Stormy Daniels í dómsal með Trump Stormy Daniels, fyrrverandi Klámmyndaleikkona, mun bera vitni í réttarhöldunum gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í New York í dag. Búist er við því að hún muni segja kviðdómendum frá því þegar Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Trumps, greiddi henni 130 þúsund dali í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent
„Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Viðar Örn Kjartansson segir að fjarvera sín í leik KA og KR hafi verið blásin full mikið upp og segir málinu lokið. Hann segist enn eiga eitthvað í land til að komast í sitt besta form en er staðráðinn í að hjálpa KA-mönnum að komast á sigurbraut. Íslenski boltinn
Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi Skvísur landsins komu saman í Reykjavík Makeup School síðastliðinn föstudag með glæsilegu útgáfuteiti. Meðal gesta voru Manuela Ósk, Pattra, Patrekur Jaime, Dj. Sóley og margir fleiri. Lífið
Adam og Arnar snemma í klefann Adam Ægir Pálsson og Arnar Grétarsson náðust á filmu er þeir fóru snemma til búningsklefa eftir að hafa fengið reisupassann í leik Vals og Breiðabliks. Stúkan ræddi málið. Besta deild karla
Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Flugfélagið Play flutti rúmlega 122 þúsund farþega í apríl 2024, sem er 19 prósent meira en í apríl á síðasta ári. Sætanýtingin í apríl 2024 var 85,1 prósent, sem er aukning frá apríl í fyrra þegar sætanýting var 80,8 prósent. Viðskipti innlent
Kostnaður vegna endurskipulagningar hjá Arctic Adventures litar afkomuna Talsvert var um einskiptiskostnað hjá Arctic Adventures vegna starfsmannabreytinga og endurskipulagningar á innra starfi félagsins á árinu 2023. Þótt tekjur hafi aukist um 37 prósent dróst hagnaður nokkuð saman af þeim völdum. Fyrirtækið keypti Kerið í Grímsnesi í fyrra en samkvæmt fjárhagsupplýsingum frá Arctic Adventures námu fjárfestingar í fasteignum og landi tæplega tveimur milljörðum. Innherji
Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Er hægt að lagskipta sólarvörnum og er það eitthvað betra heldur en að nota bara eina? Verður SPF50 + SPF30 = SPF80? Förum aðeins yfir þetta með Hello Sunday. Lífið samstarf