkurborg að fá að hefja framkvæmdir á lóð fyrirtækisins við Kirkjusand. 23.2.2018 05:57
Telja kauptækifæri í Icelandair Greiningarfyrirtækið IFS metur gengi hlutabréfa í Icelandair Group á 20,4 krónur á hlut í nýju verðmati. Er það um 27 prósentum yfir gengi bréfanna eftir lokun markaða í gær. IFS ráðleggur fjárfestum því að kaupa hlutabréf í ferðaþjónustufélaginu. 22.2.2018 22:00
Höskuldur með 71 milljón í laun Laun og árangurstengdar greiðslur til Höskuldar H. Ólafssonar, bankastjóra Arion banka, námu alls 71,2 milljónum króna í fyrra og hækkuðu um 5,9 milljónir, eða ríflega níu prósent, á milli ára, að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi bankans. 22.2.2018 18:00
Hlutur TM hækkað yfir 70 prósent í verði Virði óbeins eignarhlutar tryggingafélagsins TM í drykkjarframleiðandanum Refresco Group hefur hækkað um meira en 70 prósent frá því að félagið eignaðist hlutinn á öðrum fjórðungi síðasta árs. 22.2.2018 17:45
Hertar kröfur stuðla að samþjöppun Hagfræðingur við LSE segir að hátt eiginfjárhlutfall banka geti aldrei komið í veg fyrir að þeir fari í þrot. Strangar eiginfjárkröfur stuðli að samþjöppun. Aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins sér skýrar ástæður fyrir því 22.2.2018 16:30
Skoða vindorku í landi Hóla Drög að samningi um könnunarmöstur vegna rannsókna á vindorku í landi Hóls í Hjaltastaðaþinghá voru rædd á síðasta fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs. 22.2.2018 12:00
Kostur tekinn til gjaldþrotaskipta Matvöruverslunin Kostur, sem hætti rekstri í desember síðastliðnum, hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Arnar Þór Stefánsson, hæstaréttarlögmaður á LEX, var skipaður skiptastjóri í þrotabúinu í síðustu viku. 22.2.2018 11:00
Félögin skoða nú erlenda fjármögnun Stærstu fasteignafélög landsins skoða það að sækja fjármagn til erlendra fjárfesta. Mikill áhugi er á meðal fjárfesta að festa kaup á skráðum skuldabréfum félaganna. Framkvæmdastjóri hjá Eik segir innflæðishöftin hafa hamlandi áhrif á fjármögnunarkosti fyrirtækja. 22.2.2018 08:00
Telja bókum sínum streymt í leyfisleysi Mikil ólga er innan Rithöfundasambands Íslands (RSÍ) vegna tilkomu hljóðbókaveitunnar Storytel. 22.2.2018 06:00
Stjórn VR samþykkir stofnun leigufélags Stjórn VR ákvað á fundi sínum í fyrrakvöld að stofna leigufélag fyrir félagsmenn VR; félag sem ekki yrði rekið í hagnaðarskyni. Áður hafði trúnaðarráð félagsins hvatt til þess að slíkt félag yrði stofnað. 22.2.2018 06:00
Ákærðir fyrir meiriháttar skattsvik á Austur og Laundromat Héraðssaksóknari hefur ákært Hall Dan Johanssen og Valgarð Þórarinn Sörensen fyrir meiriháttar skattalagabrot og brot á almennum hegningarlögum. 21.2.2018 11:15
Mikil fjárfesting en engin undanþága Samkeppniseftirlitið hefur ekki veitt fyrirhuguðu samstarfi skipafélaganna Eimskips og Royal Arctic Line undanþágu. Engu að síður hafa félögin látið smíða skip sem eiga að verða grundvöllur samstarfsins. Upplýsingafulltrúi segir smíði skipanna óháða niðurstöðunni 21.2.2018 07:00
Taconic kominn með 46 prósent í Kaupþingi Vogunarsjóðurinn bætti við sig átta prósenta hlut í fyrra og hefur þrefaldað eignarhlut sinn í félaginu frá 2016. Beinn og óbeinn eignarhlutur sjóðsins í Arion banka nemur um 36 prósentum. Och-Ziff og Attestor minnka við sig. 21.2.2018 05:37
Tómas aftur til WOW Tómas Ingason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptasviðs WOW air. 20.2.2018 16:12
Segir Björn Inga hafa boðist til að greiða milljóna skuld með steikum Árni Harðarson, forvarsmaður Dalsins ehf. segir að Björn Ingi Hrafnsson hafi hótað Árna og öðrum eigendum Dalsins. Markmiðið hafi verið að koma sér framhjá skoðum opinberra aðila á bókhaldi og fjárreiðum Pressunar og tengdra miðla. 20.2.2018 13:27
Dæmdur fjárkúgari lagði Landsbankann 13 milljóna króna lán frá 2006, sem aldrei var greidd króna af, reyndist fyrnt árið 2014. 20.2.2018 10:45