Viðskipti innlent

Dæmdur fjárkúgari lagði Landsbankann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
G.T. Samsteypan tók 13 milljóna króna lán frá Landsbankanum árið 2006. Um var að ræða svokallað fjölmyntalán.
G.T. Samsteypan tók 13 milljóna króna lán frá Landsbankanum árið 2006. Um var að ræða svokallað fjölmyntalán. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að skuld tveggja manna við Landsbankann vegna láns sem tekið var í janúar 2006 sé fyrnd. Nafnarnir, Guðmundur Tryggvi Ásbergsson og Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, gengust í sjálfskuldarábyrgð á 13 milljóna króna lánum fyrir G.T. samsteypuna sem samkvæmt upplýsingum af vef ríkisskattstjóra sérhæfði sig í smásölu á íþrótta- og tómstundabúnaði í sérverslunum.

Um var að ræða fjölmyntalán til átján mánaða þar sem vexti skyldi greiða á sex mánaða fresti og upphæðina í heild að átján mánuðum liðnum. Lánið var ekki greitt á umsömdum gjalddaga og gerðu Landsbankinn og G.T. samsteypan endurtekið með sér viðauka þar sem greiðslu lánsins var frestað, allt til ársins 2010.

Gjaldþrota árið 2013

Um það leyti voru komin upp dómsmál varðandi sambærilega lánssamninga er vörðuðu gengistryggingu. Í kjölfar dóma var lánið endurreiknað en það hafði þá verið komið í 39 milljónir króna. Eftir endurreikning stóð það í rúmri 21 milljón króna. 

G.T. samsteypan var tekin til gjaldþrotaskipta í janúar 2013. Landsbankinn gerði kröfu í þrotabúið en engar eignir fundust í búinu. Í kjölfar frekari dóma er vörðuðu lánssamninga með gengistryggingu var lánið enn á ný endurreiknað og skuld nafnanna metin tæplega 16 milljón krónur sem er sú upphæð sem reynt var að innheimta árið 2014.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að lán nafnanna hefði verið fyrnd á þeim tíma sem Landsbankinn stefndi þeim árið 2014. Lokagjalddagi lánsins samkvæmt síðasta samningsviðauka var í mars 2010. Lögum samkvæmt fyrnist krafa Landsbankans á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar á fjórum árum frá því krafan varð gjaldkræf, í mars 2010. Var hún því fyrnd þegar innheimtuaðgerðir hófust árið 2014. Sömuleiðis þegar stefnt var í málinu 2017.

Voru nafnarnir því sýknaðir af kröfum Landsbankans sem hefur nú frest til að ákveða hvort málinu verði áfrýjað til Landsréttar.



Hótaði hjónum dauða

Guðmundur Tryggvi Ásbergsson hefur komist í fréttirnar undanfarin ár af ýmsum sökum. Sumarið 2015 vildi hann aðili kaupa rúmlega hundrað íbúðir í eigu Fasteigna Ísafjarðarbæjar. Bauð hann hálfan milljarð í íbúðirnar en tilboðinu var hafnað af Ísafjarðarbæ.

Þá hlaut Guðmundur Tryggvi í árslok 2014 árs fangelsisdóm, að mestu skilorðsbundinn, fyrir að reyna að kúga hundrað milljónir króna af hjónum á Ísafirði. Hótaði hann hjónunum líkamlegu ofbeldi og dauða í bréfi sem hann sendi hjónunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×