Viðskipti innlent

Katla innkallar vöfflur

Birgir Olgeirsson skrifar
Katla hefur innkallað Hrista og baka vöfflur.
Katla hefur innkallað Hrista og baka vöfflur. vísir/vilhelm
Katla hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Hrista og baka vöfflur, vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (eggjaduft).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti. Hrista og baka vöfflur

Strikanúmer: 5690591155453

Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar

Nettóþyngd: 330 gr

Framleiðandi: Katla

Framleiðsluland: Ísland

Dreifing: Allar helstu matvöruverslanir á landinu.

Tekið er fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir eggjadufti.

Viðskiptavinum, sem hafa verslað vöruna og eru viðkvæmir fyrir eggjadufti, er bent á að hægt er að skila henni til Kötlu, Kletthálsi 3, 110 Reykjavík, milli 8 og 16 alla virka daga. Frekari upplýsingar fást hjá gæðastjóra Kötlu í síma 510-4435 eða á netfanginu: rannsokn2@katla.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×