Pálmi Haraldsson, eigandi danska flugfélagsins Sterling, sem lýst var gjaldþrota í morgun, segir það ólýsanlega sárt að horfa á eftir félaginu í gjaldþrot. Hann segist hafa reynt að gera allt til að bjarga flugfélaginu en verið ofurliði borinn vegna orðspors Íslendinga erlendis.
„Þetta eru mestu vonbrigðin á viðskiptaferlinum mínum," segir Pálmi í samtali við Vísi. Hann segir Sterling hafa verið vel fjármagnað félag með engar vaxtaberandi skuldir. „Ég var eini lánadrottinn félagsins fyrir utan birgja," segir Pálmi.
En hvernig gat Sterling þá farið á hausinn?
„Það sem hefur gerst er að við misstum allt lánstraust í einu vetfangi. Allt í einu hættu menn að treysta Íslendingum og þá þurfti Sterling að staðgreiða allt. Eins og allir vita þá er vonlaust að fá lausafé nú um stundir, sérstaklega ef fyrirtækið eða eigendurnir tengjast Íslandi. Íslendingar eru rúnir öllu trausti í útlöndum. Ég er búinn að kaupa 450 milljónir danskar krónur á síðustu sextíu dögum. Fyrir ári hefði það kostað mig um fimm milljarða en núna kostar það níu milljarða. Það segir sig sjálft að slíkt er erfitt," segir Pálmi.
Aðspurður hversu miklu hann tapi á gjaldþroti Sterling segist Pálmi ekki geta gefið það upp. „En það er mjög há fjárhæð," bætir hann við.
Ursula Bresemann, trúnaðarmaður flugliða hjá Sterling, sakaði Pálma í morgun um svik í viðtali við fréttavefinn Take Off. Pálmi segist vel geta skilið reiði hennar. „Þetta er auðvitað sárt en það eru leikreglur í gangi þegar kemur að gjaldþrotum. Það má ekki mismuna lánadrottnum," segir Pálmi en bætir við að sem betur fái starfsmenn greidd laun og flestir farþegar ferðir sínar bættar á næstunni.
Og Pálmi er varla vinsælasti maðurinn í Kaupmannahöfn eftir atburði morgunsins. Aðspuður hvort hann hyggi á ferð til Danmerkur á næstunni svarar hann: „Nei, ég held fari frekar bara til Alicante."