Í dag er eitt ár frá dauða Michael Jackson. Hann var 50 ára gamall þegar hann lést eftir of stóran lyfjaskammt þann 29. júní 2009.
Margt hefur gerst eftir dauða Jackson. Aðdáendur hans út um allan heim hafa eytt megninu af árinu í að minnast kappans og fjölmörg mál eru ófrágengin.
Þá eru vikulega sagðar fréttir um nýjar styttur og minnismerki, tölvuleiki, Cirque du Soleil-sýningar, endurútgáfur og fleira sem tengist Jackson.
Dr. Conrad Murray
Michael réði Dr. Conrad Murrey sem einkalækni sinn nokkrum mánuðum fyrir andlátið. Hann var hjá Michael þegar hann lést en heldur því fram að hann eigi ekki sök á lyfjaskammtinum sem dró hann til dauða. Lesa má nánar um atburðarásina hér.
Dr. Murray kom fyrir rétt í Los Angeles í febrúar þar sem hann sagðist vera saklaus af ákæru um manndráp af gáleysi. Hann er nú laus gegn 10 milljóna króna tryggingu en réttarhöld hefjast yfir honum í haust. Hann á fjögurra ára fangelsisdóm yfir höfði sér.
Aðdáendur Jackson eru duglegir að láta í sér heyra fyrir utan dómsalinn í hvert sinn sem Murray er boðaður fyrir dómarann. Þeir heimta harða refsingu.
Jackson-börnin
Börn Jackson heita Michael Joseph Jackson Jr. (13 ára), Paris Katherine Jackson (12 ára) og Prince Michael Jackson II (8 ára), einnig kallaður Blanket.
Þau eru í umsjá ömmu sinnar, Katherine, samkvæmt ósk Jackson í erfðaskrá. Þessi fjögur njóta tekja dánarbúsins.
Börnunum hefur verið haldið utan sviðsljóssins eftir andlát föður þeirra. Þau komu þó fram á minningarathöfn um hann í Los Angeles í fyrra og í sérstöku atriði honum til heiðurs á Grammy-verðlaunahátíðinni.
Börnin eru með einkakennara heimavið. Talið er þó að Michael Joseph byrji þó í einkaskóla í haust.
Dánarbúið og fjárhagurinn
Óhætt er að segja að dánarbú Jackson hafi grætt á tá og fingri á síðasta ári. Samkvæmt Billboard hafa um 130 milljarðar króna komið í kassann.
Stærstur hluti þess kom frá Sony, sem samdi um útgáfu tíu platna næstu sjö árin. Tónlist Michael Jackson náði ótrúlegum vinsældum eftir andlátið og var hann söluhæsti tónlistarmaður heims fyrir vikið. Miklar tekjur hafa því borist frá útgáfufyrirtækinu Mijac Music, sem á réttinn að öllum lögum Jackson, og sölu á bókum og öðrum varningi.
Sony borgaði einnig fyrirframgreiðslu fyrir kvikmyndaréttinn að This Is It, sem er orðin tekjuhæsta tónlistar- og heimildarmynd allra tíma.
Eins og kunnugt er skuldaði Jackson formúgu og hefur verið unnið að því að semja um skuldirnar. Sú vinna gengur vel en hann var einmitt nýbúinn að setja tvo vini sína í málið áður en hann lést. Var tónleikaröðin í Englandi einmitt liður í því að taka til í skuldamálunum. Þótt aldrei yrði af tónleikunum reyndust þeir einnig gullnáma, skiluðu um milljarði króna, því fjöldi aðdáenda ákvað að halda í miðana sína eftir andlátið í stað þess að fá endurgreitt.
Það lítur því út fyrir að móðir Michael Jackson og börn muni njóta auðæfanna í nánustu framtíð og er Jackson-fjölskyldunni líkt við fjölskyldu Elvis Presley en dánarbú hans er gríðarleg lind auðæfa.