Viðskipti innlent

Hugsa Kaupþingsmönnum þegjandi þörfina

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hjónin Kevin Stanford og Karen Millen stofnuðu tískuvöruframleiðandann Karen Millen árið 1981, Þau áttu síðar eftir að slíta samvistum.
Hjónin Kevin Stanford og Karen Millen stofnuðu tískuvöruframleiðandann Karen Millen árið 1981, Þau áttu síðar eftir að slíta samvistum. Vísir
„Við bjóðum ykkur að hrekja ásak­anir okk­ar, og ef þið getið það ekki, þá virð­ist það liggja fyrir að í þessu til­tekna til­viki borgi glæpir sig á Íslandi.“

Á þessum orðum lýkur opnu bréfi Kevin Stanford og Karenar Millen til Kaupþingsforkólfanna Magnúsar Guðmundssonar og Hreiðars Más Sigurðssonar. Þau Stanford og Millen voru meðal stærstu viðskiptavina bankans fyrir hrun og í bréfi sínu, sem birt var á vef Kjarnans, rekja þau í grófum dráttum samskipti og viðskipti sín við Kaupþing, Magnús og Hreiðar Má.



Í bréfinu segjast þau hafa verið „notuð í svika­myllu“ sem Hreiðar og Magnús eiga að hafa búið til, svikamyllu sem rekja má aftur til ársins 2001 þegar Kaupþing kom að kaupum á tískuvöruframleiðandanum Karen Millen. Fjórum árum síðar, í apríl 2005, keyptu þau Stanford og Millen hlutabréf í Kaupþingi, en sem tryggingu fyrir lánum vegna hlutabréfakaupana notuðu þau hluta hagnaðarins af sölu tískuvöruframleiðandans.

Sjá einnig: Kaupþing kaupir kröfu á tískukóng af eignarhaldsfélagi ríkisins

„Það sem Karen og ég vissum ekki á þeim tíma var að bréfin höfðu verið í „geymslu“ (óseld) frá því í hluta­bréfa­út­boði Kaup­þings þann 11. ágúst og 15. októ­ber 2004. Hluta­bréfa­aukn­ingin nam 92,4 millj­örðum íslenskra króna, sem tvö­fald­aði stærð bank­ans og gerði honum mögu­legt að kaupa FIH bank­ann í Dan­mörku. Hins vegar voru flest hluta­bréfin seld, fyrir utan mín og Karen­ar, án nokk­urra trygg­inga ann­arra en bréf­anna sjálfra,“ skrifa Stanford og Millen.

Hreiðar Már Sigurðsson tekur hér í hönd Magnúsar Guðmundssonar. Hreiðar var forstjóri Kaupþings en Magnús fór fyrir bankanum í Lúxemborg. Ólafur Ólafsson, einn aðaleigenda bankans, fylgist með.Vísir/vilhelm
Þau segjast hafa litið á þá Magnús og Hreiðar sem viðskiptafélaga sína og vini. Þeir hafi hins vegar misnotað sér traust þeirra - „með því að nota okkur í sam­særi með Deutsche Bank til að lækka skulda­trygg­ing­ar­á­lag Kaup­þings [...] Saka­mála­rann­sóknin sem fylgdi í kjöl­farið skað­aði orð­spor okkar og mögu­leika okkar til að stunda áfram við­skipti.“

Leynilegir bankareikningar eiginkvenna

Í bréfinu rekja þau Millen og Stanford samskipti sín við Kaupþingsmennina mánuðina fyrir fall bankanna haustið 2008. Til að mynda segir Kevin Stanford að Magnús hafi tjáð sér að þann 18. ágúst hefði Kaupþing í Lúxemborg keypt milljónir hluta í Kaupþingi og að bréfin hefðu verið skráð á Stanford - að honum forspurðum.

Stanford kann því Kaupþingi fáar þakkir fyrir að krefja sig um 200 milljón pund vegna láns sem „Kaup­þing hf. á að hafa lánað mér til að kaupa hina verð­lausu“ hluti, án samþykkis eða vitneskju Stanford.

Sjá einnig: Karen Millen gjaldþrota og kennir Kaupþingi um

„Á meðan þið lifið á pen­ingum vegna „Kaupt­hink­ing”, sem geymdir eru á leyni­legum banka­reikn­ingum eig­in­kvenna ykkar í Sviss, erum við nauð­beygð til að verj­ast órétt­látum kröfum frá arf­tökum Kaup­þings í Lúx­em­borg (Banque Havill­and) og Kaup­þingi hf. sem nota blekk­ingar ykkar til að reyna að hagn­ast.“

Slitastjórn Kaupþings á nú vörumerkið Karen Millen.Getty/Jason Kempin
Þá keypti Magnús þann 21. ágúst 2008 skuldabréf í Kaupþingi fyrir milljónir dala í nafni Karenar Millen „án þess að hún hefði hug­mynd um það.“ Tapið vegna skuldabréfanna færði Magnús á reikning Stanford í Kaupþingi í Lúxemborg, „án þess að segja mér frá því,“ skrifar Kevin Stanford.

Stolnar evrur nýst Landspítala

Víkur þá sögunni að neyðarláni Seðlabanka Íslands til Kaupþings þann 6. október 2008, sem hljóðaði upp á 500 milljónir evra og veitt var með það fyrir augum að bjarga bankanum. Stanford segir ótrúlegt hvernig Hreiðari tókst að plata Seðlabankann til að fallast á lánið - „þegar þú vissir að Kaup­þing var gjald­þrota; þú not­aðir svo 171 milljón evrur af pen­ingum landa þinna til að borga niður skuld Kaup­þings í Lúx­em­borg við Lindsor Hold­ings Cor­poration til að und­ir­búa yfir­töku þína á Kaup­þingi í Lúx­em­borg“

Stanford bætir við að Seðlabankanum hafi aldrei tekist að endurheimta umræddar 171 milljón evrur.

„Það er líka kald­hæðn­is­legt að eftir að þið stáluð (171 milljón evr­um) af íslensku þjóð­inni, sem myndi duga til að borga fyrir nýtt þjóð­ar­sjúkra­hús, til að fjár­magna hug­myndir ykkar um að kaupa Kaup­þing í Lúx­em­borg, þá heldur íslenska þjóðin áfram að fjár­magna hót­elin ykkar í gegnum rík­is­bankana, Lands­banka og Íslands­banka. Það er líka ótrú­legt að Stefnir hf., dótt­ur­fé­lag Arion banka (sem áður hét Kaup­þing hf.), hafi fjár­fest í hót­el­verk­efnum ykk­ar,“ skrifa þau Stanford og Millen.

Bréf þeirra má nálgast í heild sinni hér á ensku,sem og á vef Kjarnans.

 


Tengdar fréttir

Karen Millen gjaldþrota og kennir Kaupþingi um

Tískumógúllinn Karen Millen er gjaldþrota. Millen, sem opnaði fyrstu verslun sína ásamt þáverandi eiginmanni sínum Kevin Stanford árið 1981, gat ekki greitt skattaskuld sína við breska ríkið og var því úrskurðuð gjaldþrota í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×