Innlent

Forseti ASÍ býst við bylgju leiðréttinga

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Frá mótmælum þegar kjaradeilur stóðu hvað hæst á síðasta ári. BSRB sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem nýjustu hækkunum kjararáðs á launum skjólstæðinga þess er harðlega mótmælt.
Frá mótmælum þegar kjaradeilur stóðu hvað hæst á síðasta ári. BSRB sendi í gær frá sér tilkynningu þar sem nýjustu hækkunum kjararáðs á launum skjólstæðinga þess er harðlega mótmælt. vísir/anton brink
Verði nýjustu hækkanir kjararáðs á launum embættismanna og þjóðkjörinna einstaklinga ekki dregnar til baka er það ávísun á kröfu um leiðréttingar frá öðrum hópum. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins.

Gylfi bendir í Facebook-færslu í gærmorgun á að ákvörðun kjararáðs komi um viku eftir lög Alþingis á flugumferðarstjóra sem hafi verið með væntingar um „leiðréttingu“ sinna kjara.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
„Ef Alþingi verður ekki kallað saman nú þegar þar sem forsætisráðherra setur fram frumvarp sem afturkalli þessa vitleysu er alveg ljóst að kjaradómur hefur kallað yfir okkur nýja bylgju leiðréttinga einstakra hópa!“ segir Gylfi á Facebook. 

„Það verður ekki þannig að þeir tekjuhæstu í þessu samfélagi fái einhverja sérstaka meðferð. Við ætlumst til þess að þessir aðilar deili kjörum með almenningi í þessu landi. Ef ekki þá munum við deila kjörum með þeim.“

Gylfi segir líklegt að fleiri ákvarðana sé að vænta frá kjara­ráði, enda laun ráðuneytisstjóra orðin allnokkru hærri en laun ráðherra. Sérstök breyting kjararáðs á kjörum ráðuneytisstjóra tekur gildi um næstu mánaðamót. Þá hækka laun þeirra um 22,3 til 23,3 prósent til viðbótar við hækkunina sem allir sem undir kjararáð heyra fengu um síðustu mánaðamót, en um 31 til 32 prósent sé miðað við laun þeirra fyrir þann tíma.

„Þessi úrskurður kemur í kjölfar ákvörðunar þessa sama ráðs varðandi dómara í desember síðastliðnum, en þeir hafa verið færðir nærri tveimur milljónum króna á mánuði.“ Gylfi segist þá hafa bent á að svona ákvarðana kynni að vera að vænta á komandi mánuðum. Búast megi við fyrir 1. ágúst að laun forseta Íslands verði hækkuð og verði gengið til kosninga í haust muni þingmenn og ráðherrar fá svipaða „leiðréttingu“ launa.

„Þetta er frábært framlag Kjararáðs til þess vandasama verkefnis sem aðilar vinnumarkaðar hafa verið að vinna að undanfarna mánuði að bæði móta og vinna að því að ná samstöðu um nýtt samningamódel.“ Kjararáð ætli greinilega að „leiðrétta aðalinn“ áður en þessi aðferðafræði við gerð kjarasamninga verði að veruleika.

Í greinargerð kjararáðs með ákvörðun um launahækkun ráðuneytisstjóra er vísað til upplýsinga frá ráðuneytunum um að skipulag þeirra hafi breyst og þau séu stærri og öflugri en áður með flóknari verkefni. Mat ráðuneytisstjóranna sé að laun þeirra eigi að vera sambærileg launum hæstaréttardómara. Samkvæmt niðurstöðunni eru laun ráðuneytisstjóra rétt undir launum hæstaréttardómara, sem eru nú rúmlega 1,8 milljónir króna á mánuði.

Launahækkanir kjararáðs hafa víða sætt gagnrýni. Í tilkynningu BSRB er ákvörðun kjararáðs um að hækka laun ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra „langt umfram almennt launafólk“ til dæmis gagnrýnd harðlega. „Í rökstuðningi kjararáðs er talað um að verið sé að leiðrétta laun vegna aukins álags, en sömu rök má nota fyrir aðra stærri hópa sem einnig búa við aukið álag.“



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júlí 2016

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.Vísir/Anton Brink
Ráðherra vill breytingar

Bjarni Benediktsson sagði á fundi Samtaka iðnaðarins í gærmorgun að breyta þyrfti starfsemi kjararáðs.

Þannig vill hann að þeim sem undir kjararáð heyri fækki um nokkur hundruð þannig að eftir sæti einungis þröngur hópur, til dæmis ráðherrar og þingmenn. – jhh


Tengdar fréttir

Yfirvinnutaxti embættismanna hækkar um 14,3 prósent

Auk þess að hækka laun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, um 24,6 prósent með sérstakri ákvörðun hefur kjara­ráð breytt viðmiðum yfirvinnugreiðslna. Við breytinguna hækka heildarmánaðarlaun annarra embættismanna sem undir ráðið heyra um nálægt þremur til rúmra sex prósenta.

Ráðherrar fá 100 þúsund króna hækkun

"Það er mikið óréttlæti fólgið í þessu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, um 9,3 prósent launahækkun þeirra sem heyra undir kjararáð.

Alþingi kjararáð aldraðra og öryrkja

Aldraðir og öryrkjar ættu að fá afturvirkar kjarabætur, líkt og kjararáð hefur úthlutað kjörnum fulltrúum, dómurum og forstöðumönnum ríkisstofnana.

Laun forstjóra leiðrétt afturvirkt

Mánaðarlaun Arnórs Guðmundssonar, forstjóra Menntamálastofnunar, nema alls 1.125.701 krónu, samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í mánuðinum. Ákvörðunin er afturvirk og gildir frá 1. október í fyrra.

Embættismenn fá 7,15 prósent hækkun

Laun forsætisráðherra hækka um tæpar 109 þúsund krónur á mánuði en laun ráðuneytisstjóra hans eru þó orðin hærri eða ríflega 1,8 milljónir. Kjararáð lítur til ákvæðis í gerðardómi um laun félaga í BHM í ágúst í fyrra.

Dómarar fá tuga prósenta launahækkun

Störf dómara eiga sér ekki hliðstæðu á almennum vinnumarkaði. Tryggja verður sjálfstæði þeirra segir kjararáð. Kjör dómara eigi ávallt að vera meðal hinna bestu sem ríkisvaldið geti veitt. Hæstaréttardómarar hækka um 48 prósent

Fyrrverandi dómarar fá 26 prósent hækkun á eftirlaunum

Kjararáð hækkaði heildarlaun dómara sérstaklega umfram aðra í desember með vísan í aukið álag og nauðsyn þess að efla trúverðugleika dómstóla. Vegna þessa hækka eftirlaun 29 fyrrverandi dómara eða maka þeirra um 26 prósent.

Álagsgreiðslurnar voru orðnar hluti launanna

Ekki gefur rétta mynd af sérstakri endurskoðun kjararáðs á launum dómara í lok desember að horfa til launa þeirra fyrir breytingu án þess að taka tillit til álagsgreiðslna sem upphaflega áttu að vera tímabundnar.

Kjararáð hækkar laun æðstu embættismanna ríkisins

Hækkanir kjararáðs á launum æðstu embættismanna og kjörinna fulltrúa endurspegla hvernig árangur BHM í að fá menntun metna til launa hefur "smurst“ yfir á aðrar stéttir, að mati formanns BHM.

Eftirlaun dómara hækkuðu alls um 38 prósent í fyrra

Eftirlaun dómara hækkuðu um alls 38 prósent í fyrra með tveimur ákvörðunum kjararáðs. Meðalhækkun eftirlauna hjá ríkinu var 11,8 prósent . Sanngjörn og eðlileg hækkun, segir formaður Dómarafélagsins.

Forstjóri Landsvirkjunar launahæstur

Gögn kjararáðs og Alþingis sýna að launagreiðslur til þingmanna og ráðherra fara í tæpar 713 milljónir króna á ári eftir ákvörðun um 9,3 prósenta hækkun. Þingmenn fá aukagreiðslur vegna nefndaforystu og búsetu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×