Viðskipti innlent

Einar K. og fisk­eldis­fyrir­tæki til SFS

Atli Ísleifsson skrifar
Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.
Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Aðildarfyrirtæki Landssambands fiskeldisstöðva (LF) hafa tekið ákvörðun um að óska eftir aðild að Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Ákvörðun þessa efnis var tekin á auka aðalfundi LF í síðasta mánuði.

Í tilkynningu frá SFS segir að jafnframt  hafi verið ákveðið að leggja niður daglega starfsemi LF og verði henni framvegis verða sinnt af SFS. Einnig segir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og stjórnarformaður í LF, verði hluti af teymi SFS og sinni þar verkefnum er snúa að fiskeldismálum.

Haft er eftir Einari K. Guðfinnsyni að það hafi verið mikil uppbygging í fiskeldi á undanförnum árum og verkefnin sem þurfi að leysa úr séu orðin umfangsmeiri og kannski að sumu leyti flóknari en áður. „Ég tel þetta því rökrétt skref í þróun samtakanna og fiskeldis á Íslandi, að verða hluti af samtökum sem byggjast á gömlum grunni. Laxeldi hefur alla burði til þess að verða undirstöðuatvinnugrein á Íslandi á sama hátt og sjávarútvegurinn hefur verið um langt skeið og  verða þar með enn ein stoðin undir efnahagslegri hagsæld Íslendinga. Að því munum við vinna,“ segir Einar.

Þá er haft eftir Jens Garðari Helgasyni, formaður stjórnar SFS, að hann fagni komu fiskeldis í samtökin. Nokkur fyrirtæki í fiskeldi hafi um alllangt skeið verið félagsmenn í SFS og styrkur sé að því að fjölga þeim. „Næstu vikur og mánuðir fara í að samþætta starfsemina undir hatti SFS og ég vonast til þess að þeirri vinnu verði lokið fyrir sumarið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×