Fleiri fréttir

Sigurður Pálsson er látinn

Sigurður greindist með ólæknandi krabbamein í brjósthimnu, svonefndan asbestkrabba, fyrir um þremur árum.

Tveir handteknir til viðbótar

Tveir karlmenn til viðbótar hafa verið handteknir í tengslum við hryðjuverkaárasina í Parsons Green lestarstöðina í London síðastliðinn föstudag.

Vandinn rakinn til vímu skipstjóranna

Skipstjórar litla bátsins við Kirkjusand í Reykjavík í gærkvöldi eru grunaðir um að hafa verið drukknir og/eða undir áhrifum fíkniefna.

Sá enga ástæðu fyrir fimm flokka stjórn

Þingflokksformanni Pírata þykir of geyst farið í kosningar. Fimm flokka stjórn hafi verið möguleiki. Fólk á þingi segist hafa talað fyrir daufum eyrum Vinstri grænna en formaður flokksins segir þann möguleika aldrei hafa komið upp.

Stór hluti telur stöðu Bjarna hafa versnað

75 prósent þeirra sem afstöðu taka telja stöðu Bjarna Benediktssonar hafa versnað. Sjálfstæðisflokkurinn er í verri stöðu vegna atburða síðustu daga en tæp sjötíu prósent segja flokkinn standa verst samkvæmt nýrri könnun.

Rétttrúnaðarkirkja fær ekki sölukofa á Mýrargötu

Trúfélagið hefur fengið lóð frá borginni undir kirkju og safnaðarhús á Mýrargötu 21-23. Félagið hafði sótt um að fá að reisa átta fermetra söluhús og starfsmannaaðstöðu en breytti umsókninni og bað um leyfi fyrir 26 fermetra húsi.

Tími tveggja flokka stjórna liðinn

Sjálfstæðisflokkurinn er á pari við verstu niðurstöðu sína í nýrri könnun. Þrír stjórnmálaflokkar eru í mikilli hættu á að missa alla þingmenn. Niðurstaðan minnir á pólitískt landslag í Skandinavíu.

Meira tjón fram undan vegna Mariu

Þök rifnuðu af húsum á Dóminíku og mikil flóð dundu á Guadeloupe í Karíbahafi í gær þegar fimmta stigs fellibylurinn Maria gekk yfir. Búist er við frekara tjóni í dag. Vindhraði Mariu jókst óvenjuhratt vegna hitastigs sjávar.

Engin niðurstaða um þinglok í sjónmáli

Ekki tókst að ná samkomulagi milli forystufólks flokkanna um hvaða mál eigi að afgreiða fyrir kosningar á fundum þeirra með forseta Alþingis í dag. Áfram verður reynt að ná saman um málin á morgun en engir þingfundir fara fram fyrr en samkomulag um málaskrána liggur fyrir.

„Fagnaðarefni fyrir alla Íslendinga“

Sigur fyrir íslenska náttúru og umhverfi, segja andstæðingar fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju á Grundartanga eftir að ljóst er að ekki verður af byggingu hennar. Í gær varð ljóst að fyrirtækinu tækist ekki að útvega fjármögnun til framkvæmdarinnar, en áætlað var að yfir 400 störf myndu skapast í verksmiðjunni.

Undanþágan varð að meginreglu við uppreist æru

Dómsmálaráðherra segir engar tilraunir hafa verið gerðar til þöggunar í tengslum við upplýsingar varðandi framkvæmd laga um uppreist æru. Hins vegar hafi undanþágugrein í lögum orðið að reglu við uppreist æru og framkvæmdin því ekki að fullu eins og löggjafinn hafi ætlast til.

Minnst þriggja flokka meirihluti í boði

Fráfarandi meirihluti á Alþingi er kolfallinn samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem gerð var í gær. Samkvæmt henni verður einungis hægt að mynda ríkisstjórn þriggja flokka eða fleiri

Einn látinn af völdum Maríu

Minnst einn er látinn og tveggja er saknað eftir að fellibylurinn María gekk yfir Guadeloupe og aðrar eyjur í Karíbahafi í nótt.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá því að ekkert samkomulag er um þinglok þrátt fyrir stíf fundarhöld forystufólks flokkanna í dag og verður þeim fundum framhaldið á morgun.

Fólk beðið að fara varlega vegna heitavatnsleka í Vesturbæ

Reikna má með heitavatnsleysi víða í Vesturbæ á meðan gert verður fyrir lögnina. Þá er fólk varað við slysahættu í grennd við lekann, að því er segir í tilkynningu frá Veitum sem send var út nú á fimmta tímanum í dag.

Stíf fundahöld í þinghúsinu

Stíf fundahöld hafa verið á Alþingi í dag þar sem forystumenn og þingmenn flokkanna sem þar eiga sæti reyna að ná lendingu varðandi það hvernig má ljúka þingstörfum áður en gengið verður til kosninga þann 28. október.

Sjá næstu 50 fréttir