Fleiri fréttir

Umhverfisvitund getur reynst arðbær

Framkvæmdastjóri danskrar prentsmiðju sem ætlar að verða sú umhverfisvænasta í heimi segir umhverfisvitund neytenda vera að aukast. Rík áhersla á samfélagsábyrgð geti þannig einnig verið arðbær. Ný könnun sýnir að íslenskir neytendur vilja fremur skipta við samfélagslega ábyrg fyrirtæki.

Hugsa Kaupþingsmönnum þegjandi þörfina

Við bjóðum ykkur að hrekja ásak­anir okk­ar, og ef þið getið það ekki, þá virð­ist það liggja fyrir að í þessu til­tekna til­viki borgi glæpir sig á Íslandi, skrifa Karen Millen og Kevin Stanford.

Hótað pólitískum afskiptum í einstökum málum

Skattrannsóknarstjóra hefur verið hótað pólitískum afskiptum í einstökum málum og þá hefur verið reynt að múta Bryndísi Kristjánsdóttur, sem gegnt hefur embætti skattrannsóknarstjóra frá árinu 2007.

Vilhelm Már nýr forstjóri Eimskips

Vilhelm Már Þorsteinsson hefur verið ráðinn forstjóri Eimskips. Vilhelm sem undanfarin ár hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækja og fjárfestasviðs Íslandsbanka hefur störf 24. Janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Bjóða allt að 20 milljarða í Icelandair Hotels

Tilboð fjárfesta sem var hleypt áfram í aðra umferð söluferlis Icelandair Hotels hljóða upp um á 140 til 165 milljónir dala. Í þeim hópi eru Blackstone, asísk hótelkeðja og sameiginlegt tilboð frá Keahótelum og Regin.

Félag í eigu Andra bætir við sig í VÍS

Eignarhaldsfélagið Eitt hótel, sem er í jafnri eigu Andra Gunnarssonar og Fannars Ólafssonar, en þeir eru á meðal hluthafa í fjárfestingarfélaginu Óskabeini, einum stærsta einkafjárfestinum í VÍS, hefur á síðustu vikum verið að bæta við hlut sinn í tryggingafélaginu.

Sara Dögg til SVÞ

Sara Dögg Svanhildardóttir hefur verið ráðin til Samtaka verslunar og þjónustu sem skrifstofustjóri og í umsjón með mennta- og fræðslumálum.

Basko tapaði rúmum milljarði

Eignarhaldsfélagið Basko, sem hefur rekið verslanir undir merkjum 10-11 og Iceland, tapaði ríflega 1.030 milljónum króna á síðasta rekstrarári sem lauk í febrúar í fyrra.

Endurskipulagning Marorku gengur vel

Endurskipulagning rekstrar Marorku, sem selur orkustjórnunarkerfi og hugbúnað í stór skip, hefur gengið vel og framlegð var jákvæð á árinu 2018 þrátt fyrir að rekstrarkostnaður fyrstu fimm mánuði ársins hafi verið í hlutfalli við fyrri umsvif.

Stofna greiðslufyrirtæki í Litháen

Stofnendur og fyrrverandi stjórnendur Kortaþjónustunnar hafa stofnað greiðslufyrirtæki í Litháen og hyggjast á næstu tveimur árum ráða til sín allt að þrjátíu starfsmenn.

Bætir við eignarhlut sinn í Capacent á Íslandi

Capacent í Svíþjóð hefur aukið hlut sinn í Capacent á Íslandi með kaupum á 4,1 prósents hlut í síðarnefnda félaginu. Eftir kaupin fer sænska félagið með 66,6 prósenta hlut í Capacent á Íslandi.

Skoðar lagalega stöðu sína

Gamli Byr, sem lauk nauðasamningum í janúar árið 2016, segir allar tilraunir Íslandsbanka til þess að leita frekara mats á virði lánasafns sem bankinn keypti af Byr og ríkissjóði haustið 2011 til þess fallnar að tefja lyktir deilu félaganna og koma í veg fyrir að Gamli Byr geti hafið útgreiðslu til kröfuhafa sinna.

0,05 prósenta hlut vantaði upp á

Aðeins vantaði 0,05 prósenta hlut upp á til þess að krafa félaga í eigu Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, forstjóra Torgs, og fleiri hluthafa Haga um að margfeldiskosningu yrði beitt við stjórnarkjör smásölurisans næði fram að ganga.

Seðlabankinn vilji að fjármagn fari úr landi „án mikilla átaka“

Nærtækasta skýringin á tíðum inngripum Seðlabanka Íslands á gjaldeyrismarkaði undanfarnar vikur er sú að bankinn hafi nokkuð skýrar upplýsingar um afmarkað fjármagnsflæði – flæði sem er tiltölulega vel skilgreint í fjárhæðum og tímasetningu – sem hann vilji að fari án mikilla átaka af markaðinum.

Innlendir framleiðendur með 41% af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjöt

Innlendir kjúklinga- og svínabændur og afurðastöðvar í landbúnaði fengu samtals í sinn hlut rúmlega 41 prósent af tollfrjálsum innflutningskvóta fyrir kjötvörur, sem úthlutað var fyrir fyrri helming ársins 2019 samkvæmt tollasamningi Íslands og ESB. Bændur og afurðastöðvar flytja inn nærri 84 prósent af öllum svínakjötskvótanum.

TFII nýr hluthafi í Genís

Líftæknifyrirtækið Genís á Siglufirði sem athafnamaðurinn Róbert Guðfinnssonar stofnaði hefur lokið fyrsta áfanga af fjármögnun til að styðja við frekari vöxt félagsins.

Bein útsending: Verðmætasköpun og þjóðarhagur

Landsvirkjun býður til opins fundar klukkan 8:03-10 á Hilton í dag. Þar verður kynnt ný skýrsla um Orkuauðlindir Íslendinga og hagsæld til framtíðar eftir hagfræðingana Gunnar Haraldsson hjá Intellecon og Magnús Árna Skúlason hjá Reykjavík Economics.

COS opnar í Reykjavík

COS, eins konar systurverslun H&M, mun opna verslun í Reykjavík síðar á þessu ári. COS er í eigu H&M fataverslunarkeðjunnar.

Sjá næstu 50 fréttir