Viðskipti innlent

David Tysk ráðinn til VÍS

Kristín Ólafsdóttir skrifar
David Tysk.
David Tysk. VÍS
David Tysk hefur verið ráðinn forstöðumaður áhættustýringar hjá VÍS. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu fá VÍS.

David, sem er fæddur í Svíþjóð, er með meistarapróf í verkfræði frá konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi, KTH. Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálastarfsemi, bæði frá Svíþjóð þar sem hann starfaði meðal annars hjá Sænska seðlabankanum og Nordea bankanum.

Þá hefur hann einnig starfað á Íslandi, m.a. fyrir Seðlabanka Íslands og nú síðast hjá Landsbankanum þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns í áhættustýringu bankans.

David tekur við starfi forstöðumanns áhættustýringar af Þóri Óskarssyni. Þórir mun sjálfur taka við stöðu tryggingastærðfræðings félagsins af Ragnari Þ. Ragnarssyni sem lætur af störfum vegna aldurs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×