Innlent

Þrettán mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn ellefu ára stúlku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Héraðsdómur Reykjaness var fjölskipaður í málinu. Ástríður Grímsdóttir,                                                                                     Bogi Hjálmtýsson og Gunnar Aðalsteinsson kváðu upp dóminn.
Héraðsdómur Reykjaness var fjölskipaður í málinu. Ástríður Grímsdóttir, Bogi Hjálmtýsson og Gunnar Aðalsteinsson kváðu upp dóminn. vísir/gva
28 ára karlmaður hefur verið dæmdur í þrettán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness meðal annars fyrir að fara óboðinn inn á heimili í Hafnarfirði í maí og brjóta kynferðislega á ellefu ára stúlku. Dómur var kveðinn upp á mánudag en birtur í dag. Mál mannsins hefur þegar verið til nokkurar umfjöllunar í fjölmiðlum en maðurinn sat í gæsluvarðhaldi í tæpa þrjá mánuði, frá maí til júlí í fyrra.

Það var aðfaranótt föstudagsins 5. maí sem maðurinn ruddist inn á heimili í Hafnarfirðinum og braut gegn stúlku, fæddri árið 2005. Hún var þá hjá föður sínum og stjúpmóður. Stóð maðurinn við rúm stúlkunnar þar sem hún lá, settist á rúmstokkinn, strauk bak og mjöðm hennar innanklæða áður en hann fór upp í rúm hennar og hélt áfram að strjúka henni.

Stúlkan flúði undan manninum inn á salerni, elti hana og reyndi að opna salernisdyrnar. Stúlkan kom í veg fyrir að honum tækist það. Maðurinn neitaði að hafa snert stúlkuna innan klæða. Dómurinn mat framburð stúlkunnar trúverðugan.

Þá var maðurinn var dæmdur fyrir brot gegn blygðunarsemi, með því að hafa snemma morguns, sama föstudag, farið upp að baðherbergisglugga hjá ókunngri konu þar sem hún stóð fáklædd og berbrjósta á heimili sínu. Neitaði maðurinn að hafa séð konuna fáklædda en dómurinn mat framburð konunnar trúverðugan.

Var hann dæmdur fyrir að hafa stolið gin flösku á heimili stúlkunnar en sýknaður af fíkniefnabrot en tæpt gramm af marijúana fannst í poka við rúm stúlkunnar. Gegn neitun mannsins, og þar sem fingraför hans fundust ekki á pokanum, var hann sýknaður af þeim ákærulið.

Þarf maðurinn að greiða stúlkunni 900 þúsund krónur í bætur og konunni 300 þúsund krónur eins og fram kemur í dómnum. Þeir dagar sem maðurinn var í gæsluvarðhaldi koma til frádráttar refsingu mannsins.


Tengdar fréttir

Játar að hafa brotist inn

Karlmaður sem sætir ákæru vegna gruns um að hafa brotist inn í íbúð í Hafnarfirði og áreitt tólf ára stúlku kynferðislega í maí síðastliðnum játaði innbrotið þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í mánuðinum. Hann neitaði hins vegar að hafa brotið á stúlkunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×