Bjóða allt að 20 milljarða í Icelandair Hotels Hörður Ægisson skrifar 16. janúar 2019 09:53 Icelandair Hotels rekur meðal annars hótelið Canopy Reykjavík við Smiðjustíg. FBL/Sigtryggur Ari
Icelandair Group gæti átt von á því að fá allt að um tuttugu milljarða íslenskra króna við sölu á Icelandair Hotels og fasteignum sem tilheyra rekstri hótelkeðjunnar. Samkvæmt heimildum Markaðarins nema þannig óskuldbindandi tilboð fjárfesta, sem var nýlega hleypt áfram í aðra umferð söluferlisins, á bilinu um 140 til 165 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 17 til 20 milljarða króna á núverandi gengi, miðað við heildarvirði félagsins. Í þeim hópi fjárfesta eru meðal annars sjóður í stýringu Blackstone, eins stærsta fjárfestingarsjóðs heims, asísk hótelkeðja og eins sameiginlegt tilboð frá Keahótelum og fasteignafélaginu Regin, samkvæmt heimildum Markaðarins. Frestur til að skila inn skuldbindandi tilboðum í Icelandair Hotels er til 12. febrúar næstkomandi en stefnt er að því að niðurstaða fáist í söluferlið fyrir lok fyrsta ársfjórðungs. Heildarvirði hótelkeðjunnar – hlutafé og vaxtaberandi skuldir – er bókfært á um 111 milljónir dala í reikningum Icelandair Group og því gæti flugfélagið fengið umtalsverðan hagnað við söluna miðað við þau óskuldbindandi tilboð sem nú liggja fyrir.Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.Vísir/Jói KFormlegt söluferli á Icelandair Hotels hófst í byrjun nóvember á síðasta ári og var umtalsverður áhugi á meðal fjárfesta. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, lét þannig hafa það eftir sér í viðtali við ViðskiptaMoggann þann 20. desember síðastliðinn að á annan tug óskuldbindandi tilboða væru þá komin í hús. Á meðal þeirra sem skiluðu inn tilboðum, en voru ekki teknir áfram í aðra umferð söluferlisins, samkvæmt heimildum Markaðarins, voru meðal annars fjárfestingarfélagið Stoðir og fjárfestahópur sem var leiddur af Jóhanni Halldórssyni en félag í hans eigu hefur haft uppi áform um að byggja hótel í Vatnsmýrinni. Icelandair Hotels rekur 13 hótel í Reykjavík og á landsbyggðinni auk þess að reka einnig sumarhótelkeðjuna Hótel Eddu, en um er að ræða alls 1.937 herbergi á landinu öllu. Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum síðasta árs námu samtals um 93 milljónum dala, jafnvirði 11 milljarða króna, og jukust um tólf milljónir dala frá sama tíma fyrir ári en á árinu 2018 bættust þrjú ný hótel við rekstur Icelandair Hotels sem jók framboð hótelherbergja um 197. Icelandair Group hefur upplýst um að áætlað hafi verið að leigutekjur fasteigna hótelkeðjunnar hafi numið 700 milljónum króna á síðasta ári og að EBITDA hótelrekstrar yrði um 900 milljónir. Fyrir núverandi ár er gert ráð fyrir að leigutekjur fasteigna nemi 800 milljónum og að EBITDA hótelrekstrar verði um 1.100 milljónir.Vildi kaupa í Bláa lóninu Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Blackstone falast eftir stórri fjárfestingu í íslenskri ferðaþjónustu. Þannig áformaði sjóður á vegum félagsins, sem er stýrt af Chad Pike, einum af yfirmönnum Blackstone í Evrópu, en fyrirtæki í hans eigu rekur lúxushótelið Deplar Farm í Fljótunum í Skagafirði, að kaupa 30 prósenta hlut HS Orku í Bláa lóninu sumarið 2017 fyrir um 110 milljónir evra, jafnvirði 13 milljarða króna á þáverandi gengi. Ekkert varð hins vegar af kaupunum þegar Jarðvarmi, samlagshlutafélag í eigu fjórtán lífeyrissjóða, beitti neitunarvaldi sínu og hafnaði tilboðinu. Keahótel, sem er þriðja stærsta hótelkeðja landsins, rekur meðal annars Hótel Borg og Apótek hótel í miðbæ Reykjavíkur. Stærstu eigendur félagsins, sem komu inn í hluthafahópinn haustið 2017, eru bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Pt Capital Advisors og bandaríska fjárfestingar- og þróunarfélagið JL Properties, sem er með aðsetur í Alaska, með samtals 75 prósenta hlut.
Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Icelandair Mest lesið Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Viðskipti innlent Bein útsending: Má þetta bara? Viðskipti innlent Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Viðskipti innlent Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga Viðskipti innlent KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Viðskipti innlent Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Viðskipti innlent Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Viðskipti innlent Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög Viðskipti innlent „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Atvinnulíf Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Samstarf Fleiri fréttir Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Bein útsending: Má þetta bara? Pizza King til sölu á þrettán milljónir Engin löndun í bili í Grindavík Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Kvika tók kipp Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Forstjóraskipti hjá Play Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Sjá meira