Sigríður Björk hverfur á braut og umboðsmaður vill endurskoða meðferðarheimilin Í hádegisfréttum fjöllum við um mál ríkislögreglustjóra sem í morgun sagði af sér embætti og verður sett í sérverkefni innan dómsmálaráðuneytisins. Innlent
Konráð Valur valinn knapi ársins Konráð Valur Sveinsson var valinn knapi ársins 2025 á uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga um nýliðna helgi. Sport
Stór hluti fólks „aumingjar og haugar“ Rúnar Hroði Geirmundsson einkaþjálfari og heimsmeistari í kraftlyftingum segist hafa skipt algjörlega um takt í lífinu. Hann segir að langlífi og heilbrigði hafi tekið við af öfgum sem tengdust kraftlyftingaferlinum. Lífið
Sunnudagsmessan - Mark dæmt af Liverpool Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni skoðuðu fyrri dæmi á leiktíðinni um mörk sem fengið hafa að standa en voru keimlík markinu sem dæmt var af Liverpool í stórleiknum við Manchester City í gær. Sitt sýndist hverjum um hvort dómurinn hefði verið réttur eða kolrangur. Enski boltinn
Fóru með sigur af hólmi í Bretlandi Dómstóll í Bretlandi hefur hafnað lögbannskröfu Regeneron Pharmaceuticals og Bayer, sem beindist að Alvotech og þjónustuaðila félagsins í Bretlandi. Dómstóllinn hafnaði þar með kröfu frumlyfjafyrirtækjanna um að Alvotech yrði bannað að framleiða birgðir af AVT06, hliðstæðu líftæknilyfsins Eylea (aflibercept), til markaðssetningar í Bretlandi, á Evrópska efnahagssvæðinu og öðrum mörkuðum utan Evrópu. Þessi niðurstaða mun auðvelda markaðssetningu lyfsins eftir að viðbótarvernd á einkaleyfum Eylea í Evrópu rennur út, sem er 23. nóvember næstkomandi. Viðskipti innlent
Ætti ekki endilega að hafa áhrif á umsóknir um aðrar hliðstæður Alvotech Það þarf ekki endilega að vera að þær athugasemdir sem FDA gerði við umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir líftæknilyfjahliðstæðu við Simponi muni einnig hafa áhrif á aðrar útistandandi umsóknir félagsins, að sögn framkvæmdastjóra rannsókna-, þróunar og framleiðslu, en það skýrist þegar svarbréf berst frá eftirlitinu á seinni hluta mánaðarins og þá fæst betri mynd af næstu skrefum. Alvotech mun senda inn nýja umsókn á þessum fjórðungi og hefur FDA sex mánuði til að taka afstöðu til hennar, en sá tími inniheldur jafnframt mögulega endurúttekt á framleiðsluaðstöðinni. Innherji
Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Knútur Haukstein Ólafsson frá Akranesi átti hreint ekki í vandræðum með að skera sig úr hópnum þegar hann tryggði sér sigur í graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa 2025. Hann fær í verðlaun 50.000 króna inneign hjá Fjarðakaupum og er nú formlega graskerskonungur landsins. Lífið samstarf