Viðskipti innlent

Rannveig Rist lýsti yfir sakleysi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rannveig Rist,forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Rannveig Rist,forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Vísir/Ernir
Rannveig Rist og Jóhann Ásgeir Baldurs lýstu bæði tvö yfir sakleysi sínu af ásökunum um umboðssvik sem stjórnarmenn SPRON í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sérstakur saksóknari sækir málið sem var þingfest þann 13. október. Þá neituðu Guðmundur Örn Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON og stjórnarmennirnir Margrét Guðmundsdóttir og Ari Bergmann Einarsson sök en Rannveig og Jóhann áttu ekki heimangengt fyrir rúmum tveimur vikum.

Fimmmenningunum er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé hans í verulega hættu með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga. Í ákærunni segir að brot þeirra sé stórfellt en málið snýr að tveggja milljarða lánveitingu sparisjóðsins til Exista skömmu fyrir hrun, eða 30. september 2008. Brot þeirra er jafnframt sagt óvenjulegt í ákærunni að því leiti að lánið var það eina sem samþykkt var á árunum 2007-2008.

Lánið var framlengt fjórum sinnum og var síðasti gjalddagi þess 16.mars 2009. Það var ekki greitt til baka og í ákærunni segir að það verði að telja það sparisjóðnum að fullu eða að verulegu leyti glatað.

Í ákærunni segir jafnframt að full ástæða hafi verið fyrir meðlimi stjórnarinnar að fara varlega við ákvörðun sína og og fara eftir öllum reglum vegna slíkra lánveitinga, ekki síst í ljósi þeirrar stöðu sem upp var komin á fjármálamörkuðum á þessum tíma.

Því hafi hins vegar farið fjarri að ákærðu færu eftir þeim varúðarreglum sem þeim bar skylda til í störfum sínum. Þvert á móti hafi lánið verið veitt án nokkurra trygginga og ekki farið fram mat á stöðu Existu og greiðslugetu. Í ljósi þess sé óhjákvæmilegt að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stórfelld.


Tengdar fréttir

Rannveig áfram í forstjórastólnum

Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Lánið til Existu án nokkurra trygginga

Lán sem SPRON veitti Existu 30. september 2008 að upphæð tveir milljarðar króna var eina lánið sem samþykkt var af stjórn SPRON á árunum 2007 og 2008. Þetta kemur fram í ákæru Sérstaks saksóknara gegn sparisjóðsstjóranum og fjórum stjórnarmönnum.

Verður áfram í stjórn N1

Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni.

Rannveig nýtur fulls trausts stjórnar HB Granda

Vegna framkominnar ákæru á hendur Rannveigu Rist telur stjórn HB Granda hf. ekki ástæðu til að gera athugasemdir við áframhaldandi stjórnarstörf hennar fyrir félagið.

Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga

Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum.

SPRON-liðar lýstu yfir sakleysi

Fyrrverandi bankastjóra SPRON og þremur stjórnarmönnum er gefið að sök að hafa farið út fyrir lánaheimildir með því að veita Exista tveggja milljarða króna lán árið 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×